Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1961, Síða 8

Æskan - 01.01.1961, Síða 8
ÆSKAN Þarna komu Tjim-tjim og Lotta akandi í áttina til hans. sem hann hélt opnum, um leið og hann sagði: „Gerðu svo vel að stíga inn — lest- in fer eftir andartak til Leikfanga- lands.“ Benni varð yfir sig hissa. Hvað var þetta eiginlega? Lestin hafði stækk- að, svo að hann gat farið inn í hana — og það var einmitt það sem hann gerði. Þá flautaði lestarstjórinn, guf- an stóð upp úr eimvagninum og lestin fór á hreyfingu. En hvað þetta var spennandi. Benni minntist þess, þegar hann hafði síðast ferðazt með lest. Það var um jólin, er hann hafði farið með pabba og mömmu upp i sveit í heim- sókn til afa og ömmu. En þetta var allt mikln undarlegra í dag. Hann var aleinn og hafði enga hugmynd um, livert hann var að fara. Lestin þaut áfram. Hann reyndi að horfa út um gluggann, en gufunni frá eimvagninum sló fyrir gluggann, svo að hann gat ekki séð, hvernig umhorfs var úti fyrir. Nú hægði lestin ferðina og loks staðnæmdist hún alveg. „Allir út. Leikfangaland," heyrði hann kallaði hárri röddu, og Benni flýtti sér út úr járnbrautarklefanum. Þetta var sannarlega skemmtilegur staður. Þarna var raunverulegur bær. Húsin litu út eins og tréhúsin, sem leikfélagi hans átti heima, þarna óku upptrekktar bifreiðir, trén voru 6 stinn og græn, þarna var brú og lengra í burtu viti, hvorttveggja smíðað úr „mekkanó“, tindátar þrömmuðu í áttina til kastala, sem leit út alveg eins og kastalinn í leikfangaverzlun- inni við torgið heima . .. En þarna voru allir lifandi. Litlu, undarlegu dýrin og fólkið — allt var á stöðugri hreyfingu. Flugvélar þutu yfir og lestin ók áfram. Þetta var mjög skemmtilegt. „Hvar er ég eiginlega?“ spurði Benni litla lestarstjórann, sem orðið hafði eftir til þess að sýna honum þennan skemmtilega bæ. „í Leikfangalandi auðvitað," svar- aði maðurinn. „Það var jú þangað, sem þú vildir fara, var það ekki? Að minnsta kosti fór lestin hingað og ef þú vildir ekki koma, hvers vegna steigstu þá inn í hana?“ Benni varð dálítið ruglaður. Hann skildi þetta ekki vel. En lionum leið svo prýðilega núna, að allt var í lagi. Hann gekk því lengi með litla mann- inum og skoðaði bæinn, en að lok- um var hann orðinn svangur. „Ertu orðinn svangur?“ spurði maðurinn, þegar Benni sagði hon- um, að sig væri farið að langa í mat. „Komdu með mér og við skulum fá okkur eitthvað að borða.“ Þeir fóru nú inn í verzlun, þar sem stóðu föt og skálar með kökum, ávöxtum og alls kyns hnossgæti, en Benna varð illilega bilt við. Þetta var allt saman úr pappa, tré eða ein- Jú, þarna voru gömlu vinirnir hans. hverju hörðu og var allt gjörsamlega óætt. Jú, lestarstjórinn borðaði þetta og virtist falla það vel, en Benni gat ekkert borðað. Honum fannst máln- ingarbragð að þessu, þótt hann gerði ekki nema reka tunguna í það. „Ég held, að ég vilji lielzt fara að komast heim,“ sagði hann hálf ótta- sleginn. Hann mundi nú líka eftir súkkulaðinu og afmælistertunni, sem mamma var búinn að baka. „Það er alveg útilokað í dag,“ svaraði lestarstjórinn ákveðið, „það ler engin lest í dag.“ „fá, en þetta er aímælisdagurinn minn . . . og ég þarf að lara heim . . . við eigum að fá súkkulaði ...“ Benni var að gráti kominn, en svo mundi hann eftir ]jví, að hann var orðinn fimm ára, og þá grætur maður ekki. „Tjim-tjim! Tjim-tjim!“ heyrðist allt í einu skammt frá. Benni varð alls hugar feginn, }jví að þarna komu trúðurinn Tjim-tjim og Lotta :í átt- ina til hans. Trúðurinn sat klol'vega á einum vagnanna aftan við eimvagn- inn og Lotta var aftast. Það var sann- arlega gaman að sjá þau. „Viltu koma með heim, Benni?“ spurði Tjim-tjim. „Seztu þá á hana Lottu, það er fljótlegast.“ Benni liugsaði sig ekki um tvisvar. Hann var reyndar hissa á því, hve Lotta var orðin stór, en hann velti því ekki lengi fyrir sér, lieldur stökk upp á bakið á sínum trygga liesti. Tjim-tjim sló saman höndunum og... „Tjim-tjim!“ heyrðist, og þarna sat Benni heima á borðstofugólfinu og nýja lestin stóð fyrir framan hann. Hajm liorfði ringlaður í kring um sig. Svo stóð hann á fætur, hljóp að litla skápnum, þar sem hann geymdi leikföngin sín, og opnaði hann. — Jú, þarna voru gömlu vinirnir hans tveir, Tjim-tjim og Lotta. Hann tók þau bæði út. Hann ætlaði sannarlega að leika sér við þau Hka, þótt hann væri búinn að fá þessa fallegu járn- brautarlest. Alltaf, hugsaði Benni, gat maður bezt treyst sínum gömlu vinum.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.