Heima er bezt - 02.10.1986, Síða 18
TIL I RÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR
GUNNAR BJARNASON:
ÆTTBÓK OG SAGA
íslenzka hestsins á 20. öld (I).
Þcssi bók kom fyrst út árið 1968 og hlaut frá-
bærar viðtökur, enda er bókin glæsileg í alla
staði. Bókin seldist upp á skömmum tíma, en
nú hefur hún verið endurprentuð. Sjálf ætt-
bókin nær yfir rúma 560 skráða kynbótahesta
á árunum 1920-1969. Einnig er í bókinni
starfssaga Gunnars Bjarnasonar fyrir árin
1940-1950 og félaga-annáll hrossaræktarfélaga
frá upphafi til 1960. Hestamennska færist æ
meir í vöxt og í stað þess að vera vinnudýr
er hesturinn nú, frekar en áður, yndisgjafi og
félagi.
Bók 272 HEB-verð kr. 900,00
GUNNAR BJARNASON:
ÆTTBÓK OG SAGA
íslenzka hestsins á 20. öld (II).
Þetta er annað bindi Ættbókar og sögu ís-
lenska hestsins á 20. öld. Fyrir 18 árum kom
fyrsta bindið út og fjallaði það um stóðhesta,
en nú er fjallað um kynbótahryssur. Hér eru
birtar lýsingar á flestum skráðum og völdum
undaneldishryssum landsins frá aldarbyrjun til
1970, eða þær sem komið hafa við sögu í kyn-
bótastarfinu, alls um 3500. í bókinni eru
einnig glefsur úr starfssögu Gunnars og er
óhætt að fullyrða að þar er hressilega skrifað.
Bók 413 HEB-verð kr. 900,00
GUNNAR BJARNASON:
ÆTTBÓK OG SAGA
íslenzka hestsins á 20. öld (III).
Þetta er þriðja bindi hins mikla ritverks Gunn-
ars Bjarnasonar hrossaræktarráðunauts. Þessi
bók er sérlega glæsileg í alla staði og nauðsyn-
leg öllum áhugamönnum um íslenska hrossa-
rækt. í þessu bindi er haldið áfram, þar sem
frá var horfið í öðru bindi, við að fjalla um
kynbótahryssur. Hér eru birtar lýsingar á flest-
um skráðum og völdum undaneldishryssum
landsins frá aldarbyrjun fram til ársins 1970.
í þessu bindi er fjallað um ættbókarfærðar
hryssur frá Eyjafirði, austur um og allt til
Borgarfjarðar. í þessu bindi, eins og hinum
fyrri, er starfssaga Gunnars og er hér fjallað
mikið um útflutning hrossa og baráttu Gunn-
ars við að vinna íslenska hestinum markað er-
iendis.
Bók 424 HEB-verð kr. 900,00
GUNNAR BJARNASON:
ÆTTBÓK OG SAGA
íslenzka hestsins á 20. öld (IV).
Lokabindi stórvirkis Gunnars Bjarnasonar.
Hann hefur hlotið mikið lof fyrir þetta ein-
stæða ritverk sitt, bæði hérlendis og erlendis,
enda er Ættbókin komin út í þýzkri þýðingu.
í IV. bindinu eru m.a. ættarskrár 380 stóð-
hesta, leiðbeiningar um hrossakynbætur, auð-
skilin erfðafræði og skýringar á myndum gæð-
ingaættstofna innan íslenska hestakynsins.
Hundruð mynda og tugir litmynda, þar á með-
al litmyndaraðir með nöfnum á litum íslenskra
hesta. Ættbókin nær fram á Vindheimamela-
mótið sumarið 1982. í þessu bindi birtist líka
eina ættskráin yfir útflutta stóðhesta sem til
er. Loks er í bindinu risavaxin nafnaskrá yfir
öll 4 bindin, með þúsundum nafna manna og
hesta.
