Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 11
Ingibjörg og Eggert á Þorvaldseyri fremst á miðri mynd ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum sínum.
Ungu hjónin á Þorvaldseyri
Ungu hjónin, Ólafur og Guðný, tóku að fullu við bú-
skapnum á Þorvaldseyri árið 1986. Þau tóku við góðu búi
og hafa haldið öllu vel í horfi, þótt kvóti á hefðbundnum
Frá hitaveituborun 1989, Ólafur Eggertsson til vinstri.
búgreinum reynist þeim sem mörgum öðrum nokkur fjötur
um fót. Ólafur hefur verið áhugasamur um að auka korn-
ræktina sem hann telur sjálfsagðan þátt í búskap okkar
tíma. Síðasta sumar var hann þannig með bygg á 12 hekt-
urum og fékk allgóða uppskeru, þótt tíðarfar væri ekki svo
gott sem skyldi. Ólafur bindur talsverðar vonir við að betri
tímar séu í vændum í landbúnaðinum og einkum telur
hann líklegt að brátt muni þurfa að auka framleiðslu á
mjólk og mjólkurafurðum.
Meðal nýjunga sem Ólafur Eggertsson hefur beitt sér
fyrir var að hefja leit að heitu vatni í landareigninni. Um
árabil hafði verið umræða í sveitinni um að bora eftir heitu
vatni í nágrenni Seljavalla, þar sem mikið er um jarðhita,
og leggja síðan hitaveitu um sveitina. Þessar fyrirhuguðu
framkvæmdir drógust mjög á langinn og ekkert gerðist.
Þeir Þorvaldseyrarmenn höfðu bundið miklar vonir við
væntanlega hitaveitu, en þegar ekkert varð úr, hófust þeir
sjálfir handa heima hjá sér. Fengu þeir Jarðboranir h/f til
að bora hjá sér uppi við heiðina, skammt frá gömlu raf-
stöðinni. Var borað niður á 1000 metra dýpi og fékkst þá
nægilegt af heitu vatni fyrir öll hús á bænum og meira til.
Verður nú brátt hafist handa um að virkja þessa miklu orku
og leiða heim í húsin á Þorvaldseyri.
Heima er bezt 119