Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 10
ENDI RVIINMNGAR OG ÆVISÖGUR JÓN GÍSLI HÖGNASON: GENGNAR LEIÐIR I Fólkið kemur sjálft til dyranna eins og það er klætt og leiftrar af minningabrotunum. Sviðið er vítt, en merkastar munu þykja frá- sagnirnar af atvinnu- og búsetuþróun á Suður- landi. Bók 433 HEB-verð kr. 630,00 JÓN GÍSLI HÖGNASON: GENGNAR LEIÐIR II Þetta er sjötta bók höfundarins, sem hefur getið sér orð fyrir viðtöl og frásagnir. í bókinni eru sagnir 7 viðmælenda. Bókin er 197 bls. með mörgum myndum og ítarlegri nafnaskrá. Bók 460 HEB-verð kr. 780,00 JÓN GÍSLI HÖGNASON: YSJUR OG AUSTRÆNA I Sagnaþættir mjólkurbilstjóra á Suðurlandi. Gísli skráir sagnaþætti eftir bílstjórunum sjálfum. Þeir voru meira en mjólkurflutninga- menn, þeir útréttuðu fyrir bændur og voru sannkallaðir bjargvættir. I ritverkinu er sagt frá bernskuárum Kaupfélags Árnesinga og Mjólkurbús Flóamanna. Ysjur og austræna er sérstætt framlag til sunnlenskrar sagnaritunar og fjallar um einstakt tímabil í atvinnusögu þjóðarinnar. Bók 430 HEB-verð kr. 550,00 JÓN GÍSLI HÖGNASON: YSJUR OG AUSTRÆNA II I síðara bindinu koma enn fleiri frásagnarm- enn til sögunnar og fylla myndina af þessari ,,Heimsbyllingu í Flóanumeins og Björn Þorsteinsson sagnfræðiprófessor við Háskóla fslands kallaði tímabilið í lofsamlegum ritdómi sínum um fyrra bindið. Bók 438 HEB-verð kr. 1.100,00 JÓN GÍSLI HÖGNASON: VINIR í VARPA Gísli á Læk, eins og hann er jafnan nefndur af samferðamönnum sínum, er roskinn bóndi úr Árnessýslu. I þessari gagnmerku og skemmtilegu bók rekur hann endurminningar sínar frá æsku og uppvexti á fyrstu áratugum þessarar aldar. Ljóslifandi er lýsing hans á búskaparháttum þess tíma, samskiptum við menn og málleysingja í blíðu og stríðu. Það gneistar af minningaeldi hins greinda bónda og frásögnin öll hefur ótvírætt menningarsögu- legt gildi. Bókina prýða margar Ijósmyndir og í bókarlok er ítarleg nafnaskrá. Bók 414 HEB-verð kr. 450,00 GREVILLE WYNNE: MAÐURINN FRÁ MOSKVU Hér er, í fyrsta sinn, sagt frá einhverju furðu- legasta njósnamáli, sem um getur. Hersteinn Pálsson þýddi bókina, er hefur verið metsölu- bók austan hafs og vestan. 254 bls. Bok 268 HEB-verð kr. 300,00 FRIÐRIK HALLGRÍMSSON: MARGSLUNGIÐ MANNLÍF í þessari bók rekur Friðrik Hallgrímsson frá Ulfsstaðakoti í Skagafirði æviminningar sínar. Friðrik er stálminnugur þó kominn hafi verið á níræðisaldur þegar hann skrifaði bókina og frásögn hans er leikandi létt og hann fer ekki dult með skoðanir sínar á mönnum og málefn- um sinnar samtíðar. Btík 407 HF.B-verð kr. 400,00 GUÐMUNDUR FRIMANN: ÞANNIG ER ÉG VILJIRÐU VITA ÞAÐ ,, . . . þegar ég neitaði öllum játningum gerði Mundi Björns sig líklegan til að fremja þennan voðaverknað, tók mig fangbrögðum og dró mig að einni beljunni. F.n heiður minn var í húfi. Hefði nafna mínum frá Veðramóti tekist þessi ómannúðlega aðför í Skarðsfjósinu hefði það sennilega verið í fyrsta og eina skipti sem upprennandi skáld á Islandi var hengt í kýr- hala.“ Þannig er ég er saga full af gáska og fjöri Par segir frá m.a. leik og lærdómi, frá öskutrogsbrúðkaupi, frá kynjakvistum og kvæðamönnum. Bók 973 HEB-verð kr. 300,00 PÓRARINN ELÍS JÓNSSON: MINNINGAR FRÁ LEIRHÖFN Höfundur þessarar bókar réðst sem smali að stórbýlinu Leirhöfn á Sléttu árið 1915, til Helgu Sæmundsdóttur húsfreyju sem þar bjó ásamt sonum sínum. Hann ólst þar upp á þroskaárum sínum og tók miklu ástfóstri við heimilisfólkið, enda er bókin tileinkuð Helgu Sæmundsdóttur og sonum hennar. Höfundur rekur hér minningar sínar frá þess- um árum, enda hefur honum orðið þetta tíma- bil ævi sinnar ógleymanlegt. Þar varð hann fyrir lífsreynslu sem gjörbreytti lífsferli hans. Fjöldi fólks kemur við sögu og frásögnin er gædd nærfærni og hlýju. Bók 968 HEB-verð kr. 780,00 SÆMUNDUR DÚASON: EINU SINNI VAR (I) Sæmundur segir sögu sína frá bernsku til efri ára á látlausan og hrcinskilinn hátt. Bók 228 HEB-verð kr. 300,00 SÆMUNDUR DÚASON: EINU SINNI VAR (II) í þessu öðru bindi endurminninga Sæmundar Dúasonar breytir höfundur um svið. Hann hefur lokið við að segja sína eigin ævisögu, en ritar nú sérstaka sagnaþætti af ýmsum mönnum, sem hann var samtíða. Bók 243 HF.B-verð kr. 300,00 SÆMUNDUR DÚASON: EINU SINNI VAR (III) í þessu bindi bregður Sæmundur upp skýrum myndum af lífi og starfi aldamótakynslóðar- innar. Bók 297 HF.B-verð kr. 300,00 10 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.