Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 02.10.1988, Blaðsíða 34
Björn Pálsson, Kvískerjum: / Isinn brast og Kúðafljót gleypti menn og hesta Menn og hestar í fljótið 17. febrúar var lagt á Kúðafljót með alla hestana teymda og var farið út á það af túninu á Söndum. Fyrstu lestirnar voru komnar langt austur á fljótið, en þó margir hestar eftir, þegar ég fór út á það með Brún Stefáns Þor- lákssonar á Hnappavöllum og var reiðingur á honum og bögglar. En aftan í honum var ungur, glófextur hestur sem faðir minn átti. Ég þorði ekki að fara með fleiri í einu út á ísinn því það var autt ræsi milli bakkans og íssins sem hestarnir urðu að stíga yfir. En svo óheppalega tókst til, að Glói steig ofan í ræsið með báða framfætur og nam brjóstið við ísinn. Ég stöðvaði Brún strax og reif Glói sig upp úr og stökk austur á ísinn. En það þoldi ísinn ekki og brotnaði undir Glóa, svo að hann lenti á kaf og tók í tauminn um leið og hékk í honum, og þá rak Brúnn alla fæturna niður úr ísnum. Ég fór aftur fyrir Brún efra megin og ætlaði að skera í sundur beislið og reyna að snúa Glóa við eða fyrst og fremst losa hann við Brún. Um leið og ég ætlaði að skera á tauminn, kom Eggert að hliðinni á mér, líka efra megin, og um leið sprakk ísinn fyrir aftan okkur og jakinn reis upp á rönd og hvolfdist yfir okkur og hestana. Um leið náði ég með vinstri hendi í taglið á Glóa en fann hvergi botn og straumurinn hélt mér flötum í vatninu. Ég fann að Glói var fastur og vissi að hestarnir voru líka undir ísnum og sleppti takinu. Um leið náði ég botni með fæturna og gat staðið upp en náði ekki upp undir ísinn. Ég reyndi að vaða á móti straunum í þeirri von að ég næði kannski upp úr í vökinni sem ég fór ofan í (ég vissi ekki af vökinni, sem ég bjargaðist upp úr). En straumurinn var svo sterkur að ég gat það ekki, ég datt og barst með honum. Seinast man ég að ég rak höfuðið í ísinn tvisvar sinnum en ekki vissi ég hvort það var í jaka eða ísinn fyrir ofan mig. En við það mun ég hafa misst meðvitund. Þegar ég rakn- aði við hékk ég á ísskör með höfuð og herðar upp úr en straumurinn hélt mér undir ísnum að öðru leyti. Skaut upp í sömu vök Okkur Eggert hafði báðum skotið upp í þessari vök, sem var þó nokkuð utar en þar sem við fórum ofan í. Eggert skaut upp efst í vökinni eða í henni miðri, en hún var alllöng og flaut hann nokkra stund en var sokkinn áður en að ísnum kom. Mér skaut aftur á móti upp rétt við ísinn þar sem straumurinn hvarf undir hann og náði ég strax í skörina. Á henni hafði myndast ofurlítil brún af slettum, sem varð mér að handfesti og hékk ég þarna á olnbogunum. Ari og Klemenz voru á túninu og sáu þetta allt vel. Þeir urðu að fara heim að ná sér í band og 5 álna langa spíru til þess að komast að mér, svellið var svo ónýtt þarna. Þeim tókst þó með gætni að tosa mér upp úr og gengu þeir svo undir mér eða báru mig heim. Hinir voru allir austur á fljóti og sáu þetta allt en voru sjálfir í svo mikilli hættu með hestana að þeir máttu ekki stansa né yfirgefa hestana enda gátu þeir ekkert hjálpað okkur. Hestunum, sem eftir voru, tókst að komast austur yfir langt fyrir utan og var þar betri ís. Fóru félagar mínir þann dag að Þykkvabæ. Daginn eftir fóru þeir að Hörgs- landi og 19. að Kálfafellskoti og komust heilu og höldnu heim þann 20. febrúar. Þegar ég kom heim að Söndum var ég berháttaður ofan í volgt og gott rúm og fötunum haldið heitum. Ég var látinn drekka eitthvað heitt en magarúmið mun hafa verið heldur lítið því að ég var víst búinn að drekka nóg í fljót- inu. Ég var með dálítið sár á hvirflinum og með lítils háttar blóðnasir fyrst, en mér fór fljótt að hitna og leið vel þegar búið var að hlúa að mér eins og hægt var. Þegar allir voru farnir og kyrrð komin á, sagði Gu.ðrún: ,,Við skulum nú biðja Guð um huggun og styrk.“ Hún las svo húslestur og var ekki hægt að sjá á henni að nokk- uð hefði komið fyrir. Hún bað um að sinna skepnunum og hlaða skán í dyrnar hjá þeim svo að vatnið rynni ekki inn í húsin um nóttina því að fljótið var að bólgna svo mikið upp. Sjálf var hún að hjúkra mér og vinda upp og þurrka fötin mín og fékk ég þau að mestu leyti þurr um morguninn. Guðrún sýndi mikið þrek í þessum raun- um og var auðfundið, að hún var vel trúuð. Lík Eggerts fannst ekki fyrr en um vorið þegar ísa leysti vestar í landinu. Hafði fljótið borið það þangað. Hestarn- ir fundust eitthvað fyrr en þó löngu eftir að þetta gerðist. Þeir fengust borgaðir eins og markaðsverð var þá á hestum. 34 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.