Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Side 7

Heima er bezt - 01.02.1993, Side 7
Æskuheimilið, Brekkugata 10, í Hafnafirði. Guttormsdóttur sem var móðursystir ömmu Halldóru. Þannig vildi það til að amma var send til hennar 14 ára gömul vegna þess að móðir hennar var orðin ekkja og hafði selt jörðina og flust til Seyðisfjarðar. Hún varð að koma þremur bömum fyrir hjá skyldfólki en var með það elsta og yngsta hjá sér og vann fyrir þeim með saumaskap. Hún fórst síðan í snjóflóði sem sópaði húsinu út á sjó en yngsta barninu var bjargað þar sem það flaut á sjónum í rúmi sínu. Amma Halldóra varð því munaðarlaus en átti góða vist á Þverá hjá móðursystur sinni og líklega hefur hún fengið ein- hvern arf því hún sigldi til Kaupmannahafnar um tvítugsaldur til að læra skreðarasaum og systir hennar Þóra líka. Þóra dvaldist í útlöndum í 30 ár, í Englandi og Frakklandi, þar til að hún kom heim til íslands, fullorðin kona, og tók við forstöðu elli- heimilisins á Seyðisfirði. Hún var heima hjá okkur tvö síðustu árin sem hún lifði og höfðum við mikla ánægju af enda bar hún með sér útlendan menn- ingarblæ og sagði okkur margt frá ferðum sínum. Þóra klæddist ætíð svörtum flauelskjólum með blúndu í hálsinn, festri með nælu. Margt af því sem Þóra frænka sagði okkur situr enn í minningunni, til dæmis frásögn hennar af veru sinni í Egyptalandi þegar Titanic sökk, en Þóru hafði dreymt fyrir þeim voðaatburði nóttina áður. Einnig var hún viðstödd jarðarför leikkonunnar frægu, Söru Bemhard, í París og sagði hana stórkostlega. í mikilli skrúðgöngu um götur borgarinnar voru / heimsókn hjá ömmu Herdísi í Höfnum. bornar gínur klæddar búningum úr frægum hlut- verkum leikkonunnar. Þóra ömmusystir var náma af spennandi fróðleik og afar sterkur og ógleyman- legur persónuleiki. Halldóra amma var heitbundin Jóni, yngsta syn- inum á Þverá, þegar hún fór til útlanda og þau gift- ust síðar og áttu að taka við búi á Þverá eins og ég sagði áður. Amma sá að afi var ekki bóndaefni og það varð að ráði að þau seldu eigur sínar og fluttust til Reykjavíkur. Er þangað kom hóf afi störf sem bókari hjá Edinborgarverslun og síðar hjá H. Ben. og co. Um tíma var hann sendur í útibúið í Hafnar- firði og þannig vildi það til að mamma kynntist föður mínum Þorvaldi í Flensborgarskólanum. Fjölskylda mömmu fluttist svo aftur til Reykja- víkur. Mamma fór að vinna í versluninni Gullfoss þar til hún giftist pabba, en áður hafði hún farið á húsmæðraskóla í Kaupmannahöfn. Foreldrar mínir fluttust aftur til Hafnarfjarðar þar sem faðir minn setti á stofn bókaverslun Þorvaldar Bjarnasonar. Mamma átti fjögur systkini, þrjár systur og einn bróður. Auður, elsta systirin, giftist Sigurði Sigurðssyni kennara. Sigríður giftist Jóhanni Skaptasyni sem var sýslumaður á Patreksfirði og síðar á Húsavík, en hjá þeim átti ég margar góðar stundir á unglingsárunum. Þórný giftist Hálfdáni Eiríkssyni kaupmanni sem átti Kjöt og fisk og bróðirinn Jón Víðis var mælingamaður hjá Vegagerð ríkisins. Hann giftist ekki og bjó heima með móður sinni eftir að afi dó. Jón frændi reynd- ist systkinum sínum og systkinabörnum oft ómetanleg stoð. Strákarnir í fjölskyldunni voru með honum í vegamælingum á sumrin og hann hélt Heima er bezt 43

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.