Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 9
& - Honum var Ijúft að mála sigur Ijóssins yfir myrkrinu - Þáttur um Magnús Jónsson prófessor, tekinn saman af Bolla Gústavssyni í Laufási Á forsíðu Heima er bezt er að þessu sinni vatnslitamynd af Akureyri og útverði Eyjafjarðar, Kaldbaknum. Er líklegt að myndin sé gerð skömmu eftir 1940. Á þvi ári var Akureyrar- kirkja vígð (17. nóv. 1940), en turna hennar ber við himin á myndinni. Listamaðurinn hefur hins vegar hvorki sett ártal né nafn sitt á þetta vel gerða listaverk. Kunnugum dylst ekki, að nokkur breyting hefur orðið á Fjörunni, þ.e.a.s. syðsta eða innsta hluta Aðalstrætis, síðan mynd þessi var máluð. Magnús Jónsson hefur staðnæmst með pentlistargögn sín neðst í brekkunni sunnan við Aðalstræti 87. Það hús var ekki risið þá, heldur stóð þar lítill torfbær, sem sést fremst á myndinni og gekk undir nafninu Sibbukofi. En mesta breytingin, sem orðin er síð- an, varð þegar svonefnd Drottningarbraut var byggð frammi á Leirunni, enda setur hún nú mikinn svip á þennan elsta hluta Akureyrar. Var hún nefnd eftir Margréti Þórhildi Danadrottningu, sem kom í heimsókn til höfuð- borgar Norðurlands um það leyti, sem brautin varð öku- fær. Þessi litla vatnslitamynd er úr miklu og merku safni smámynda, sem Magnús skildi eftir sig. Hafði hann fyrir venju, þegar hann var á ferðalögum, bæði innan lands og utan, að taka með sér pappír og liti. Þegar hann sá áhuga- verð eða hrífandi mótíf, settist hann gjarnan niður með fyrrgreind föng og var ekki lengi að festa á pappírinn það sem augun námu og reyndar meira til. Sennilega mun þessi litla mynd teljast til þeirra verka, sem byggja á impress- ionisku viðhorfi, eins og mikilvægi birtunnar, snöggri and- rá blæbrigðanna og kvikum pensildráttum. En í 2. bindi & Heima er bezt 421

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.