Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Side 31

Heima er bezt - 01.04.1990, Side 31
BIRGITTA H. HALLDORSDOTTIR, Syðri-Löngumýri Þannig var lífið Það var sólríkur sumardagur. Þó enn væri júní var sláttur hafinn og fólk í sveitum landsins störfum hlaðið. Það var ástæða til að gleðjast. Eftir langan og kaldan vetur kom yndislegt vor. Undan þykkum snjóalögum komu græn tún. Þó veturinn væri kaldur, þá var fannfergið það mikið að það verndaði jörðina. Er snjóa leysti var varla hægt að finna klaka í jörð. Sólin hækkaði á lofti og um leið skein sólin í hugum mannanna, sem byggðu þetta kalda land, sem er í senn gjöfult og harðbýlt. Sveitin fyrir norðan heiðina skartaði sínu fegursta. Hvarvetna voru tún og úthagi fagurgræn. Búpeningur bænda stóð ánægður á beit og á öllum búnum býlum mátti sjá glaðbeitt fólk við vinnu sína. Karlmenn að slá, konur að raka, krakkar að reka fé úr túnum eða að sækja kýr er leið að mjöltum. Iðandi mannlíf í íslenskri sveit. Á bænum Stóra-Núpi, sem var eitt stærsta býli sveitar- innar, var einnig líf og starf í fullum blóma. Friðgeir bóndi stjórnaði hjúum sínum af skörungsskap og lipurð. Hann var ógiftur, kominn vel yfir þrítugt, skörulegur og ákveðinn í skoðunum. Maður í meðallagi hár, samanrekinn, við- felldinn en gat þó engan veginn talist fríður. Strax á unglingsárum Friðgeirs varð mönnum í þessari sveit ljóst, að þess yrði ekki langt að bíða, að Friðgeir þessi yrði ríkur. Sjálfsagt ætti hann líka eftir að koma mikið við sögu sveitarmálanna, ef ekki landsmálanna. Og það gekk eftir. Er þetta gerðist var hann orðinn oddviti, en misvel var hann liðinn vegna ákveðinna skoðana sinna. „Verst að hann skuli ekki ná sér í konu,“ sagði fólkið í sveitinni. En Friðgeir var áhyggjulaus í þeim efnum. Þar kæmi að hann kvæntist eins og aðrir menn, en honum lá ekkert á. I nógu var að snúast. Búið var stórt og að mörgu að hyggja. Frið- geir vék sér aldrei undan ábyrgð og fannst ekkert verra þó hann gæti tekið ákvarðanir einn án afskipta annarra. En hann var vinsæll af vinnufólkinu á Stóra-Núpi og oft var þar margt um manninn. Glatt á hjalla hjá ungu, lífsglöðu fólki. Þetta sumar var Friðgeir með tvo vinnumenn og tvær kaupakonur. Það mátti ekki minna vera. Auk þess var á bænum fullorðin kona, frænka Friðgeirs, er sá um innan- bæjarstörf að mestu, undir styrkri stjórn frænda síns. Kona þessi hét Sigurlaug, komin vel yfir sextugt. Þéttvaxin kona, fremur stórskorin, en lipur í öllum hreyfingum. Hún hafði aldrei gifst og átti enga afkomendur. Friðgeir stóð henni einna næst af skyldmennum hennar, enda hafði hún alltaf verið stolt af honum og velgengni hans. Það hafði því verið kærkomið tækifæri fyrir Sigurlaugu er Friðgeir keypti Stóra-Núp og bað hana að vera hjá sér og sjá um innan- bæjarstörfin. Hún var hreykin af því og fannst hún vera í mikilli virðingarstöðu á heimilinu. Og Friðgeir var laginn að umgangast fólk. Hann réð öllu innanbæjar sem utan, án þess þó að láta frænku sína finna það á nokkurn hátt. Vinnukonurnar hétu Kristín og Vilborg. Góðar stúlkur, en á margan hátt eins ólíkar og dagur og nótt. Kristín var ljóshærð og fögur, Vilborg dökkhærð og róleg. Kristín var grönn og spengileg, en Vilborg þéttvaxin. Kristín var lag- leg, Vilborg myndarleg. Kristín var mjög lagin í höndun- um, en minna fyrir bókina. Vilborg var bókhneigðari og hafði gífurlegan áhuga á öllu sem var að gerast í kring um hana, jafnt á íslandi, sem í hinum stóra heimi. Hún var minna fyrir hannyrðir og heimilisstörf. Það mátti því með sanni segja að báðar hefðu þær ýmislegt til brunns að bera, en mönnum kom ekki saman um hvor kvenkosturinn væri vænlegri. Kristin var ættuð úr sveitinni, en Vilborg var ættuð úr næstu sýslu. Báðar voru þær 22 ára þetta sumar. Ungar stúlkur með óráðna framtíð en allt lífið framundan. Vinnumennirnir á Stóra-Núpi voru ungir menn, báðir innan við þrítugt. Þeir voru æskuvinir og hafði dottið í hug að ráða sig sem vinnumenn á sama bæinn þetta sumar. Hafliði var meðalmaður, fríður og bar sig vel. Hann var góður íþróttamaður, jafnt í hlaupum sem stökki, en var samt á engan hátt karlmannlega vaxinn. Brúnt hárið var þykkt og glansandi og augun voru fjarræn. Hann vildi njóta alls þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Hann var sam- viskusamur, en ekki elskur að vinnu. Hafliði átti tvo úrvals hesta og var hamingjusamastur á þeim stundum er hann þeysti á þeim um sveitina. Hann var jafnan í góðu skapi. Sigurpáll var þyngri í lund, en hreyfst þó yfirleitt af glað- værð vinar síns. Hann var dálítið feiminn og átti ekki eins gott með að koma sér á framfæri og Hafliði. En hann var góður verkmaður og dró aldrei af sér. Sigurpáll var ljósskolhærður, dálítið rauður í andliti, viðfelldinn og traustvekjandi. Hann öfundaði Hafliða af þessu hóflega kæruleysi og kátínu. Fyrir vikið var Hafliði vinsæll meðal unga fólksins, allir vildu hafa hann með, ef fara átti á skemmtun. Þá var Hafliði ómissandi. Á öllu þessu má sjá að Friðgeir á Stóra-Núpi var ekki illa settur með lið þetta sumar, fremur en áður. Hann var líka ánægður með fólk sitt. Líklega yrði sumarið farsælt. Það leit út fyrir góða sprettu, og það var nú einu sinni það, sem allt valt á. Næg hey og góð. Það var sól í heiði og vinnufólkið var komið á fullan skrið við heyskapinn. Friðgeir leit glaður út á túnið, en skaust svo Heimaerbezt 139

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.