Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 13
ENDURMINNINGAR OG ÆYISÖGUR BIRGIT TENGROTH: ÉG VIL LIFA Á NÝ Hin kunna sænska leikkona og rithöfundur, Birgit Tengroth, hefur skrifað 10 skáldsögur, sem vakið hafa athygli fyrir djarfa efnismeð- ferð. Hún giftist Jens Otto Kragh fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og hjónaband þeirra, sem varð nokkuð stormasamt, var til- valið efni í óteljandi slúðursögur. Hér rekur hún endurminningar sínar frá þessu tímabili og hcnni hefur verið borið það á brýn í dönsk- um blöðum, að myndin sem hún dregur upp af fyrrverandi eiginmanni sínum sé heiftúðug, bókin sé einhliða varnarskjal. En bókin er tví- mælalaust glæsilega skrifuð og hrífur lesand- ann. Hún sýnir okkur að kona getur elskað mann, jafnvel þótt henni finnist hann hafa eyðilagt líf sitt. Bók 382 HEB-verð kr. 300,00 i l i LOBSANG RAMPA: ÞRIÐJA AUGAÐ Sigvaldi Hjálmarsson þýddi. Þessi bók hefur þótt afar forvitnileg á Vestur- löndum. Hún varpar ljósi á fjölmargt í lífshátt- um Tíbetbúa, sem löngum hafa verið hjúpaöir mikilli dul. Myndskreytt. 230 bls. Bók 259 HEB-verð kr. 300,00 PAUL-EMIL VICTOR: UPP Á LÍF OG DAUÐA Hinn heimsfrægi franski landkönnuður og rit- höfundur segir hér sanna og ævintýralega sögu. Bók 282 HEB-verð kr. 300,00 VORÞEYR OG VÉBÖND Minningarbók um Bjarna í Blöndudalshólum Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu gef- ur út þessa bók til minningar um Bjarna Jón- asson hreppstjóra, kennara og fræðimann. Hann lagði grunn að ættfræðibókasafni hér- aðsskjalasafnsins og ánafnaði safninu öll handrit sín. Pétur Sigurðsson, Skeggstöðum, hafði umsjón með útgáfu bókarinnar auk þess sem hann rit- ar æviágrip Bjarna. Pessi bók er góður fengur öllum þeim sem áhuga hafa á ættfræði og þjóðlegum fróðleik. Bók 978 HEB-verð kr. 1.800,00 ÆVEVnNNINGAR PÉTXJRS ÓLAFSSONAR bónda á Hranastöðum Bókin er gefin út með það í huga að hún eigi erindi við unga sem aldna. Pær myndir liðinn- ar tíðar á æviskeiði Péturs Ólafssonar, sem þar eru dregnar í eigin frásögn eiga erindi, ekki síst til hinnar yngri kynslóðar, sem hollt er að leiða hugann við og við að lífskjörum forfeð- ranna. Einnig má ætla að við lesturinn rifjist upp hjá rosknu fólki eitt og annað í frásögn- inni. Bókin á að vera og er hlutlaus mynd úr lífi Islendings, sýnir skin og skugga og á að vera dægradvöl fróðleiksfúsum lesendum. Bókinni fylgir ítarleg nafnaskrá. Bók 977 HEB-verð kr. 1.700,00 Bókaskrá 13

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.