Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 21
Gamla kennaraskólahúsið í Reykjavík. Héðan lauk Árni prófi 1938, eftir mikið mótiæti. fylgjast með því, sem lesið var í skól- anum. Og dagamir siluðust áfram. Rétt fyrir jólin var svo ákveðið, að ég legðist inn á Landsspítalann til upp- skurðar og að ég notaði jólafríið á sjúkrahúsinu. .» Loksins er ég þá kominn á skurð- stofuna til Guðmundar Thoroddsen og starfsliðs hans. Til öryggis var ég festur með ólum við sjúkrabekkinn og svæfingarlyfið borið að vitum mér. Þegar lyfið tók að verka, hef ég aldrei lifað þvílíka sælu- og unaðsstund. Ég leið upp í loftið — frá sjálfum mér — við undurfagran söng, sennilega söngl frá einhverjum viðstöddum, og þar með fjaraði meðvitundin út og ég vissi ekki lengur, að ég var til. Sælan og meðvitundarleysið varaði ekki lengi. Ég vaknaði með uppköstum og sáru taki í kviðarholi. Mikil ígerð var komin við botnlangann, sem nú var að vísu farinn og var holskurðurinn hafður opinn á parti með sárakanna. Þarna lá ég um jólin og leið betur eftir því, sem ígerðin minnkaði. Skólabræður mínir heimsóttu mig og Steinunn kom oft og fylgdist með heilsufari mínu, en hún var heimilis- kennari þennan vetur í Borgarfirði. Allt var gert á spítalanum til að sjúkl- ingunum liði sem best. Jólin leyndu sér ekki: gjafir, jólatré, kertaljós o.fl. Þetta voru sérstök jól fyrir mig og ólík því, sem ég hafði áður lifað. Þetta var áhrifamikil reynsla og þroskandi, þó að ekki væri hún þægileg meðan á því stóð. Læknar og hjúkrunarlið reyndist mér ágætlega og var notalegt að finna nærgætni þess og hlýhug. Eftir að ég komst af sjúkrahúsinu, þurfti ég að mæta þar til eftirlits og umbúðaskiptingar. Fannst mér leitt að komast ekki í skólann og spurði nú hikandi Guðmund Thoroddsen lækni, hvort ég mætti ekki fara að stunda skólann. Það var eins og hann yrði hálf hissa og segir svo eftir stundarkorn: „Ja, ef þú treystir þér til, þá máttu prófa það“. Það stóð ekki á mér og fór ég í skólann daginn eftir og mun það hafa verið nálægt miðjum janúar. Ég hitti fyrst skólastjórann, Frey- stein Gunnarsson, sem tók mér mjög alúðlega og gaf mér góð ráð. En einn af kennurum skólans var mér ekki jafnnotalegur. Hann var ákafamaður, sem gerði miklar kröfur til sjálfs sín og annarra, en grein hans var byrjunar- kennsla í lestri og kennslufræðum. Það valt á miklu með kennslu hans við skólann. Eg vildi leita ráða hans, hvernig ég gæti sem best unnið upp það, sem ég hafði misst, en þar hafði ég ekkert getað lesið mér til í veikind- um. Orð hans voru eitthvað á þessa leið: „Mér sýnist, að þú sért úr leik. Þú getur ekki náð því, sem þú hefur tap- að úr kennslu. Þú verður að fara í 3. bekk næsta haust, ef þú vilt ná kenn- araprófi. Það þýðir ekkert fyrir þig að halda áfram hjá mér“. Ég þrjóskaðist við og hélt, að hann bannaði mér ekki að sitja í tímum, þar sem ég væri skráður nemandi. „Þú getur það,“ sagði hann, „en það er þýðingarlaust“. Ég hafði áður fengist við kennslu og hafði sótt námsskeið á Akureyri ein- mitt í þessari grein, svokallaðri hljóðaaðferð í byrjunarlestri barna. Ég hafði því dálitla þekkingu og æf- ingu á kennslusviði þessa kennara, en það vissi hann ekki og ég var ekkert að flíka því. Ég sótti svo tíma til hans eins og annarra kennara. Og tíminn leið. Sumir skólafélagar mínir voru mér mjög hjálpsamir og vildu allt fyrir mig gera og kom mér það oft mjög vel, því stundum var skilningurinn ekki á marga fiska og tíminn oft naumur, þótt ekki stundaði ég dansstaði, bíó- ferðir eða skáldsagnalestur. Allur tíminn fór í skólanámið og hrökk ekki til. Prófin nálguðust og hafði ég bætt mér að nokkru það, sem tapast hafði. Áðurnefndur kennari sá, er á reyndi, að ég var ekki eftirbátur hinna í hans fagi og reyndist hann mér eftir að hinn ljúfmannlegasti og var auð- fundið, að hann vildi bæta fyrir ónotalegheit sín, en aldrei minntist hann á það við mig. Kennaraprófi lauk ég um vorið, eftir heilsufarslegt mótlæti og krapp- an fjárhag. Ég fór ekki í skólaferða- lagið með skólasystkinum mínum. Þurfti að spara. En einn skólabróðir minn sendi mér seinna bréf og myndir frá ferðalaginu. Var þá farið um Suðurland, ekki var það nú lengra í þá daga. Ég giftist Steinunni í próflokin, heima hjá séra Bjarna Jónssyni í Reykjavík. Síðan héldum við heim til átthaganna og að koma á heimaslóðir var hinn besta brúðkaupsferð. Heima er bezt 97

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.