Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 12
ENDURMINNINGAR OG ÆVISÖGUR * VALTÝR GUÐMUNDS- SON frá Sandi: FÓTATAK Frásagnir úr atvinnulífi, ferðalögum og fleiru. Fróðleg og skemmtileg bók. Bók 451 HEB-verð kr. 600,00 ENDUR- MINNINGAR ÞÓRIS BERGS- SONAR Þessi meistari smásagnanna ólst upp í Skagafirði og á Snæfellsnesi, gerðist opinber starfsmaður í Reykjavík, en sinnti ritstörfum sínum í hjáverkum. Það kom þó ekki í veg fyrir, að lærðir og leikir skipuðu honum á heiðursbekk rit- höfunda okkar. Hannes Pétursson og Krist- mundur Bjarnason sáu um útgáfuna, en formálsorð eru eftir Guðmund G. Hagalín. Bók 446 HEB-verð kr. 680,00 ÞÓRIR BERGSSON ENDURMINNINGAR G. J. WHITFIELD: HÁLFA ÖLD Á HÖFUM ÚTI Ein besta sjóferðasaga frá eldri og yngri tímum. Sigurður Björgólfsson íslenskaði. Bók 144 HEB-verð kr. 250,00 ELY CULBERTSON: ENDURMINNINGAR I-II Höfundur segir frá ævintýralegum æviferli sín- um frá því að hann var að alast upp í Rúss- landi og þar til hann er sestur við spilaborðið í Ameríku. Frásögnin er spennandi. Tvö bindi í fallegu geitarskinnsbandi. Brynjólfur Sveins- son fyrrv. menntaskólakennari þýddi. 670 bls. Bók 162 HEB-verð kr. 600,00 OCTAVE AUBRY: EUGENÍA KEISARADROTTNING Hér segir frá ævintýralegri ævi Eugeníu drottningar Napóleons III. Hrífandi frásögn. Bók 141 HEB-verð kr. 300,00 A. H. RASMUSSEN: SÖNGUR HAFSINS Fáir menn í Noregi - ef þá nokkrir - hafa lifað slík ævintýri sem höf. þessarar bókar, Rasmussen. Hann hefurfarið mörgum sinnum umhverfis hnöttinn og búið árum saman í Kína. Þessi bók er ekki endurminningar höf- undar í venjulegri merkingu þeirra orða og heldur ekki skáldsaga, heldur blátt áfram saga um skip, sögð af skipinu sjálfu. Hún er í senn raunsæ og dramatísk og alltaf spennandi. Þannig getur sá einn skrifað, sem elskar haf og skip umfram allt annað. Þetta er því tilvalin bók handa öllum, sem unna hafinu eins og Rasmussen og hafa gaman af svaðilförum og sjóferðum. Bókin er 222 bls. og í henni er fjöldi skemmtilegra teikninga, sem Ulf Aas hefurgert. Bók 255 HEB-verð kr. 300,00 CLARA VON TSCHUDI: SONUR NAPÓLEONS Höfundur þessarar bókar, Clara von Tschudi, hefur skrifað margar bækur, einkum ævisögur, sem þýddar hafa verið á margar tungur og not- ið mikilla vinsælda víða um heim. Þetta er saga einkasonar Napóleons hins mikla, arnar- ungans, von Bonaparteættarinnar. Allir, sem áhuga hafa á sögulegum fróöleik, ættu að lesa þessa ágætu bók, sem einnig er prýdd fjölda mynda. Bók 140 HEB-verð kr. 300,00 12 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.