Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 12
Ibúðarhús Guðnýjar og Ólafs á Þorvaldseyri. Þannig er sífellt verið að byrja á einhverju nýju og bæta í haginn fyrir komandi kynslóðir á þessum bæ. Nýjar kyn- slóðir kveðja líka sífellt dyra og ungu hjónin, Ólafur og Guðný, hafa nú þegar eignast fjögur börn. Lokaorð Nú hefur verið ;agt í stuttu máli frá ábúendum á Þor- valdseyri í þá rú.nu öld sem liðin er síðan Þorvaldur Bjarnarson reisti þar bæ árið 1886. Ég átti því láni að fagna að vera nágranni þeirra á Þorvaldseyri um árabil og met kynnin við það góða fólk alltaf mikils. Mikið þótti mér alltaf til koma hversu vel jörðin var setin og hversu góð umgengni sat þar ætíð . fyrirrúmi. Þá þótti mér ekki síður merkilegt að Eggert skyldi sjálfur gera allar teikningar og reikna út burðarþol og styrkleika, þegar hann byggði hús. Hjónin Ingibjörg og Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri. Ég spurði hann einu sinni, hvort þetta væri svona í raun og veru. Játti hann því og sagði að ekki væri hægt að treysta verkfræðingum, sem ekki þekktu til veðra og staðhátta undir Eyjafjöllum, til að meta rétt. hversu öflug húsin þyrftu að vera. Þess vegna hefði hann gert þetta sjálfur og það hefði dugað vel. Einnig sagði hann mér við sama tækifæri að vart þýddi að segja fólki úr öðrum byggðar- lögum sannar sögur af hamförum veðra sem komið gætu undir Fjöllum, því að það tryði þeim ekki og tæki sem skröksögur. Það kæmi, til dæmis, oft fyrir í verstu norð- austan veðrunum að steinvölur þeyttust gegnum glugga- rúður og skildu aðeins eftir kringlótt smágöt, en rúðan brotnaði ekki að öðru leyti eða spryngi út frá götunum. Slíkur væri vindhraðinn, þegar hörðustu veðrin gengju yfir. Hann sagði að lokum að Eyjafjallasveit væri góð og kosta- rík, en mikill annmarki væri að þessum hörðu veðrum. Af þeim hlytust oft skaðar á mannvirkjum, heyjum og fleira. En við það yrðu þeir að una sem þarna ættu heima og gera það besta úr. Ungu hjónin á Þorvaldseyri, Guðný Valberg og Ólafur 120 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.