Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 33
„Þið verðið að fara strax á eftir henni og ná henni. Annars drepur hún sig,“ segi ég. Lögreglu- þjónamir staulast á fætur og dusta rykið af fötum sínum. „Þið hafið komið henni til að trúa að hún hafi drepið mann,“ öskra ég vitstola. „Þið berið ábyrgð á lífi hennar. Þið ættuð bara að vita hvemig gripur það er sem hér liggur." Mér sýnist hann vera vel lifandi, aðeins hræddur rétt eins og þeir borðalögðu. „Ef þið finnið ekki stúlkuna fljótt, já strax, þá mun hún aldrei finnast lifandi, og þá mun ég kæra ykkur fyrir morð.“ „Vertu ekki svona æstur,“ hvíslar Gréta að mér og fær mig til að setjast. Eg sé að lögreglan hverfur út um dyrnar. Og um leið og þeir hverfa út í myrkrið þá finn ég fyrir samúð með þeim. Þeir eru aðeins mannlegir, og þeir hafa sínar starfreglur til að fara eftir. Þegar ég kem heim, þá fleygi ég mér upp í rúmið mitt. Ég er alveg bugaður. Ég veit nú að ég er mesti níðingur sem til er, ég er miskunnarlausari en jafn- vel Skuggi sem ég er sífellt að ásaka. Ég er hinn fullkomni morðingi. „Þú mátt ekki láta alveg hugfallast.“ segir Gréta, en hún hefur fylgt mér heim og dvelur nú í her- berginu hjá mér. „Þú verður að herða upp hugann.“ „Herða upp hugann,“ hrópa ég. „Þú verður að skilja það, Gréta, að ég er níðingur. Já, morðingi. Það er mér að kenna að Eva fyrirfór sér. Ég gerði ekki eins og hún bað mig um. Ég vantreysti henni. Ég bar á hana allt það versta sem ég kunni. Sagði margt illt um hana. Þó fórnaði hún sér mín vegna. Já, bjargaði mér. En ég hélt að hún hefði gleymt bæði systkinum sínum og mér. Ég átti þó að vita það að Eva gleymir ekki þeim sem hún elskar. Hún elskaði mig, Gréta, en ég hrakti hana frá mér. Ég verð að fara á eftir henni og fá fyrirgefningu, Gréta.“ „Hættu þessari örvæntingarvitleysu,“ segir Gréta vond. „Þú bætir ekkert með því. Þú hugsar aðeins um sjálfan þig, Adam. Hvemig heldurðu að vinum þínum liði ef þú fyrirfærir þér, og hvað um foreldra þína sem eiga þig einan að. Þau sem hafa fómað öllu sínu lífsstarfi fyrir þig. Þann sem þau elska. Stilltu þig, vinur. Ég skal koma með þér heim til þín, Adam,“ segir Gréta. Hún hvíslar að mér síðustu orðunum. Hún hefur sest á rúmi mitt og strýkur sínum nettu og mjúku höndum um höfuð mitt, eins og hún sé að hugga vesælt bam. „Ertu alveg frá þér, Gréta,“ svara ég og rís upp úr rúminu. „Heldurðu að ég láti þig fóma þér fyrir mig? Heldurðu að ég vilji að þú svíkir unnusta þinn mín vegna? Hefur ekki nógu illt hlotist af mér þegar? Nei, Gréta.“ „Fórni mér fyrir þig?“ segir Gréta. „Vissi Eva ekki hvar þú svafst í nótt. Var það ekki meira mín sök en þín. Ef til vill var hún harðhentari þess vegna, og þá er ég ofurlítið sek líka.“ „Nei, Gréta. Nú ferð þú heim. Ég lofa því að ég skal ekki grípa til neinna vanhugsaðra örlagaverka í nótt. Góða nótt, Gréta. Ég veit vel að þú hefur verið minn bjargvættur núna. Þakka þér fyrir það.“ Ég dreg hana að mér og kyssi hana. Gréta hverfur hljóð út um dyrnar. En ég bylti mér andvaka í rúminu. Það er farið að birta af degi þegar ég næ loks til að sofna. Snemma um morguninn er svo barið að dyrum og ég er boðaður á sýsluskrifstofu- na. Sýslumaðurinn situr við borð. Hann er maður á miðjum aldri, góðlegur á svip. Ég finn það strax og ég lít á hann að hér á ég vin. Hann þekkir mig líka svolítið, því að hann er frændi vinar míns. Hann tekur í höndina á mér og það er hlýja og samúð í handartakinu. Hann býður mér sæti. Sýslumaðurinn býr í gömlu tvílyftu timburhúsi með bröttu risi og kvistum. Skrifstofan er lítil með borði og tveimur stólum. Ég sest niður. Langa stund sitjum við hljóðir og hann virðir mig fyrir sér. Ég er viss um að þessi athugun verði mér óhagstæð. Hann getur ekki séð neitt við mig. Allt í einu rís hann upp úr stólnum, lítur hvasst á mig og segir: „Ungi maður. Ég sam- hryggist þér fyrir þennan hörmulega atburð sem hér hefur gerst, og ég skil vel tilfinningar þínar. En þó að þér muni þykja það ótrúlegt, þá trúi ég og vona að þetta eigi allt eftir að enda vel. En hver sem endalokin verða með stúlkuna, þá mun þessi atburður koma í veg fyrir óhamingju fjölda fólks.“ Framhald í nœsta blaði. Heima er bezt 69

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.