Heima er bezt - 01.11.1994, Qupperneq 28
Marta S. Jónasdóttir frá Efri-Kvíhólma
Minnisstæð
atvik
9. hluti
Kisa rataði heim
fóru þangað, og var kisa höfð í poka
á leiðinni, en var sögð ekkert ánægð
með þetta ferðalag eða nýja staðinn,
því þar voru auðvitað hundur og
köttur fyrir. Farartækið var vörubíll.
Með í farteskinu voru nokkrar dúf-
ur, sem krakkamir áttu. Þær tóku
þessu öllu vel og gerðu sér til dund-
urs að fljúga um nágrennið á daginn
og skoða sig um, en komu alltaf
heim á kvöldin. En einn góðan veð-
urdag var Rota-kisa horfin og sást
ekki meira á þessum bæ. Þegar flóð-
ið fór að sjatna, fóru bræðumir í
rannsóknarferð út að Rotum. Það
fyrsta sem þeir sáu var kisa, sitjandi
á sínum uppáhaldsstað, í hlöðuopinu,
og var hin ánægðasta. En hvaða leið
hún hefur farið, veit enginn. Þá var
enginn vegur kominn, aðeins blaut
fúamýri á löngum kafla. Á milli
þessara bæja munu vera
nálægt 5-6 km.
Hvar fann kisa
krílið sitt?
Það var veturinn 1949, ef ég man
rétt, að Markarfljót braut skarð í
flóðgarðinn við Seljaland og flæddi
austur yfir byggðina. Nokkrir bæir
niður á sléttlendinu urðu innlyksa
eða umflotnir vatni, svo að flytja
varð þaðan fólk og fénað, meðan
þetta ástand varði.
Orsökin mun hafa verið sú að
klakastífla myndaðist í fljótinu svo
að það lagðist með fullum þunga á
vamargarðinn. Svipað þessu hafði
gerst áður árið 1906, að ég held. En
þá var enginn vamagarður, hann var
byggður 1910 og er margbúið að
endurbæta hann og styrkja síðan.
Þetta mun hafa verið í febrúar.
Margir góðir vinir og grannar urðu
til þess að taka við flóttafólkinu og
fénaði þess. Á einum þessara bæja,
Efri-Rotum, bjó þá bróðir minn,
Sveinn Jónasson. Hann og
hans fólk fluttist heim til
foreldra minna að Efri-Kví-
hólma. Líklega hefur
fénaður-
inn farið
þangað
1 í k a .
veit ég
að hund-
Það bar til á bæ einum, þar sem ég
var um tíma fyrir mörgum árum, að
þar fæddust kettlingar. En ekki var
óskað eftir fjölgun á þeirri dýrateg-
und, svo að fljótlega voru allir kettl-
ingamir teknir frá læðunni og þeim
drekkt í pytti.
Kisa bar sig að vonum aumlega og
eigraði út og inn um bæinn, auðvitað
að leita að kettlingunum.
Þetta var snemma á slætti. Kisa
jafnaði sig
smám
saman
og varð
að sætta
sig við
384 Heima er best