Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 24
Gunnar Guðmundsson frá Hofi Gamlar veiðiaðferðir: Fuglanet Æðarfugl var í upphafi aldarinnar veiddur í fuglanet, sem lögð voru í fjörur. Netið var einn faðmur (eða hálfur annar) á hvern kant.Það var fest við botn á öllum fjór- um hornum með stjóra (yfirleitt steini). Flotholt eða korkur mynduðu samhangandi röð allan hringinn að ofanverðu, en netið náði talsvert niður með böndunum í stjórana, Það varð því í laginu eins og kassi eða skúffa á hvolfi, þegar féll að og flotholtin lyftu netinu. í miðju var netakúla, til að halda netinu uppi þar. í staðinn fyrir kork og netakúlu var hægt að nota sviðna grenistubba. Grenið varð ekki vatnssósa ef hvergi var skilinn eftir ósviðinn blettur á því. Ekki mátti bera fernis eða annað efni á til að verjast vætunni, því það gerði lykt og fældi bæði grásleppu og fugl frá. Ætíð var steinað niður undir miðju netinu, bundið í taug og lyftist í sjónum, yfirleitt innan úr fiski eða grá- sleppu, best var það úr fiski. Agnið var látið undir miðj- una á netinu þegar fór að falla að og staðið yfir því á meðan, svo mávarnir ætu það ekki. Netin voru höfð þar sem bára var lítil, líka undir bryggjum. Það var ekkert farið leynt með þetta. Mest var veitt af og sóst eftir æðarfugli, en alls konar fugl steypti sér og synti undir netið og beit í agnið, en komst ekki undan netinu aftur. Það gátu verið 4-8 fuglar í því í einu, ef vel gekk yfir daginn. Fuglinn var reyttur, sviðinn og saltaður, en hengdur út og geymdur ef frost var. Allur fugl var étinn nema mávur og hrafn. Að minnsta kosti þekktist það ekki á Suður- nesjum. Fuglagrindur Kría og rita voru veiddar í grindur sunnanlands í mínu ungdæmi, annað hvort sjógrindur eða landgrindur. Þær voru svipaðar að gerð. Agnið í grindunum var lifur, sem bundin var á þær. Tvær stórar fjaðrir voru teknar og fanirnar rifnar af, svo fjöðurstafirnir einir voru eftir. Þeir voru festir uppistand- andi hvor sínum megin á grindina. Um þá var snúið hrosshár, hvítt eða svart. Hrosshárið var stamt og rann ekki greiðlega niður af fjöðurstöfunum. Best var það úr faxi. Fjaðrirnar áttu helst að vera af lóm, himbrima eða veiðibjöllu. Þegar fuglinn hafði tyllt sér rétt til að gogga í agnið og vildi hefja sig til flugs á ný, fór hann gegnum snöruna sem hertist um leið að honum. Mikið var veitt af ritu á þennan hátt, en kríunni var oft sleppt. Ritan var ágætur matur. Þessi aðferð var notuð alls staðar þar sem ég þekkti til suður með sjó. 100 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.