Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1935, Page 4

Æskan - 01.09.1935, Page 4
100 ÆSKAN Þarna stóðu þeir einir tin eða tólf rétt við klefa- dyrnar, og vissu ekki sitt rjúkandi ráð. „Það er ekki ólaglegt að larna,“ nöldraði einhver. „Komast livorki upp né niður, og kalla þetta skrapalól loftskip, sem liægt sé að stýra ó alla vegu.“ Óli lagði eyra við skráargatið og hlustaði á allar ])essar orðaræður. Hami var svo æslur, að hann gat naumast staðið kyrr. Hjartað lamdist svo um i brjóstinu, að honum fannst það hljóta að lieyrasl út til ínannanna. Hann liafði heyrt hvert orð. „Það i)er ekki fullorðinn mann,“ sögðu þeir. En kannske gat það borið dreng, sem ekki er meira en hundrað tuttugu og átta séntimetrar á h;eð, og vegur þrjátíu og sex kíló ? Skipstjórinn tók nú til máls. „Hvað eruð þér þungur, Gockele?“ sagði hann. Gockele llugsaði sig um. „Eg er ekki viss um það. Eg hefi ekki vigtað mig siðan i fyrra, og ])á var eg sjö- tíu og þrjú kíló.“ „Uss, það er allt of mikið,“ svaraði ski])stjóri. „Og þó eruð þér víst léttasti maðurinn á skipinu. Þér hefðuð átt að vega sjötiu og þrjú pund, það hefði verið hæfilegt.“ Óli þoldi ekki lengur mátið, þegar hann heyrði ]>etta. Hann rykkti slánni frá hurðinni, lauk upp og snaraðist fram lil mannanna. Hann sneri sér að skip- stjóra. „Hvað er nú þetta?“ sagði skipstjóri forviða og byrstur. „Eg er nú alveg steinhissa. Hvernig í ósköpunum stendur á þessu?“ Óli stamaði út úr sér: „Eg eg veg ekki - veg ekki . . ..“ En enginn hlustaði á hann. Allir blíndu á hann, bálvondir. Skipstjóri varð fyrstur til orða aflur. „Leynifar- ])egi“, sagði hann. „Farið með hann, og seljið hann í einhverja erfiða vinnu, þangað til eg hefi tíma til að yfirheyra hann.“ Óla féllst alveg Imgur, en reyndi þó að segja eitlhvað. „Hlustið þér á mig, eg ætlaði bara ....“ Þá varð skipstjóri öskuvondur. „Eg hef engan tíma til að tala við svona lúsablesa eins og þig,“ sagði bann. Áður en Óli vissi af, gripu tvcir menn hann og leiddu hann burt, annar dró, en hinn rak á eftir. Nú eða aldrei, lmgsaði Óli, og hlevpti i sig öllum þeim kjarki, sem hann álti til. „Eg býðsl lil að klifra út á liæðarstýrið," hrópaði hann eins hátt og hann gat. „Eg veg ekki nema þrjátíu og sex kíló.“ Það sem nú gerðist, g'ekk svo fljótt, að Óla fannst oft síðar, að hann hefði hara dreymt ])að. Skipstjóri öskraði: „Kyrrir.“ Mennirnir sneru við með Óla, og allir þutu í sprclti aftur eftir öllum ganginum. Skip- stjórinn kom síðasl, másandi og blásandi, því að hann var svo feilur. Þarna var riæstum öll skips- höfnin saman komin. Þeir námu slaðar aftast í gang- inum. Þar var op, með hlera fvrir, og þar var hægt að komastút. „Sjáðu,“ sagði skipstjóri. „Hér verður þú að fara úl. Sérðu strenginn \ þarna til vinstri? Gott. Með honum er hæðarstýrið hreyft, en nú er liann fastur í burðarplötunni þarna uppi. Þess vegna ) er nú ekki liægt að hreyfa hæðarstýrið. Skilurðu það?“ Hvort Óli skildi það! Hann Q brá hendinni upp að húfuderiuu og skellti 's. saman hælum að liermanna sið og sagði: ) „Reiðubúinn, lierra skipstjóri.“ Svo klifr- aði hann út í opið. Eitt andartak nam aö* hann þar staðar og hugsaði: Pabbi og mamma, Agga og allir lieima, eg skal geta þctta. Þið þurfið ekki að vera hrædd, eg skal geta það. „Við skulum binda þessu utan um þig,“ sagði skipstjóri, og kom með eudaim á löngum og léttum kaðli. Óli batt honum um sig miðjan, en skipstjóri aðgætti bnútinn vandlega. Hann var réttur. „Ul með ])ig,“ sagði skipsljóri. „Við erum alveg að komast inn í skýjaflóka, og við verðum að gela liækkað flugið, tafarlaust." Óli klifraði út. Hann ríghéll sér í hverja handfesti, sem liann fann, og mjakaði sér smám saman út eftir plötunni. Allra snöggvast leit hann niður, en þá lá við að liann hrapaði. Hann sá niður í óendanlegt dýpi, tærl og hreint eins og Bláfjallavatnið i sólskini. Og langt, langt niðri blikaði einliver heiðblá, enda- laus víðátta. Það var bafið. Óli flýtti sér að loka augunum og fikraði sig áfram. Hann gætli sín að lila ekki niður, því að þá snarsvimaði hann. Var hann nú ekki bráðum kominn að hæðarstýrinu? Hann liéll áfram, hægt, en ótrauður. En bvað var þetta? Allt í einu gullu við skelfingarop frá mönnurium, sem stóðu við dyrnar. Platan, sem liann stóð á, svignaði. Óli steyptist á höfuðið niður í gínandi djúpið, og hafði ekki einu sinni tíma lil að æpa, livað þá heldur lil að verða hræddur. Þetta bar svo brátt að. I einu vetfangi skildi hann þó, að allt var úti. Nístandi ang- isl greip hann. Hann féll eins og steinn, loftið var kalt, og hvað tók við? Líklega hafið. Allt í einu var rvkkt svo harkalega í liann, að hann missti alveg and- ann. Honum fannst brjóstið bögglast saman, en hann var liættur að hrapa. Loks skildi hann, að hann hékk í bandinu, sem liann liafði bundið um sig. Hinn endinn var bundinn fastur í skipinu. Framh.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.