Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 23

Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 23
Mjóifjörður með verslunar- húsum Konráðs Hjálmars- sonar á blómalímanum sem Gísli minnist. Hann saknar hvalanna, sem léku sér í hundraða tali á firðinum. Borgareyrará er þarna í grennd. Nú búa 20-30 manns í Mjóafirði, en sem dœmi má nefna að í hvalstöð Norðmanna í Asknesi voru 300-400 manns fyrir utan skipshafnir um aldamótin. og með öllu Austurlandi sást ekki nokkur hvalur. Á liðlega 10 árum var allur hvalur flúinn, hann var ekki all- ur skotinn. Hvað olli? Fleira en eitt gat komið til. Þá minnist ég frásagnar hins mæta manns Gísla Lárussonar í Stakka- gerði, Vestmannaeyjum. Ég var heimagangur í húsi hans og fjölskyld- unnar, er ég sótti atvinnu til Eyja 1911-1916. Gísli var, að mig minnir mér vera sagt, sigmaður ötull og djarfur, ungur maður og átti hann marga stund í úteyjum, Heimakletti og annars staðar þar sem var fengs von, fugla og eggja. Ef til vill vegna þess að ég var af Mjóafirði þar sem Gísla Lárussyni var kunnugt um, að tvær hvalstöðvar voru, hefur hann spurt mig frétta hvernig veiðarnar gengju og fleira þar að lútandi. Ég hafði unnið ígripavinnu á stöð Ellefsens og var allkunnugur ýmsum Norðmönnum, sem þar störfuðu ár- um saman. Reyndi ég að svara spurningum Gísla eins og ég gat best, og sagði honum, að veiði væri orðin nánast engin og veiðiskipin á báðum stöðvunum þó 12-14. Gat einnig um hina miklu hvalagengd, áður en þeir hófu veiðar eða rétt um þær mundir. Þá sagði Gísli Lárusson mér frá því, er hann eitt sinn af háum sjónarhóli hefði starað undrandi út yfir hafið á hvalatorfur um allan sjó, en mestar suður og vestur af Vestmannaeyjum. Sagðist aldrei myndi gleyma þeirri sýn. Gísli hafði dvalið eitt sumar í húsi foreldra minna fyrir aldamót og tók þá ástfóstri við mig, lítinn dreng- hnokka. Nú hefur hvalur verið veiddur frá hvalstöð í Hvalfirði síðan 1948. Að þeim veiðum eru fjórir veiðibátar, mikið stærri en þeir sem ég minnist frá Mjóafirði. Ganghraði þeirra miklu meiri og eflaust allur búnaður meiri og fullkomnari. Engan dóm ætla ég að fella um veiðar þeirra, sem eru miklu meiri á hvert skip en var á veiðiskipin á Mjóafirði fyrsta áratug þessarar aldar. Og hvalurinn hvarf, flúði að því er virtist algerlega af hafinu öllu austan íslands og hann hefur ekki komið aftur. Annars staðar hljóta skilyrði að vera meiri og betri, svo sem suðvestur og vestur af íslandi. Ég gleymi ekki frásögn Gísla Lárussonar, þegar hann ungur starði undrandi og hugfanginn á hvalamergð um allan sjó suður og vestur af Vestmannaeyjum. Sú mergð er nú löngu horfin, utan nokkrar eft- irlegukindur. Þarna á svæði eru trú- lega lokkandi lífsskilyrði hvala. Hvað lengi? Veit enginn. Gát er á höfð nú, hefur mér skilist og veiðin jöfn og góð frá ári til árs á fjóra veiðibáta móti margföldum bátafjölda á hvalstöðv- unum á Mjóafirði fyrrum. Þess vegna skrifa ég þessar línur, að ég og allur almenningur hef i nokkur ár ekki komist hjá því að hlýða á þrá- látar deilur um hvaladráp annars vegar og algera friðun hins vegar. Það eitt fullyrði ég (eins og máltækið seg- ir), að enginn brunnur er svo djúpur, að ekki verði þurrausinn. Læt ég svo útrætt um hvali, stórhveli, dráp eða friðun. Þá vil ég í fáum orðum geta um síldargengd á Mjóafirði að sögn all- mikið eldri manna þar, sem sögðu mér sögur um síldargengd í fjörðinn og í sambandi við hana fiskigengd mikla. Skulu hér rifjaðar upp tvær af þessum sögum. Það bar við alllöngu fyrir síðustu aldamót, að við klappirnar niður af Krossstekk var eitt sinn þvílík mergð síldar að fyllti hvern vog og skoru milli klappanna svo með ólíkindum var. Menn fóru niður á klappirnar og jusu síldinni upp með fötum. Mikil hálka myndaðist á klöppunum. Einn mannanna gætti sín ekki nægilega vel, féll út af klöppinni í sjóinn. Hann sökk samstundis niður í síldartorfuna, sem jafnskjótt luktist saman yfir höfði hans. Manninum skaut aldrei upp að sagt var. Löngu seinna var kona að skola úr plöggum við Borgareyrará, þar sem mætist árvatnið og sjórinn. Konan stóð á steini í ánni. Veitir hún því at- hygli, að fiskitorfa líður áfram við fætur hennar, þar sem hún stendur á steininum og við nánari eftirgrennsl- an reyndist þetta vera stórsíld. Má geta nærri, hversu mikið hefur verið af henni þegar fjær dró og dýpra. Síldin þrengdist upp í ána eða öllu heldur ármynnið. Á síldin eftir að aukast og vekja at- hafnalífið, vekja af Þyrnirósarsvefni starfið á Mjóafirði, sem er mér svo minnisstætt? Hver veit? Heima er bezt 99

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.