Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 3

Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 3
 HEIMA ER BEZT Bolli Gústavsson í Laufási — Honum var ljúft að mála sigur ljóssins yfir myrkrinu 421 12. tbl. 36. árg. DESEMBER 1986 Kr. 100 Hannes Pétursson skáld Fimm tölublöð úr afrétt 427 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Sólskinsblettur í heiði - Leiðari 414 Sigtryggur Símonarson Hermann í Leyningi 430 Heiðrekur Guðmundsson skáld Ný ljóð 416 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Garðsöspin í Fnjóskadal 431 Bolli Gústavsson í Laufási Gagnrýnandinn Kynning á gamalli þýðingu eftir Gísla Guðmundsson 4ZU Helgi Hallgrímsson Um furðuleg vötn í Eyjafirði - Þættir um þjóðtrúar- fræði XI 435 Leó Kristjánsson jarðeðlisfræðingur Þeirbiðu eftirhenni í Dýrafirðinum 438 Björn Egilsson frá Sveinsstöðum Brúarmálið 440 Arinbjörn Árnason Undir álagadómi (VII) Framhaldssagan 443 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Bókahillan 449 myndin er dregin í Dalvísum, fífil- brekkan, flóasundið, Gljúfrabúi, hnjúkafjöllin himinbláu, allt blasir þar við og hvergi nema á Steinsstöð- um. En allt um þetta. Jónas var ná- lægari mér hér i Hjartakershúsum en heima í dalnum sínum. Eg þóttist sjá hópinn stiga út úr vögnunum, dálítið voru þeir þreytulegir og rykugir eftir aksturinn innan úr borginni. Inni i ,stofunni biður þeirra borðið hlaðið vistum, en áður en sest er að snæðingi rísa menn úr sætum, hver með ný- prentað kvæði í höndunum og sam- stundis hljómar „Hvað er svo glatt“ og tónarnir fylla stofuna og berast út um opnar dyrnar út í vorskóginn. En um leið og „gleðin skín á vonarhýrri brá“ læðast tár fram i augu sumra. Vinirnir eru að kveðja, og heimþrá hinna blandast i fögnuðinn. Þarna eru þeir þrir Fjölnismennirnir, fóstbræðurnir, Jónas skáldið, visindamaðurinn Kon- ráð, flestum viðkvæmari en þó um leið meinfyndinn og höfðinginn Brynjólf- ur, öðlingurinn með hjartað, „sem al- drei reikning skildi“, eins og Grímur Thomsen kvað. Og þarna er Jón Sig- urðsson svipmikill en ekki enn kominn í forystu flokksins. Að loknum söng er glösum lyft og drukkin skál heimfar- endanna og allra landa, sem aftur heilsa fósturjörðinni gömlu. Sest er að snæðingi, gleðin skín á hverri brá. Ræður eru fluttar, gamanyrðin fjúka, það er spjallað og sungið. Þetta er góðra vina fundur. Varla hafa þeir stúdentarnir i Hjartakershúsum borið mikil skartklæði, og fátæktin íslenska hefir vissulega fylgt þeim flestum, en því meiri var hin innri auðlegð, skáld- legar sýnir og raunsæjar framtíðar- vonir sumar þó ef til vill dálítið draumkenndar. Fjölnistímabilið er að hefjast. Tímabilið, sem aldrei má gleymast meðan islensk tunga er töluð. Það er að vora i íslenskri menningu. Ég hrekk upp af þessum hugleið- ingum og draumsýnum. Því miður er ég ekki skyggn, hvorki á liðna atburði né ókomna. Sé einungis það, sem fá- tækt ímyndunarafl fær skapað. Skógarvarðarfrúin vill fá að vita sem nánast um þennan atburð og bið- ur okkur að skrifa kvæðið í bók, sem hún safnar í minjum úr sögu Hjarta- kershúsa. Það er fúslega gert. Við kveðjum hjónin og þökkum þeim alúðlegar viðtökur og fróðleik um húsið og ökum síðan aftur inn í borgarglauminn og karnivalsgleði Kaupmannahafnarbúa. Enn hefir mér veist ein ánægjustund i minningasjóð langrar æfi. Eg hefi leyst pílagrímsferð af hendi. Ég hefi heimsótt Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn. I dimmu skammdegi hefi ég horfið inn í heim minninganna, heim til sólar og sumars, og óska yður öllum gleði- legra jóla og yls hækkandi sólar. St. Std. Heima er bezt. Þjóðlegt heimilisrit. Stofnað árið 1951. Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnssonar. Ritstjóri: Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Ábyrgðarmaður: Geir S. Björnsson. Fulltrúi ritstjórnar: Bolli Gústavsson í Laufási. Heimilisfang: Tryggvabraut 18-20, pósthólf 558, 602 Akureyri. Sími 96-22500. Áskriftargjald kr. 840.00. í Ameríku USD 25.00. Verð stakra hefta kr. 100.00. Prentverk Odds Björnssonar hf. Heimaerbezt 415

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.