Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.12.1986, Qupperneq 27
jarðar. Meðal þess sem hann reyndi einnig að skýra með kenningum sínum og tilraunum, voru hringir Satúrnusar, halar halastjarna, og uppruni alheimsins. Birkeland taldi mjög líklegt, að halastjarna Halleys mundi geta haft áhrif á lofthjúp jarðar og agnastrauma frá sólu, erhún væri í næsta nágrenni okkar í maímánuði 1910. Ritaði hann greinar og dreifibréf með hvatningu til jarð- vísindamanna um að gera sem ítarlegastar athuganir á segultruflunum, jarðstraumum, ljósfyrirbrigðum í and- rúmsloftinu og öðrum atburðum sem tengja mætti hala- stjörnunni. Gerði Birkeland síðan sjálfur athuganir frá fjallstindi ofan við Kaafjord í maí og júní 1910. Angenheister kemur til sögu Einn þeirra sem fengu áhuga á halastjörnunni, var Gustav Angenheister, þá aðstoðarkennari í jarðeðlisfræði við há- skólann í Göttingen. Angenheister hélt með mælitæki (2) til íslands vorið 1910, þar eð búist var við sérstaklega miklum áhrifum halastjörnunnar í norðurljósabeltinu. Voru mælitæki hans heldur meiri og betri en útbúnaður fyrra leiðangurs, og að auki hafði hann tæki til að mæla skautun sólarljóssins. Angenheister og samstarfsmaður hans, A. Ansel, gerðu stans í Reykjavík og héldu þar meðal annars uppi spurnum um silfurberg fyrir þýska sjóntækjaframleiðendur. „Hie- rúber ist an anderer Stelle mehrfach von uns berichtet worden“ (2). Þann 27. apríl komust þeir til Þingeyrar og settust að í hvalstöðinni að Framnesi, sem nú var yfirgefin. Mælingar hófust 4. maí og biðu þeir Angenheister eftir að jörðin færi gegnum hala halastjörnunnar að morgni hins 19. maí. Höfðu aðrir reyndar spáð heimsendi af hennar völdum, og varð ýmsum ekki svefnsamt um nóttina. Fátt sást þó til halastjörnunnar þar vestra þegar til kom og komu engar óeðlilegar breytingar fram á mælum Þjóðverjanna þessa daga. Að vísu var segulsviðið órólegt þá, en þær truflanir stóðu greinilega í tengslum við mikla blettavirkni á sólu. Af þessum og öðrum athugunum í maí 1910 hafa menn væntanlega getað dregið þá ályktun að stjörnuhalinn væri alltof þunnur til þess að hafa mælanleg áhrif á jörðu niðri. Fauk mælingunum í Dýrafirði um mánaðamótin, en gerð- Hér á ísafirði flaug nýlega sú flugufregn um allan bæinn, að heljarmikið sjávarflóð ætti að hremma okkur núna. ein- mitt í dag, og þar með fylgdi skelfilegur vindbylur: átti þetta að stafa af halastjörnunni, og verið símað frá vísindamönn- unum þýzku á Dýrafirði(H). Hafa all-margar gamlar konur og unglingar skeífst af þessu. sem von er; enda hefir þessi uppspuni aukist og margfaldast miklu meir en hér er frá honum sagt. Er það illa gert að vera að skrökva upp svona óskemmti- legum „viðburðum", því að til eru svo margar manneskjur, sem trúa þeim og æðrast, þó að þær lifi nú á hinni mentun- arríku tuttugustu öld. Vestri, tsafirði 30. upril 1910. Útreiknaðar straumlínur fyrir segulstorm 15. des. 1902. ar voru nokkkrar segulmælingar á viðkomustöðum á heimleið. Stuttu eftir íslandsleiðangurinn varð Angenheister pró- fessor að nafnbót, og tók hann 1914 við stjórn rannsókna- stöðvar á Samoa. Eftir heimkomu 1921 settist hann að í Potsdam um skeið, en varð svo forstöðumaður jarðeðlis- fræðideildar Göttingenháskóla 1928 og gegndi því embætti uns hann lést í stríðslok (3). Þekktastur er Angenheister fyrir rannsóknir á yfirborðsbylgjum frá jarðskjálftum. Tengsl við síðari leiðangra Ekki er mér kunnugt um að neitt beint framhald hafi orðið hér á íslandi á þessum norðurljósarannsóknum. Óbein tengsl má þó rekja sér til gamans. Meðal annars voru að líkindum tvö skyldmenni A. Ansels hér við þyngdarmælingar í merkum leiðangri Niemczyk o.fl. til rannsókna á jarðsprungum 1938. Síðan var G. Angenheister yngri, sonur þess sem fyrr var nefndur, pró- fessor í jarðeðlisfræði við háskólann í Múnchen 1957-84. Starfsmenn þaðan gerðu segulsviðsmælingar hérlendis í jarðfræðilegum tilgangi um 1970, og stóðu framarlega í miklu fjölþjóða jarðsveiflu- og jarðstraumaverkefni á Is- landi 1977 (RRISP-verkefnið). Nokkrir Islendingar hafa dvalið við nám eða rannsóknir í jarðeðlisfræðideild Múnchenarháskóla á undanförnum áratugum, og notið þar hinnar bestu fyrirgreiðslu. Má því segja, að hala- stjörnurannsóknirnar í Dýrafirðinum 1910 hafi orðið ís- lenskum vísindum að nokkru gagni. HEIMILDIR: (1) Kr. Birkeland: The Norwegian Aurora Polaris Expedition 1902-1903. Volume 1: On the Cause of Magnetic Storms and the Origin of Terrestrial Magnetism. First Section, Aschehoug & Co., Cristiania 1908. Second Section. Aschehoug & Co„ Cristiania 1913, 801 bls.. 42 kort. (2) G. Angenheister og A. Ansel: Die Island-Expedition im Fruhjahr 1910. Nachr. von der Königlichen Gesellschaft der Wissenschaften zu Göttingen. Math.-phys. Klasse, 19, Heft 1, 42-111 og nokkur kort, Berlin 1912. (3) O. Förtsch: Gustav Heinrich Angenheister. Gerlands Beitrage zur Geophysik 61 (4), 291-295. 1950. Heimaerbezt 439

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.