Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 15
Bæjarhús í Reykjahlíð um 1930.
Hvíta byggingin er steinhúsið sem
í greininni nefnist “Gamli bœr-
inn. “ Vinstra megin við það er
eldri torfbœr en blómagarðurinn
til hægri. Efvel er að gáð, má sjá
skilti landssímastöðvar yfir dyrum
á þili torfbæjarins.
Hótel Reykjahlíð, sem fjölskylda
Sigurðar Einarssonar byggði.
Héðinn, fæddur 20. september 1949, bóndi Geiteyjar-
strönd. Kona hans: Hulda Finnlaugsdóttir, kennari, fædd
4. apríl 1953, en þau eru nú skilin. Börn þeirra: Tryggvi,
fæddur 11. júní 1974, dáinn 16. maí 1993, Erna fædd 10.
janúar 1976, Jóhannes Pétur, fæddur 31 mars 1979, Helgi,
fæddur 13. apríl 1988 og Einar, fæddur 20. apríl 1990.
Sigrún, fædd 9. maí 1953, póstafgreiðslumaður, Mý-
vatnssveit. Maður hennar: Friðrik Lynge Jóhannesson,
fæddur 24. apríl 1951, starfsmaður Kísiliðjunnar. Börn
þeirra: Sverrir, fæddur 1. janúar 1975 og Daði, fæddur 4.
janúar1979.
Kristín Þuríður Sverrisdóttir, fædd 6. desember 1959,
kennari, Reykjavík. Bamsfaðir: Jóhannes Hjálmarsson.
Barn þeirra: Bjartmar Þorri, fæddur 5. júní 1978.
Gísli, fæddur 18. maí 1961, tæknifræðingur, Reykjavík.
Kona hans: Lilja Sigríður Jónsdóttir, kerfisfræðingur,
Reykjavík. Börn þeirra: Aldís, fædd 18. apríl 1983,
Eyrún, fædd 27. nóvember 1990, og Tómas, fæddur 17.
september 1994.
Áður en Víðihlíð kom til bjuggum við ásamt foreldrum
mínum og systkinum og fjölskyldum þeirra í upphaflega
íbúðarhúsinu í Reynihlíð. Síðar byggðu Snæbjöm, bróðir
manni að hægt væri að halda áfram á þeirri braut.
Mannsefnið, Sverrir Tryggvason frá Víðikeri í Bárð-
ardal, kom hingað til að vinna við byggingu Hótels
Reynihlíðar, þess sem tekið var í notkun 1949 og er í
notkun enn í dag eftir margar stækkanir. Upphaf-
lega var hótelreksturinn í íbúðarhúsinu sem byggt
var 1942 - 43 þegar foreldrar mínir stofnuðu nýbýlið
Reynihlíð. Mér er það minnisstætt þegar það hús var
tekið í notkun þá þóttu þetta svo stór salarkynni og
mikið í ráðist að haldin var heilmikil vígsluhátíð.
Séra Hermann Hjartarson hélt ræðu, flutti heillaósk-
ir og blessaði húsið. Þá sagði hann að sig hefði
dreymt það að þetta hús væri einungis byrjunin. Út úr því
hefði komið angi hér og angi þar og hann vissi að þetta ætti
eftir að blómgast og blessast og verða mikið og gott. Þar
vom flutt ein þrjú kvæði og á eftir var hent gaman að einni
vísu sem þar kom fram og var þannig:
Ráði guð í Reynihlíð
rétt að kalla öllu.
Gœfan við þeim brosi blíð
sem búa íþeirri höllu.
Orðin: „...rétt að kalla öllu“ þóttu ekki vel heppnuð
þarna svo að höfundurinn kom daginn eftir og sagði að
líklega væri betra að hafa vísuhelminginn: „Ráði guð í
Reynihlíð raunverulega öllu.“
Við Sverrir byggðum okkur íbúðarhús og stofnuðum
nýbýli, sem við nefndum Víðihlíð og fluttum inn 1958. Á
þeim árum fengu menn styrk til að byggja nýbýli ef menn
áttu jörð af ákveðinni stærð. Sverrir gerðist þátttakandi í
félagsbúi hér með Ármanni bróður mínum en því sam-
starfi lauk fyrir nokkm en ég get eiginlega ekki ársett
hvenær það varð. Börn okkar eru:
Heima er bezt 11