Bók 427 HEB-verð kr. 1350,00
GEORGE J. HOUSER:
SAGA HESTALÆKNINGA
Á ÍSLANDI
Vönduð, stórmerkileg og þjóðleg bók, sem
fjallar um samskipti manns og hests allt frá
söguöld og fram á þennan dag.
Bók 376 HEB-verð kr. 350,00
STANLEY H. PRETORIUS og
STGURÐUR L. PÁLSSON:
ÁGRIP ENSKRAR
MÁLFRÆÐI
I þessu handhæga ágripi eru öll helztu atriði
enskrar málfræði í samanþjöppuðu formi. -
8 bls.
Bók 254 (ób.) HEB-verð kr. 40,00
ÓLAFUR JÓNSSON:
DYNGJUFJÖLL OG ASKJA
Bókin er sérlega handhæg og hæfilega stór í
vasa og því tilvalinn leiðarvísir öllum þeim,
sem ferðast vilja um þessi öræfi, en einnig
skemmtileg og fróðleg til aflestrar heima í
stofum. 96 bls. með fjölda mynda, þar af 2
litmyndirfrá Öskjugosinu 1961.
Bók 99 (ób.) HEB-verð kr. 100,00
ÓLAFUR JÓNSSON:
BERGHLAUP
Flestir þekkja hin gagnmerku ritverk Ólafs
Jónssonar ,,Ódáðahraun“ og „Skriðuföll og
snjóflóð“, þar sem á lifandi hátt er fléttað
saman jarðfræði og sögu. Enn kemur hér stór-
verk um íslenska náttúru eftir Ólaf, árangur
af áratuga grúski, að vísu, eins og löngum
áður hjá Ólafi, aukastarf með erli hins daglega
brauðstrits.
Bók 964 HEB-verð kr. 600,00
ÓLAFUR JÓNSSON:
STRIPL í PARADÍS
Pað hefur lengi verið á vitorði æði margra að
Ólafur Jónsson ætti í fórum sínum handrit af
smellnum sögum. Þetta vissu þeir sem heyrt
höfðu Ólaf Iesa eins og eina þeirra upp á
mannamótum; kannski á slægjuhátíð í sveit.
kannski á Austfirðingamóti í norðlenskum bæ.
Og hver sá sem hlustaði á þessar sögur
sannfærðist um það, að náttúruskoðarinn,
Ólafur Jónsson, átti fleira í fórum sínum en
Ódáðahraun, belgjurtir og berghlaup. Sögurn-
ar í þessari bók einkennast af þeim lipurleika
og þeim einfaldleika í frásögn sem eitt gerir
sögu ljúfan lestur.
Bók 974 HEB-verð kr. 180,00
VALD. V. SNÆVARR:
GUÐ LEIÐIR ÞIG
Kristin fræði handa ungum börnum. Bókin er
tileinkuð íslenskum mæðrum, því að þær hafa
,,svo öldum skiptir verið fyrstu kennarar
barna í kristnum fræðum." Prýdd litmyndum.
56 bls.
Bók 12 (ób.) HEB-verð kr. 50,00
BJARNI JÓNSSON frá Unnarholti:
ÍSLENZKIR
HAFNARSTÚDENTAR
I þessari einstæðu og stórmerku bók er saman
safnað upplýsingum um alla íslendinga sem
stundað hafa nám við Kaupmannahafnarhá-
skóla frá stofnun hans árið 1479.
Bók 166 HEB-verð kr. 500,00
STEINDÓR STEINDÓRSSON
frá Hlöðum:
ÞÆTTIR ÚR
NÁTTÚRUFRÆÐI
Enda þótt bók þessi sé fyrst og fremst ætluð
til kennslu í menntaskólum, þá munu án efa
allir þeir, sem áhuga hafa á náttúrufræði, lesa
hana sér til fróðleiks og ánægju.
Bók 237 (ób.) HEB-verð kr. 150,00
18 Bókaskrá