Heima er bezt - 02.10.1988, Side 34
Björn Pálsson, Kvískerjum:
/
Isinn brast og Kúðafljót
gleypti menn og hesta
Menn og hestar í fljótið
17. febrúar var lagt á Kúðafljót með alla hestana
teymda og var farið út á það af túninu á Söndum. Fyrstu
lestirnar voru komnar langt austur á fljótið, en þó margir
hestar eftir, þegar ég fór út á það með Brún Stefáns Þor-
lákssonar á Hnappavöllum og var reiðingur á honum og
bögglar. En aftan í honum var ungur, glófextur hestur
sem faðir minn átti. Ég þorði ekki að fara með fleiri í
einu út á ísinn því það var autt ræsi milli bakkans og
íssins sem hestarnir urðu að stíga yfir. En svo óheppalega
tókst til, að Glói steig ofan í ræsið með báða framfætur
og nam brjóstið við ísinn. Ég stöðvaði Brún strax og reif
Glói sig upp úr og stökk austur á ísinn. En það þoldi
ísinn ekki og brotnaði undir Glóa, svo að hann lenti á
kaf og tók í tauminn um leið og hékk í honum, og þá
rak Brúnn alla fæturna niður úr ísnum. Ég fór aftur fyrir
Brún efra megin og ætlaði að skera í sundur beislið og
reyna að snúa Glóa við eða fyrst og fremst losa hann
við Brún. Um leið og ég ætlaði að skera á tauminn, kom
Eggert að hliðinni á mér, líka efra megin, og um leið
sprakk ísinn fyrir aftan okkur og jakinn reis upp á rönd
og hvolfdist yfir okkur og hestana. Um leið náði ég með
vinstri hendi í taglið á Glóa en fann hvergi botn og
straumurinn hélt mér flötum í vatninu. Ég fann að Glói
var fastur og vissi að hestarnir voru líka undir ísnum og
sleppti takinu. Um leið náði ég botni með fæturna og
gat staðið upp en náði ekki upp undir ísinn. Ég reyndi
að vaða á móti straunum í þeirri von að ég næði kannski
upp úr í vökinni sem ég fór ofan í (ég vissi ekki af vökinni,
sem ég bjargaðist upp úr). En straumurinn var svo sterkur
að ég gat það ekki, ég datt og barst með honum. Seinast
man ég að ég rak höfuðið í ísinn tvisvar sinnum en ekki
vissi ég hvort það var í jaka eða ísinn fyrir ofan mig.
En við það mun ég hafa misst meðvitund. Þegar ég rakn-
aði við hékk ég á ísskör með höfuð og herðar upp úr
en straumurinn hélt mér undir ísnum að öðru leyti.
Skaut upp í sömu vök
Okkur Eggert hafði báðum skotið upp í þessari
vök, sem var þó nokkuð utar en þar sem við fórum ofan
í. Eggert skaut upp efst í vökinni eða í henni miðri, en
hún var alllöng og flaut hann nokkra stund en var sokkinn
áður en að ísnum kom. Mér skaut aftur á móti upp rétt
við ísinn þar sem straumurinn hvarf undir hann og náði
ég strax í skörina. Á henni hafði myndast ofurlítil brún
af slettum, sem varð mér að handfesti og hékk ég þarna
á olnbogunum.
Ari og Klemenz voru á túninu og sáu þetta allt vel.
Þeir urðu að fara heim að ná sér í band og 5 álna langa
spíru til þess að komast að mér, svellið var svo ónýtt
þarna. Þeim tókst þó með gætni að tosa mér upp úr og
gengu þeir svo undir mér eða báru mig heim. Hinir voru
allir austur á fljóti og sáu þetta allt en voru sjálfir í svo
mikilli hættu með hestana að þeir máttu ekki stansa né
yfirgefa hestana enda gátu þeir ekkert hjálpað okkur.
Hestunum, sem eftir voru, tókst að komast austur yfir
langt fyrir utan og var þar betri ís. Fóru félagar mínir
þann dag að Þykkvabæ. Daginn eftir fóru þeir að Hörgs-
landi og 19. að Kálfafellskoti og komust heilu og höldnu
heim þann 20. febrúar.
Þegar ég kom heim að Söndum var ég berháttaður ofan
í volgt og gott rúm og fötunum haldið heitum. Ég var
látinn drekka eitthvað heitt en magarúmið mun hafa verið
heldur lítið því að ég var víst búinn að drekka nóg í fljót-
inu. Ég var með dálítið sár á hvirflinum og með lítils
háttar blóðnasir fyrst, en mér fór fljótt að hitna og leið
vel þegar búið var að hlúa að mér eins og hægt var.
Þegar allir voru farnir og kyrrð komin á, sagði Gu.ðrún:
,,Við skulum nú biðja Guð um huggun og styrk.“ Hún
las svo húslestur og var ekki hægt að sjá á henni að nokk-
uð hefði komið fyrir. Hún bað um að sinna skepnunum
og hlaða skán í dyrnar hjá þeim svo að vatnið rynni ekki
inn í húsin um nóttina því að fljótið var að bólgna svo
mikið upp. Sjálf var hún að hjúkra mér og vinda upp
og þurrka fötin mín og fékk ég þau að mestu leyti þurr
um morguninn. Guðrún sýndi mikið þrek í þessum raun-
um og var auðfundið, að hún var vel trúuð.
Lík Eggerts fannst ekki fyrr en um vorið þegar ísa leysti
vestar í landinu. Hafði fljótið borið það þangað. Hestarn-
ir fundust eitthvað fyrr en þó löngu eftir að þetta gerðist.
Þeir fengust borgaðir eins og markaðsverð var þá á
hestum.
34 Bókaskrá