Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 30
Kópavogskirkja íf pessu sinni birtum við mynd af kirkjunni í Kóyavogi. Hún var vígð árið 1962, fögur bygging bygging og sérstæð, par sem hún stendur hátt á Borgarholtinu í miðjum bænum. Kópavogskirkja var teiknuð af Herði Bjarnasyni páverandi húsameistara ríkisins. Steindir gluggar eru í kirkjunni gerðir af Gerði Helgadóttur myndhöggvara og glerlistamanni. Eru peir mikið listaverk, sem vakið hefur athygli víða um heim, en myndir af gluggunum hafa birst í virtum listatímaritum erlendum. Gerður hafði einnig gert tillögur að altaristöflu úr mosaik, sem eru ígóðu samræmi við gluggana, en pær tillögur hafa ekki verið notaðar, hvað sem síðar verður. Frá upphafi skiptist Kópavogshreppur milli tveggja sókna í Reykjavík, Nessóknar og Laugarnessóknar, en varð sérstök sókn árið 1952. Pann 11. maí næstkomandi verða liðin 35 ár frá pví Kópavogur fékk kaupstaðarréttindi og nú er kaupstaðnum skipt í prjú prestaköll. Séra Þorbergur Kristjánsson pjónar Digranesprestakalli, séra Arni Pálsson Kársnesprestakalli og séra Kristján Einar Porvarðarson pjónar Hjallaprestakalli. Ennpá verða pessi prjú prestaköllaðsameinast um einn helgidóm, en íframtíðinni verða kirkjur a.m.k. prjár ípessurn vaxandi kaupstað. LEIÐRÉTTING Sú leiða prentvilla slæddist inn í texta með teikningu af Strandarkirkju í síðasta tbl. Heima er bezt, að Engilsvík breyttist í Egilsvík. Engilsvík hlaut nafn sitt af þeirri skínandi veru, sem skipbrotsmenn töldu sig sjá á ströndinni, eins og frá er greint í textanum. 138 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.