Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1961, Page 14

Æskan - 01.01.1961, Page 14
ÆSKAN 1% T Ú ER tækifæri að nota snjóinn af kappi, ykkur 111 til gagns og skemmtunar. Þið skuluð búa til snjó- | U kerlingar, hlaða snjóhús, reisa vígi og fara í snjó- X V kast. Þó skuluð þið allra helzt fara á skauta eða skíði. — Eigið þið skauta eða skíði? — Ef ekki, þá verðið þið lielzt að finna einhver ráð til að eignazt annað hvort þeirra, svo að þið getið haft sem fyllst not af jafn dásamlegu leikfangi og heilbrigðismeðali sem svell á tjörnum og snjór í brekkum er. Það er langtum meiri vandi að læra á skíðum en á skautum, og þess vegna birtum við hér nokkrar ráð- leggingar til þeirra, sem hugsa til skíðaferða í vetur. Þegar þið farið í fyrsta sinn að ganga á skíðum, hafið þið þau alveg samsíða og sem allra minnst bil á milli þeirra. Þið skuluð ekki hlaupa á skíðunum né bera fæturna ótt og títt, heldur taka löng skref og lyfta skíð- unum ekki frá snjónum, heldur láta þau renna eftir honum. Þegar þið eruð komin á ferð, á annað skíðið að renna áfram, meðan hinu er stigið fram, ef færi er sæmi- legt. Þegar þið rennið ykkur niður brekku, liafið þið vinstri fót lítið eitt framar en hinn. Líkamsþunginn hvílir að mestu leyti á liægra (aftara) fæti, en vinstra skíðið, sem Vetur á fjöllum. ÆSKAN ber lítinn þunga, er notað til að þreifa fyrir sér með. Þið verðið að vera mjúklega bogin í hnjám og mjöðm- um, svo að bolurinn lýtur dálítið fram. Líkaminn verður að vera stæltur og fjaðurmagnaður, svo að hann haldi jatnvægi á ferðinni. Ykkur er afar nauðsynlegt að æfa ykkur rækilega í að stýra skíðum, hafa vald á þeim og geta dregið úr ferð- inni, ef með þarf. Þið getið gert það með því að halda báðum stöfunum saman með báðurn lröndum öðrum megin við ykkur og draga þá síðan í snjónum. Ef þið notið aðeins annan stafinn, má hamla með lionum á sama hátt. Ef þið þurfið að fara upp brattari brekku en svo, að þið getið gengjð á skíðunum á venjulegan hátt, er um tvær aðferðir að ræða. Önnur er sú, að beita skíðistánum skáhalt út og upp í brekkuna, sinni til hvorrar hliðar, svo að stefna fótanna verði eins og á mjög útskeifum manni. Síðan er þannig gengið upp, að skíðinu er lyft frá snjónum við hvert skref. Hin. aðferðin er að ganga út á hlið. Sjálfsagt er að velja hægustu leið upp brekkur. Ef þið farið rétt að, er veturinn dásamlegur tími til leikja, engu síðri en sumarið. Vetrarmynd úr Mosfellssveit. !Nú. er tsekiíserí. Þeir, sf^erast nú um þessi áramót kaup- —-------------------- endin' ^^^NAR, og borga yfírstandandi árgang við þöntun, fá í kaupbceti s a arSang ÆSKUNNAR á meðan upplag endist. Athugið þetta kos^ strnx í dag! Skrifið eða komið. Árgangurinn kostar aðeins 45 kró* 0,?1 °g unglingar! Minnizt þess, að ÆSKAN er ykkar blað, og stœrsta og ódýrasta unglingablað landsins. Sýnið jafnöldrum ylikar i S^œsilega blað. Afgreiðslan er i Kirkjutorgi 4, simi 14235, pósthólf ÆSKAN inn á hvert drnaheimili Bandsins!

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.