Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1961, Blaðsíða 12

Æskan - 01.01.1961, Blaðsíða 12
ÆSKAN Þannig liðu þrjár stunclir. Vindinn lægði, og loks varð alveg logn. Alger þögn ríkti í skóginum kringum þá. Ef minnsti kvistur hefði verið brotinn, eða ef skrjáfað hefði í þurru laufi við að einhver reyndi að læðast að jreim, hefði Jrað heyrzt. En allt var kyrrt. Top lá með hausinn fram á lappir sínar, hinn rólegasti. Um jrað leyti, er orðið var fulldimmt, héldu þeir Penc- roff og Spilett fram úr skóginum til að njósna. Báðir höfðu byssu og voru reiðubúnir að hleypa af, hvað sem út af bæri. Þeir komust að girðingunni án þess að verða nokkurs varir. Hliðið var lokað og slá fyrir að innan. Þeir gengu spottakorn með girðingunni, Jrangað til Jteir komu móts við gluggann á húsinu. Inni logaði ljós. En hvernig sem þeir hlustuðu, gátu þeir eigi nokk- urt hljóð heyrt frá því. Sennilegast var að ræningjarnir svæfu. Gætu þeir komið þeim að óvörum, var ekki von- laust um, að jreir gætu náð þeim öllum á vald sitt. Pencroff og Spilett héldu aftur til félaga sinna. Þeir réðu ráðum sínum stutta stund og urðu allir ásáttir um, að gera atlögu tafarlaust. Þeir héldu þegar af stað. En jregar að girðingunni kom, brá jreim heldur í brún. Hlið- ið stóð galopið! „Ræningjarnir hljóta að hafa gengið um síðan áðan,“ sagði Spilett lágt. Þeir gægðust inn fyrir. Ekkert sást og ekkert heyrðist. Þeir fóru því næst allir inn fyrir og læddust heim að húsinu. Smith fór að glugganum og leit inn. Það var ljósker á borðinu, en húsið sýndist mannlaust. Nei, nei, þarna hreyfðist jjó eitthvað í rúminy. Srnith sá strax, að það var maður. Hann hreyfði sig til aftur, svo að birtan féll á andlit hans. Það var Ayrton! Að mínútu liðinni voru allir komnir inn. Ayrton virt- ist sofa. Auðséð var af andliti hans, að hann hafði tekið mikið út, og djúp för um úlnliði og ökla báru það með sér, að hann hafði verið bundinn. Smith beygði sig yfir hann og nefndi nafn hans. Ayrton opnaði augun og leit á Smith. „Hvar er ég?“ umlaði hann. „í húsi yðar, í girðingunni," sagði Smith. arinn minn kom út og bað um að kvikmyndamaðurinn ínætti fá að sjá mig. O-jú, lionum var )>að svo sem ekki of gott. Ég vildi helzt fá mömmu inn líka, en hún varð að bíða fyrir framan með liinum mæðrunum, á meðan við — þrjátíu til fjöru- tíu smákrakkar — spígsporuðum fram og aftur frammi fyrir kvikmyndamanninum. í næsta danstíma, í næstu viku, hlupum við og hoppuðum um og lékum fiðrildi, og j>á kom annar maður til að sjá okkur. Mér hafði ekki fundizt neitt gaman að }>ví þegar sá fyrri kom, því hann lét okkur bara standa í hóp, og ég faldi mig því með annarri telpu á bak við slaghörpuna. En maðurinn sá fæturna á okkur og fékk okkur til að koma fram. Þetta var Charles Lamont frá Educational Pictures og hann var að leita uppi 25 börn til að leika í keðju af hermimyndum, sem félagið ætlaði að gera, og hann valdi mig. Mamma varð hissa, en hafði þó gaman af því, þegar þeir sögðu henni, að þeir vildu gjarnan fá mig til að leika í þessari mynda-keðju. Hvorki pabba né mömmu hafði nokkru sinni dottið nokkuð slíkt í hug með mig; fjölskylda okkar hafði aldrei haft nokkurt samband við leikliús- eða skemmtana- lífið, en mömmu þótti samt vænt um þetta, því eins og flestar mæður, var hún ofur- lítið upp með sér af mér. Hún átti fullt í fangi með að fá pabba til að fallast á þetta; hann var því mjög mótfallinn, en þó varð hann jafníramt forvitinn að sjá hvernig ég stæði mig á tjaldinu, svo að hann lét loks undan. Mamma fór með mig til myndastöðvanna og þar byrjaði ballið. Ég hef aldrei séð annan eins fjölda af mæðrum og börnum saman kominn, eins og þarna, þar sem velja átti meðleikendur í þessar hermi-myndir. Þarna voru organdi börn, börn, sem þurfti að þurrka um nefið og börn, sem sífellt voru í áflogum. Við mamma héld- um okkur ofurlítið afsíðis, en ég ldýt að hafa verið hæfileg að stærð og vexti í eitt aðalhlutverkið, því þarna fékk ég mitt fyrsta markverða hlutverk. Það var sem sé engin minni en Dolores del Rio, sem ég átti að herma eftir. Þessar barna-hermimyndir voru stuttar myndir, þar sem skopast var dálítið að ýmsum frægum kvikmyndum, þannig, að börn voru látin leika öll hlutverkin. Á þeim tíma gaf þetta góðar tekjur. Ekki var nema fjóra daga verið að taka hverja mynd. Og ég fékk tíu dollara í laun á dag, og það var hreint ekki svo lítið fyrir mig aðeins þriggja ára. Ein myndin rak aðra svo ört, að ég átti innan skamms þó nokkra fjárhæð, sem mamma og pabbi geymdu vandlega fyrir mig. Ég lék aðal- kvenhlutverkin, sem kröfðust mjög skrautlegra búninga, en minni áherzla var lögð á talið. Framhald. Krydd lífsins. Salt er krydd lifsins, án Jiess væri ekkert lif til liér á jörðu. Og saltið er meira: Það er nú óðum að verða eitt fjölbreyti- iegasta hráefni í iðnaði nútím- ans. Talið er að það sé nú not- að i 14000 mismunandi þarfir. Næstum allur matur og næstum allir nytjahlutir, sem við sjáum, eru að einhverjum hluta gert úr salti, eða að salt hefur þurft að nota á einhverju stigi fram- leiðslu þess. Ársframleiðsla af salti í heiminum er nú kring- um 50 milljónir iesta. Mest mun saltnámið vera i Michigan i Bandarikjunum, um tíundi Iiluti af heimsframleiðslunni. Stærsta náman er undir iðnaðarborg- inni Detroit á 400 metra dýpi og eru unnar úr henni 400 lestir á klukkustund. Aigengasta og ódýrasta vinnuaðferðin til salt- framleiðslu er i Jjvi fólgin, að borað er eftir ]>vi. Þegar komið en niður á saltlag, er tvöfaldri pipu sökkt niður i lioluna. Nið- ur um ytri pipuna er dælt vatni undir þrýstingi. Það leysir upp saltið og leitar siðan saltmett- að upp urn innri pípuna. 10

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.