Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 39
Ættir og óðal
Frásagnir Jóns Sigurðssonar á Reynistað
Jón á Reynistað var landskunnur á sinni tíð,
alþingismaður Skagfirðinga um áratugaskeið
og forgöngumaður í fræðastarfsemi og varð-
veizlu þjóðlegra minja. Bókin er gefin út í 100
ára minningu Jóns. Hún er einskonar ættar-
saga, fjallar um forfeður Jóns, allt frá Svein-
birni í Stóru-Gröf á fyrri hluta 18. aldar, en
ítarlegast er sagt frá séra Jóni Hallssyni prófasti
og Sigurði Jónssyni bónda á Reynistað. Fjöl-
margir fleiri koma þó við sögu. Bókin geymir
þjóðlegan fróðleik og persónusögu af þeirri
gerð, sem íslendingar hafa löngum í hávegum
haft. Hún er rúmlega 250 bls., prýdd yfir 50
ljósmyndum og fylgir mannanafnaskrá.
Bók 907 HEB-verð kr. 1.950,00
Bók 475
HEB-verð kr. 1.000,00
Hamingjublómm
eftir
Guðjón
Sveinsson
Barna- og unglingabækur Guðjóns hafa notið mikilla vinsælda
undanfarin ár. Hamingjublómin eru ætluð yngstu lesendunum
og er fagurlega myndskreytt af Pétri Behrens. Þetta er 18. bók
Guðjóns Sveinssonar, sem hefur hlotið margháttaða viðurkenn-
ingu fyrir verk sín og unnið til verðlauna.