Heima er bezt - 01.11.1994, Síða 30
Framhaldssagan
ARNI I
KLÖMBRUM
12. HLUTI
Jón Guðmundsson
frá Beruvík:
n brátt gekk Ámi úr skugga
um að svo var ekki, því hann
heyrði þau nú fara að tala um
hann og nefna hann í öðm hverju
orði nautshaus og asna. Þegar þau
höfðu setið þama á kistunni langa
stund, stóðu þau upp og gengu út. Lá
Áma þá við að reka upp hljóð, því
hann vissi að kistan var nú læst, en
þó gerði hann það ekki, því honum
þótti hálfóviðkunnanlegt að láta
draga sig upp úr læstri kistu inn í
búrhomi. Braust hann um fast en
vann ekkert á enda var kistan úr eik
og allrammgjör. Var hann nú þama
undir lás alla nóttina og leið ekki
sem best, hvorki á sál né líkama.
Daginn eftir hófst uppboðið. Vom
innanhúsmunir og aðrir dauðir hlutir
boðnir upp á undan lifandi peningi,
þangað til ekkert var eftir nema kist-
an. Var hún seinast tekin. En þegar
hún var borin út þótti hún svo þung
að allir undmðust. Átti þá að opna
hana en lykillinn fannst hvergi. Kom
þá sú tillaga að hún skyldi verða
boðin upp með innihaldinu. Var
bóndi tregur til en lét þó loks til leið-
ast, heldur en að brjóta hana upp.
Kepptust allir við að bjóða í kist-
una, því þeir hugðu vera í henni eitt-
hvert ágæti, annaðhvort smjörbelgi
eða tólgarskildi, eða þá bankabygg
eða baunir, enda styrktust menn í
þeirri trú við það að bóndi lét fylgja
henni 15 krónur og gerði jafnvel boð
í hana eftir það að hún var komin
yfir 20 krónur.
Voru nú olnbogaskot mikil og
hnippingar, því allir vildu skoða kist-
una, þreifa á henni og helst að taka
hana upp, en það vom ekki nema
einstöku menn svo færir að þeir gætu
lyft henni frá jörðu. Hinir urðu að
láta sér nægja að þukla um hana og
reka í hana fótinn.
Kepptust menn nú við að bjóða í
kistuna, en þegar hún var komin yfir
30 krónur var hún slegin karli þar í
hreppnum, sem Teitur hét.
Hélt nú uppboðið áfram en seinast
um kvöldið vom hestamir boðnir
upp. Vom þeir allir reknir heim á
bæjarhól þangað sem kistan stóð. Var
nú farið að bjóða í hestana og gekk
það greiðlega.
Loks kallaði sýslumaður upp að
menn skyldu gera boð í gráan fola,
fyrirtaks hestefni. Buðu menn nú í
hann þangað til komnar vom 30
krónur.
Þá heyrðist kallað 35 krónur. Var
eins og hljóðið kæmi úr tómri tunnu
og vissi enginn hvaðan það kom.
Sýslumaður leit yfir mannþyrping-
una og spurði hver hefði boðið 35
386 Heima er best