Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 18
Valgeir Sigurðsson: Stúderingar í bók lífsins Síðla sumars 1977 rak skemmtilegan viðmœlancla á fjörur mínar. Sá hét Guð- mundur Einarsson, kennari að mennt og hafði þá kennt í Heyrnleysingjaskólanum í full þrjátíu ár. En þó að maðurinn vœri umflest nœsta girnilegur til fróðleiks, þá varþó einn hlutur ífari hans, sem heillaði mig lang mest. Það var sú leiftrandi gamansemi, samfara djúpri alvöru, sem hann reyndist búa yfir, þegar við fórum að tala saman. Og ekki hafði hann hátt eða sló um sig. Ekki nú aldeilis. Menn, sem þjást af monti afreiddi hann svona: „... efþaó hefur komist loft í þá... “ (- Já, efþeir höfðu orð- ið fyrirþví óhappi að gleypci ofan í sig vind!) Og þegar hann hafði lýst fer- legu brœðikasti hjá stórorðum manni, bœtti hann við: „ Svo stóö hcinn andartak kyrr og hugsaði. “ (- Kannski heldur um seinan að fara þá að hugsa!) Svona viðmælandi var Guðmund- ur heitinn Einarsson. Ég lærði því fljótt að taka vel cftir radd- blæ hans og svipbrigðum, því að þau sögðu oft miklu meira en orðin, sem hann mælti, hægt og hljóðlátlega. Því miður er nú ekki lengur neinn kostur á slíku, þar sem Guðmundur hefúr fyrir löngu yfirgefið það svið tilverunnar sem við byggjum, en ráðleggja vildi ég þeim, sem kunna að lesa þennan gamla þátt, að huga vandlega að orð- um viðmælanda míns. Því að vissu- lega reyndi ég að láta setningamar endurspegla þann hugblæ, sem sveif yfir vötnunum í samræðu okkar. Að svo mæltu skulum við gefa Guð- mundi kennara orðið: - Ef þú vilt heyra eitthvað um upp- haf mitt, þá fæddist ég á Eíamri í Naut- eyrarhreppi í Norður-ísafjarðarsýslu, 28. maí árið 1917. Faðir minn, Einar Friðriksson, var fæddur 19. september 1885, í Drangavík í Ameshreppi í Strandasýslu. Móðir mín og hann gift- ust ekki, en kona föður míns var Lárusína Fjeldsted, og hann var seinni maður hennar. Þau bjuggu m.a. í Reykjavík og hjá þeim var ég fyrstu árin mín þar, á meðan ég var í Kenn- araskólanum. Móðir mín, Flalldóra Ámadóttir, fæddist 19. september 1883, á Melum í Víkursveit í Strandasýslu. Giftist ekki, en var vinnukona á ýmsum bæj- um við Djúp. Flún var ákaflega dug- leg, og svo þrifin, að á orði var haft. - Þú hefur þá ekki alist upp með báðum foreldrum þínum, þar sem þau bjuggu ekki saman? - Nei. Fósturforeldrar mínir frá fæð- ingu og fram til átta ára aldurs voru Guðmundur Kristjánsson, húsmaður á Hamri á Langadalsströnd, fyrmrn bóndi þar, og amma mín, Ingibjörg Óladóttir, ráðskona hans. Guðmundur Kristjánsson dó árið 1926. Upp ffá því telst ég fósturbam Hávarðar, sonar Guðmundar Kristjánssonar og konu Hávarðar, Sigríðar Guðmundsdóttur. Amma mín var áffam á Hamri, eftir lát Guðmundar, og þar dó hún. Þau Hávarður bóndi á Hamri og kona hans, eignuðust ekki böm, en þó var heimili þeirra ekki bamlaust. Þau munu hafa alið upp tólf böm, sem flest vom þeim óskyld og óvanda- bundin, en áttu enga að. Þetta segir meira um innræti þeirra og alla gerð en löng ræða, enda veit ég ekki betur en að allir hafi lokið upp einum munni um það, að á Hamri hafi jafnan staðið opnar dyr þeim er minna máttu sín, hvort sem það vom böm, gamalmenni eða aðrir, sem á einhvem hátt stóðu höllum fæti í lífinu. Og reglusemi og snyrtimennsku þeirra Hamarshjóna var við bmgðið. - Þú hefur auðvitað notið þeirrar bamafræðslu, sem tíðkaðist á uppvaxt- arárum þínum? - Bamanámið var samtals tólf mán- uðir. Auðvitað farskóli og við lærðum mikið, þótt námstíminn þætti sjálfsagt ekki langur nú á dögum. Þetta var in- dæll tími. 14 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.