Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.12.1986, Blaðsíða 11
hafa stælt eftir myndum Jóns „með dæmalausu kjarkleysi.“ Þegar hann kom svo heim í föðurgarð, fór hann að reyna að mála landslagið þar úti á nesinu. Sjálfur kveður Magnús þau verk, sem hann vann þá hafa verið „afar litlar myndir, blóðlausar, þurrar á hörundið og veiklulegar. Ég á þær enn sumar, þessar hryggðarmyndir sannleiksástarinnar og fórnardýr samviskuseminnar. Ég gæti best trúað, að á dómsdegi rísi þær upp og verði góðir talsmenn mínir.“ En rétt er að bæta því hér við, að Magnús nam svo að segja allan skólalærdóm fyrir stúdentspróf heima hjá föður sín- um, sat aðeins þennan eina vetur í Lærða skólanum. III Éorvitnilegt er að rekja óvenjulega fjölþættan starfsferil Magnúsar Jónssonar og drepa aðeins á fræði- og ritstörf, sem út af fyrir sig eru drjúgt ævistarf. Eftir að hafa lokið embættisprófi árið 1911 eða um það leyti sem Háskóli íslands var stofnaður, þá réðst Magnús prestur til Tjald- búðarsafnaðarins í Winnipeg þegar um mitt sumar og þjónaði þar fyrir séra Friðrik Bergmann til hausts. Ári síðar, um það leyti sem hann kvæntist Ingveldi Bennie Lárusdóttur prests í Selárdal Benediktssonar, þá bjuggu þau, ungu hjónin, ferð sína vestur um haf. Var Magnús ráðinn prestur til Garða- og Þingvallasafnaða í Norður- Dakota í Bandaríkjunum. Hafði hann hlotið vígslu 28. júni sama ár. Var hann mjög skyldurækinn prestur og kvað náinn samstarfsmaður hans, Ásmundur Guðmundsson síðar biskup, Magnús hafa vandað ræður sínar mjög og orðið framúrskarandi prédikari. Sagðist hann engan hafa !». í. 2 þekkt, sem hafi verið léttara um mál en honum. Þá ritaði hann jafnframt á þessum árum í tímaritið Breiðablik trú- málagreinar, sem vöktu athygli margra. Eftir þriggja ára prestsþjónustu þar vestra sótti séra Magnús um ísafjörð og var veitt brauðið 15. júlí 1915. Þarstaldraði hann aðeinsvið í tvö ár, því þann 25. desember 1917 var hann ráðinn kennari í guðfræði við Háskóla íslands. Mun veil heilsa hans hafa ráðið nokkru um það, að hann skipti um starf, því vel hafði honum líkað að þjóna á Isafirði og notið þar mikilla vinsælda sóknarfólks. Þegar Magnús var sjötugur að aldri minntist hann prestsstarfsins á ísafirði á þessa leið: „Messurnar í ísafjarðarkirkju eru eins og ljós, sem lýsa mér enn í ellinni og ylja inn að hjartarótum. Það er ekki nema einn til, sem gefur manni slíkar gjafir, alveg óverðskuldað Háskólakennsla var aðalæfistarf Magnúsar í 30 ár, 1917-’47. Kennslugreinar hans voru kirkjusaga og Nýja testamentisskýring. Hann var oft forseti guðfræðideildar og Háskólarektor var hann 1930-’31. Hann bar hag Háskólans mjög fyrir brjósti og átti fyrstur hugmyndina um Happ- drætti Háskólans og ræddi hana við vini sína í stjórn skól ans. Síðar átti hann þess kost að veita þessari mikilvægu fjáröflunarleið brautargengi á Alþingi. Ymsir guðfræðingar hafa lýst Magnúsi sem kennara og einn þeirra, sem ég kann ekki deili á, minntist hans á þessa leið: „Frá guðfræðináminu, hygg ég, að við nemendur hans allir eigum þær minningar um hann, að okkur birti fyrir augum og hlýni í hug, nær sem við sjáum nafn hans eða heyrum það nefnt. .. . Kennslustundir Magnúsar Jónsson- ar í Háskólanum munu nemendum hans líða seint úr minni. Komu þar til greina hinar fjölþættu gáfur hans, sem hann varð snemma þjóðkunnur af.. . . Lærdómur hans var Á ------- ---------í)M Heimaerbezt 423

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.