Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Side 29

Heima er bezt - 01.02.1993, Side 29
á miðju enni tók veislugleðin skjótan og ótímabæran enda. Herrréttur var haldinn í gömlu Gúttó í Templarasundi. Framan við leiksvið hins aldna húss stóð langborð, næstum þvert yfir salinn, og sat þar fyrir miðju dómsforseti, ofursti að tign, en kviðdómur liðsforingja honum til beggja handa. Við báða enda langborðsins og hornrétt frá því voru borð ætluð sækjendum og verjendum málsins og voru þeir einnig foringjar úr hernum. Gegnt dómsforseta stóð á miðju gólfi borð og stólar, þar sem vitnum var ætlað pláss, svo og dómtúlki. Meðal vitna voru Islendingar sem tekið höfðu þátt í hinum örlagaríka gleðskap. Hlutverk dómtúlksins var að túlka fyrir þá spurningar málflytjenda og dómara og síðan svör þeirra og útskýringar. Af framburði sakbornings og vitna skýrðist smám saman hin óhugnanlega mynd. Sakborningur, sem vegna starfa síns bar gott skynbragð á fíngerðan tæknibúnað, hafði tekið í sundur hamarinn í byssu sinni. Honum var svo lýst að fram úr endanum á hlaupjámi sem gormur kastar fram þegar í gikkinn er tekið og byssan spennt, gengur hvass oddur inn í botn patrónunnar og sprengir hvellhettuna í skotinu. Þessi oddur er festu með hólk sem skrúfaður er framan á hamarinn. Með því að skrúfa þennan hólk nokkra snúninga til baka færist hann framar en oddurinn, sem þá nær ekki til að sprengja hvellhettuna þegar hleypt er af. Þetta hafði sakbomingur gert. Hann hafði skrúfað festihólkinn til baka og síðan tekið í gikkinn án þess að skotið hlypi af, þó að snarpur smellur heyrðist er hamarinn skall á botni patrónunnar. Eftir að hafa þaulprófað þetta taldi hann sér óhætt að leika bragðið fyrir áhorfendum með lifandi mann í sigtinu. Þetta gerði hann nú hvað eftir annað, en áhorfendur fylgdust með opinmynntir og skildu ekki hvers konar sjónhverfingar væru hér á ferðinni. En eins hafði töframaðurinn ekki gætt. Þegar þessi festihringur var skrúfaður þannig til baka varð hann kvikur í skrúfganginum og hnykkt- ist agnarlítið til í hvert skipti sem hamarinn small fram. Með þessu móti smáskrapp hólkurinn upp eftir hamrinum uns svo var komið að oddur sprengipinnans var farinn að ganga fram úr hólk- inum og loks svo langt að hann náði að sprengja hvellhettuna og skotið hljóp af. Það leyndi sér ekki að félagar hins ógæfusama sakbornings voru fullir samúðar með honum. Þegar hann var leiddur inn í salinn mátti heyra hughreystingarorð og lesa hluttekningu úr svip þeirra. Sjálfur virtist hann vera um eða innan við þrítugt, ljós á hár og hörund, bláeygur og handsmár, og bauð af sér góðan þokka. Látbragð hans og framkoma fyrir réttinum var blátt áfram, svör skýr og hiklaus og bar að öllu leyti saman við það sem vitni höfðu áður lýst. Reyndi hann á engan hátt að afsaka eða fegra athæfi sitt eða firra sig sök á dauða félaga síns. Þó leyndi sér ekki að honum var stirt um tungutak er hann rakti fyrir dómendum aðdraganda slyssins og afleiðingar verknaðar síns. Yfirheyrslur tóku enda, hlutverki dómtúlks og vitna var lokið og þeir hurfu af vettvangi. Eftir var aðeins að vinna úr gögnum málsins og byggja á þeim sektardóm. Ég frétti á skotspónum að hinn ungi bróðurbani hefði hlotið nokkurra mánaða fang- elsisdóm og verið sendur til Englands til að afplána hann. Hver örlög hans urðu að réttvísinni full- nægðri veit ég ekki. Ef til vill var hann einn þeirra 70 þúsund breskra hermanna sem féllu Japönum í hendur í Singapore í ársbyrjun 1942 og vesluðust síðan upp í fangabúðum þeirra. Hugsanlega tók hann þátt í sókn Montgomerys gegn Rommel í Norður-Afríku. Ef til vill hvítna nú bein hans í hei- tum eyðimerkursandinum. Eða lá kannski leið hans aftur yfir Ermarsund gegnum kúlnahríð Þjóðverja og fékk hann þá tækifæri til að beita hættulegu skotvopni sínu, ekki í leik, heldur til að drepa menn af ráðnum hug? En hvort sem lík hans fúnar nú í fenjum Malakkaskagans, í sandauðn Norður-Afríku, á botni Ermarsunds eða í mold Vestur- Evrópu, þá er víst að brostin augu vopnabróður hans hafa fylgt honum í dauðann. En kannski komst hann lifandi gegnum þetta allt saman og situr nú, aldurhniginn maður, yfir smágerðu verkefni og sér að baki þess eins og í gegnum dimma þoku mannsandlit með kúlugat á miðju enni. Heima er bezt 65

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.