Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 15
HANNES PÉTURSSON: Fimm tölublöð úr afrétt 1. Ég var þrjú sumur kúskur á Öxnadalsheiði, 1943-45, í vegavinnuflokki Rögnvalds Jónssonar, Kota-Valda sem almenningur kallaði, því hann bjó um tíma á Ytri-Kotum í Norðurárdal, en átti síðar lengi heima á Sauðárkróki. Ekki ætla ég hér að rifja upp veru mína á Öxnadalsheiði, heldur langar mig að segja lítið eitt frá prentuðu blaði þaðan úr afréttinni, Heiðarbúanum, sem kom út 1940, fimm tölublöð. Heiðarbúinn bar undirtitil: Blað vegavinnu- og varðmanna og var settur og prentaður á Akureyri (POB), en útgáfustaðurinn var Öxnadalsheiði. Vissu menn ekki dæmi þess að formlegt blað hefði fyrr komið út hér á landi í óbyggð. Ritstjórarnir voru tveir piltar, báðir 21 árs að aldri: Kristmundur Bjarnason frá Mælifelli, nýorðinn stúdent, og Steingrímur Bernharðsson frá Akureyri, sem lauk kennaraprófi þá um vorið. Síðan er mikið vatn til sjávar runnið. Nú er annar þeirra þjóðkunnur fræðimaður á Sjávarborg í Skagafirði, hinn bankastjóri á Akureyri. Ég heyrði Heiðarbúans fyrst getið, svo ég muni, þegar ég var kúskur. Einhverjir karlanna, sem unnið höfðu á Öxna- dalsheiði sumurin áður, færðu blaðið í tal — og svo bú- drýgindalega að mér skildist að fyrirtækið yrði eftirleiðis til fremdar Kota-Valda-mönnum yfirleitt. Ég lagði við eyra forvitinn. Annan ritstjóranna, Kristmund, þekkti ég per- sónulega, því ég var þrjú sumur í sveit hjá fósturforeldrum hans á Mælifelli, síðast 1940, einmitt þegar Heiðarbúinn fór ferða sinna. Kristmundur skrapp heim úr vegavinnunni um helgi og helgi, en það vitnaðist mér aldrei þá, líklega fyrir bernsku sakir, að hann væri að ritstýra blaði í Silfra- staðaafrétt. Á Öxnadalsheiði 1940. Heiðarbúinn er nú fyrir mörgum árum orðinn kolfágætt rit. Páll heitinn Jónsson bókavörður tjáði mér að 5. tölu- blaðið væri þó „langsamlega torgætast“, og honum tókst aldrei að afla sér þess, en átti hin tölublöðin. 2. Kristmundur Bjarnason var hvatamaður að útgáfu Heið- arbúans. Hann lagði og miklu mest til blaðsins, ýmist með skrifum frá eigin brjósti, þýðingum eða söfnun efnis héðan og þaðan. í hlut Steingríms Bernharðssonar kom framar öðru að útvega auglýsingar á Akureyri og ,tala við prent- smiðjuna1. Hann tók með sér handrit í blaðið þegar hann fór heim í helgarfríum. Þeir félagar riðu á vaðið 26. júlí 1940, en síðasta tölu- blaðið kom út 13. september. Vinnuflokkur Rögnvalds Jónssonar varð að taka sig upp þá síðsumars og flytja tjöld sín og varning niður í Blönduhlíð; Dalsá hafði hlaupið rétt einu sinni, og þurfti að stemma stigu fyrir henni á þjóð- leiðinni þar í sveit. Aldrei var í ráðagerð að Heiðarbúinn ætti sér athvarf annars staðar en á Öxnadalsheiði, og því féll útgáfa hans niður sjálfkrafa þegar í Blönduhlíð kom. Eins og undirtitill Heiðarbúans vísar til, þá var hann blað vegavinnu- og varðmanna. Ekki skal sagt. hve greiðlega blaðið rataði til varðmanna sem gættu mæðiveikigirðinga uppi á hálendi, en hann barst með vissu sumum varð- mönnum öðrum, þ.e. hliðvörðum í þjóðbraut. Dreifing og sala Heiðarbúans gekk vonum betur, sé litið á aðstæður. Blaðið var selt farþegum áætlunarbílanna sem fóru nokkrir saman í lest um Öxnadalsheiði suður og að sunnan hvern dag — ýmist frá Steindóri eða BSA — og Undirbygging á vegi í Flóanum á Öxnadalsheiði 1940. Heima er bezt 427

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.