Heima er bezt - 01.11.1994, Qupperneq 25
Bergþóra Pálsdóttir
frá Veturhúsum:
onan
lesið um. Leið hennar lá því til
Reykjavíkur. Þar bjóst hún við að
kynnast öðrum lifnaðarháttum en í
sveitinni sinni og hugðist bera saman
kosti þeirra og galla. Hún hugðist
læra bæði af reynslu sinni og annarra
og geta þá tekið að sér önnur og betri
störf en hún hafði áður haft.
I Reykjavík réðst hún til hjóna sem
talin voru hærra sett í mannfélags-
stiganum en almennt gerðist. Þau
hjón bjuggu í stóru og þægilegu
húsi, sem var tvær hæðir og kjallari.
í kjallaranum var kolakyntur mið-
stöðvarketill og frá honum heitir
ofnar í hverju herbergi í húsinu.
Þegar hér var komið sögu áttu þau
hjón tvö böm, stálpaðan dreng og
níu mánaða stúlku, sem höfð var í
vagni. Litla stúlkan hafði bólfestu í
vagninum bæði nætur og dag og var
lítið tekin upp úr honum nema á
meðan hún mataðist og skipt var á
henni. Guðmunda átti að gæta bam-
anna á daginn og halda að öðru leyti
hús fyrir fjölskylduna. Virtist henni.
sem vonlegt var, að þetta myndi geta
orðið nokkuð erfitt, en var vongóð
vegna þess að húsið var rúmgott og
bjó yfir þægindum sem hún hafði
ekki átt að venjast áður, svo sem
heitu og köldu vatni í krönum, tvö-
földum vaski og skolprennsli í kjall-
ara, dúk á gólfum í staðinn fyrir
uðmunda var
elst af mörg-
um systkin-
im og kom það
því fljótlega í hennar
hlut, þegar þau yngri fóru að
stálpast og
gátu farið
að hjálpa til
á heimilinu, að
fara að heiman til þess að
sjá um sig með vinnu sinni og afla
um leið heimilinu tekna,
ef hún var aflögufær af
því kaupi sem hún fékk.
Hún ólst upp á menningar-
heimili þar sem lífsgleði, skyldu-
rækni og þrifnaður héldust í
hendur. Hún var því vel verki
farin, kát og skemmtileg og eft-
írsóttur starfskraftur, hvar sem til
nennar þekktist.
Hún var tryggur meðlimur fjöl-
skyldu sinnar og dvaldi þar oft,
sér í lagi um sláttinn eða þeg-
ar mestar annir voru á bæn-
im. Þá reyndi hún alltaf að vera
svo lausráðin að hún gæti
komið heim fólki
'’sínu til hjálpar.
Guðmundu langaði
til þess að ferðast og sjá sig
eitthvað um. Sjá og kynnast ein-
hverju af því sem hún hafði heyrt og
Heima er best 381