Æskan - 01.01.1958, Page 4
ÆSKAN
ÍSLENDINGA SÖGUR II.
Gxmnar
oé Hall^erður.
— Hversu munt þú svara,
ef ek bið þín? segir Gunnarr.
Þat mun þér ekki í hug, segir
hon. Eigi er þat, segir hann.
Ef þér er nokkvarr hugr á,
segir hon, þá finn þú föður
minn. Siðan skildu þau talið.
Njáls saga.
Ekki vandsvarað.
Kennari nokkur spurði dreng: „Hvað er
rétt og hvað er rangt?“
„Það veit ég ekki,“ sagði drengurinn.
„Ef hún móðir þin gefur lionum bróður
þínum epli og þú hrifsar það af honum,
hvað gerirðu þá?“
„Ég ét það,“ sagði drengurinn.
Talið er, að um 300 tegundir af skjald-
hökum séu til. Þær skiptast aðallega í þrjá
flokka, landskjaldbökur, vatnaskjaldbök-
ur og sæskjaldbökur. Skjaldbaka dregur
nafn sitt af því, að hún er með skel á bak-
inu og getur skriðið inn i hana og falið
sig þar, ef hún verður fyrir árás. Á kviðn-
um er önnur skel, sem fellur alveg að
hinni, þcgar skjaldbakan hefur dregið
inn fætur og haus.
Bakskelin er samsett af 13 skeljum og
mörgum randskeljum, sem allar vaxa með
aldrinum og má á þeim sjá, livað skjald-
bakan er gömul. Skeljar af mörgum slcjald-
bökum eru cftirsóttar og eru smíðaðir úr
þeim alls konar gripir.
Huunæli
Reykj avíkurblaðanna.
Hér koma nokkur ummæli Reykja-
vikurblaðanna um jólablað Æskunnar:
Alþýðublaðið, 15. des. — Barnablaðið
Æskan og Flugfélag íslands efna til mynd-
arlegrar ritgerðasamkeppni barna og
unglinga undir 15 ára aldri. Ritgerðaefn-
ið er: Hvaða þýðingu hafa flugsamgöng-
ur fyrir íslendinga? — Jólablað Æskunn-
ar er vandað, fjölbreytt og skemmtilegt..
Margar greinar eru í ritinu, jólaleikir,
myndir og annað gott lesefni fyrir yngri
lesendurira.
Morgunblaðið, 15. des. — Jólablað Æsk-
unnar er nú komið út — og er eitt lrið
fjölbreyttasta barnablað á Norðurlöndum.
— Æskan efnir nú meðal annars til
skemmtilegrar ritgerðasamkeppni fyrir
börn. — Veitir Flugfélag ísiands nrjög góð
verðlaun, meðal annars flugfar til Kaup-
mannahafnar og heim aftur. Óhætt er að
i'ullyrða, að margan unglinginn mun fýsa
að freista gæfunnar og reyna rithæfileik-
ana. Blaðið er hið vandaðasta að öllum
frágangi og er ritstjórum til liins mesta
sónra.
Tíminn, 20. des. — Jólablað Æsltunnar
er nýlega komið út, skemmtilegt og fjöl-
breytt að vanda. Á forsíðu er litprentuð
mynd af frægu málverki eftir málaranu
Gitto di Bondone, sem uppi var fyrir sex
hundruð árum. Efni blaðsins hefst á jóla-
hugvekju eftir séra Jón M. Guðjónsson.
Þá eru fjölmargar þýddar og frumsamdar
sögur, smágreinar til skemmtunar, leikir,
getraunir og fleira, sem hér yrði of langt
upp að telja. En það, sem einna mesta
athygli mun vekja í blaðinu, er, að Æskan
og Flugfélag íslands efna til ritgerðasam-
keppni fyrir börn.
Vísir, 17. dcs. — Jólablað Æskunnar er
nýkomið út, vandað og fjölbreytt að cfni
að venju.
Þjóðviljinn, 13. des. — Barnablaðið
Æskan og Flugfélag íslands efna til glæsi-
legrar ritgerðasamkeppni barna að 15 ára
Minnsta bók heimsins.
Minnsta bók hejmsins, — blaðsíðurnar
eru ekki stærri en brennisteinn á eldspýtu
—, þarf þolinmóðan lesanda. Hún er 4x3.75
millimetrar á stærð og á opnu blaðsíðunni
cr hægt að lesa: Faðir vor.
Lánaðu mér 100 krónur.
Dóri flakkari mætti einu sinni Jóni kaup-
manni á götu, og áttu þcir þá saman eftir-
farandi samtal.
Dóri: Reykir þú?
Jón: Nei.
Dóri: Drekkur þú?
Jón: Nei.
Dóri: Spilar þú peningaspil?
Jón: Nei.
Dóri: Ferðu oft i bíó, leikhús eða dans-
leiki?
Jón: Nei.
Dóri: Ágætt er nú að heyra þetta. Þú
getur þá lánað mér 100 krónur.
aldri. Ekki er að efast um að börnin muni
fagna þessu skemmtilega tækifæri og ekki
láta standa á samkeppnisritgerðum. Jóla-
blað Æskunnar er injög fjölbreytt og
skemmtilegt. Auk stærri greina blaðsins
cru margar síður, er flytja jólaleiki, mynrl-
ir og ýmis viðfangsefni. Mjög skemmtilegt
lesefni fyrir fólk á þeim aldri, sem Æskan
er skrifuð fyrir.
Skjaldbökur eiga langan feril að baki
sér. Af þeim hafa fundist steingjörvingar,
sem eru að minnsta kosti 175 ára gamlir.
Versti óvinur landskjaldbökunnar er kuld-
inn eins og allra skriðdýra. Hún er með
„köldu blóði“ og liggur allan veturinn í
dvala svo langt niðri i jörðinni, að frost
ná henni ekki. Engar tennur hefur lrún og
getur því ekki tuggið. En brúnirnar á
skoltum hennar eru úr hörðu bcini og hár-
hvassar, og neðri skolturinn fellur ná-
kvæmlega upp í efri skoltinn. Skoltarnir
eru því eins og skæri og þannig klippir
lrún matinn ofan í sig og gleypir irvern
bita. Skjaldbökurnar verða stærstar og
fjölbreyttastar í Iiitabeltinu, en á íslandi,
og í löndum með svipaðri veðráttu og
kaldari, get þær alls ekki þrifizt.
2
J