Æskan - 01.06.1933, Síða 8
48
ÆSKAN
(M
alcLratfarlinn góhx*
1. Pétur hafði lagt járnbraut fyrir
litlu eimlestina sína, úti í garðinum.
Hann hafði búið til jarðgöng og sett
upp merki, og við járnbrautina
stóðu tindátar. Pað voru Arabar með
vefjarhelti á höfðum og í hvítum
skikkjum. Pétur hugsaði sér, að það
væri járnbrautin yíir endilanga Af-
ríku, sem hann hafði lagt.
2. Yfir skurð einn hafði hann byggt
járnbrautarbrú, og nú þaut hrað-
lestin af stað. Hún átti að fara frá
Kairo til Höfðakaupstaðar. Pétur
hafði lesið margar bækur um Afríku,
bæöi skáldsögur og ferðaminningar,
svo að hann sá það greinilega i hug-
anum, hvernig járnbrautin átti að
vera í raun og veru.
3. Og allt í einu virtist honum lestin
verða geysistór. Hún óx í augum
hans og varð eins og venjuleg járn-
brautarlest. Hann stóð sjálfur bak
við eimvagninn, klæddur hvitum
einkennisbúningi, með hvítan, barða-
stóran hatt á höfði. Lestin þaut
með miklum hraða fram hjá smábæ
einum í Sudan.
4. Lestin flaug áfram með hundrað
kílometra hraða á Idukkustund. Og
dagurinn leið óðíluga, unz komin
var nótt, Nú fór hún yfir volduga
brú, fram hjá háum fjöllum og yíir
breiðar ólgandi ár. Stór fíll stóð og
starði á járnbrautarlestina og Pétur
veifaði glaðlega til hans.
5. En Pétur sá ekki, að galdrakarl-
inn góði stóð ósýnilegur við hlið
hans og brosti mjög ánægjulega.
Pegar Iestin komst til Kapstaðar, þá
varð hún að ofurlitlu leikfangi, og
Pétur var í blómagarðinum heima
hjá sér. Galdrakarlinn góði fór leiðar
sinnar og kinkaði glaðlega kollinum.
6. Pegar Pétur var háttaður'þetta kvöld,
stóð galdrakarlinn allt í einu í glugga-
kistunni. »Nú þarf eg ekki að koma til
þín oftar«, mælti hann, »því nú gelur
þú sjálfur lifað þig inn í raunveruleik-
ann«. Og siðan hvarf hann.— Núgeta
lesendurnir reynt, hvort þeim í leikjum
sinum tekstað faraeinsaðogPéturlitli.
Kennarinn (í reikningstíma); Heyrðu,
Gunnar, ef Kári gæíi þér þrjár kanínur—
Gnnar: Kári á engar kanínur.
Kennarinn (gramur); Pað er sama.
Ef þú fengir þrjár hjá Kára og þrjár
lijá Óla. Hve margar ættir þú þá?
Gunnar: Sjö.
Kennarinn: Dæmlaus slóði ertu að
reiknal
Gunnar: Eg á eina kanínu fyrir.
HTfT* Minnist gjalddaga
blaðsins, sem er 1. júlí.
OooooooooooaooaooooooooooooooooooO
Bókaútgáfa „Æskunnar":
Sögur Æskunnar I. og II. h. Sögur og
kvæði Sig. Júl. Jóhannesson, innbundið
í gyllt band kr. 5,50.
Sögur Æskunnar III. h. Ottó og Karl,
innbundið í gyllt band kr. 3,00,
í lakara bandi — 1,25.
Sögur Æskunnar IV. h. Karen, inn-
bundin í gyllt band kr. 3,50,
í lakara bandi — 3,00.
Bækur þessar fást hjá bóksölum.
Ritstjóri: Margrét Jónsdóttir.
lUkisprentsmiðjan Gutenberg.