Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 19
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR FINNUR SIGMUNDSSON: SKÁLDIÐ SEM SKRIFAÐI MANNAMUN Sendibréf frá Jóni Mýrdal. F>að eru örlög flestra einkabréfa að glatast fyrr eða síðar. Þó kemur fyrir að þau varðveitast til síðari tíma og varpa þá stundum skæru Ijósi á persónuleika bréfritaranna. Svo er um bréf Jóns Mýrdal, sem varðveitt eru í Landsbóka- safni og Þjóðminjasafni. Hér kynnumst við sérstæðum manni í óblíðri lífsbaráttu sem verður lesandanum minnisstæð. 208 bls. Bók 343 HEB-verð kr. 300,00 BJÖRN ÞÓRÐARSON: SÍÐASTI GOÐINN Höfundur rekur hér sögu Þorvarðar Þórarins- sonar, síðasta íslenska höfðingjans, sem gaf upp ríki sitt fyrir Hákoni Noregskóngi. Mynd- skreytt. Bók 157 HEB-verð kr. 250,00 SIGURÐUR A. MAGNÚSSON: NÝJU FÖTIN KEISARANS Þessi bók er eftir höfund metsölubókarinnar Undir kalstjörnu, sem vakti geysilega athygli. I þessari bók er fjallað um bókmenntir bæði hér heima og úti í heimi. Höfundurinn hefur aldrei farið dult með skoðanir sínar og hlotið nokkuð umtal af þeim sökum. Bók 68 HEB-verð kr. 250,00 DR. EYSTEINN SIGURÐSSON: SAMVINNUHREYFINGIN Á ÍSLANDI Samvinnuhreyfingin gegnir fjölþættu lykilhlut- verki í íslensku efnahags- og atvinnulífi, og því meir sem umsvif hennar hafa aukist, því flókn- ara hefur skipulag hennar skiljanlega orðið. Það hefur því lengi þótt vera þörf á handhægu yfirlitsriti, sem veitti alhliða upplýsingar um kaupfélögin og samtök þeirra, þróun þeirra og skipulagslega uppbyggingu. Þeirri þörf er reynt að svara með þessari bók. Bók 972 HEB-verð kr. 200,00 SKOÐAÐ í SKRÍNU EIRÍKS Á HESTEYRI Jón Kr. ísfeld bjó til prentunar. Eiríkur ísfeld á Hesteyri í Mjóafirði fæddist 8. júlí 1873. Á yngri árum sínum skráði hann mikið af þjóðsögum og ævintýrum, sem sr. Jón Kr. ísfeld hefur nú búið til prentunar. Þetta er kjörin bók fyrir þá sem unna þjóð- legum, íslenskum fróðleik. Bók 393 HF.B-verð kr. 400,00 ARTHUR ANGER: SKT. JÓSEFS BAR í bók þessari skýrir bráðsnjall höfundur af leiftrandi kímni og sjálfshæðni frá því, hvernig honum tókst að gera áfengisdjöfulinn útrækan úr skrokk sínum. Bók 117 (ób.) HEB-verð kr. 100,00 GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON frá Lundi: LJÓSBROT Nokkrir orðskviðir, - flestallir frumsamdir, - örfáir orðfærðir. Bók 432 HEB-verð kr. 210,00 GUNNAR M. MAGNÚSS: LANGSPILIÐ ÓMAR Þessi skemmtilega bók hefur að geyma 37 bráðsnjallar og sérkennilegar frásagnir. Bók 260 HEB-verð kr. 300,00 JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: ALDIR OG AUGNABLIK (II) Greinar um vandamál líðandi stundar, sem eiga erindi til allra hugsandi manna. 192 bls. Bók 215 HEB-verð kr. 180,00 VALGEIR SIGURÐSSON: UM MARGT AÐ SPJALLA f þessari bók eru 15 viðtalsþættir: Einar Krist- jánsson, Hannes Pétursson, Indriði G. Þor- steinsson, Kristján frá Djúpalæk, Rósberg G. Snædal, Broddi Jóhannesson, Eysteinn Jónsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Jakob Benediktsson, Sigurður Kr. Árnason, Anna Sigurðardóttir, Auður Eiríksdóttir, Stefán Jó- hannsson og Þorkell Bjarnason. Bók 396 HEB-verð kr. 400,00 KRISTMUNDUR BJARNASON: SÝ SLUNEFNDARSAGA SKAGFIRÐINGA FYRRA BINDI Sýslunefnd Skagfirðinga lét sér fátt mannlegt óviðkomandi, enda er í bók þessari fjallað um vegi, ferjur, kláfa, brýr, báta, póstflutninga, kvennaskóla, búnaðarskóla, sundkennslu, bókasafn, heilbrigði, iðnir, sjósókn, Drangeyjarferðir, búpening, kynbætur, alþýðuhagi, búnaðarsamtök, hrossastóð og landvernd, svo að það helsta sé nefnt. Oll er frásögnin skýr og skemmtileg, aukin sögum og vísum. Kristmundur Bjarnason skrifar einkennilega áhrifamikinn stíl, persónulegan, greinargóðan og kjarnyrtan. Hann hefur fágæta yfirsýn sögulegra heimilda og er nú tvímælalaust ein- hver mikilhæfasti sagnfræðingur okkar íslend- inga. Bók þessi er prýdd fjölda mynda sem margar hverjar hafa ekki sést áður á prenti. Bók 979 HEB-verð kr. 2.125,00 Bókaskrá 19

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.