Æskan - 01.01.1961, Blaðsíða 20
ÆSKAN
Englendingurinn George Ste-
plienson var fæddur 1781. Hann
fann upp eimreiðina. Eimreið,
sem liann smiðaði, náði yfir 30
km iiraða á klukkustund á járn-
braut, sem iögð var milli Liver-
pool og Manchester 1829. Þessi
fyrsta eimreið reyndist svo vel,
að Stephenson hafði nóg að
gera eftir ]>að til dauðadags við
að leggja járnbrautir, fyrst á
Englandi, en siðan í öðrum
löndum Evrópu.
<x
Tígrisdýr.
Það er álílta stórt og sterkt
og Ijónið, rauðgult að lit með
dökkum þverrákum. Tigrisdýr-
in eru svo sterk, að þau geta
borið mann, hest eða naut í
skoltinum. Þau sjá vel, heyra
vel, geta stokkið langt og hafa
beittar klær og tennur. Þau eru
mest á ferli um nætur, en sofa
um daga í bæli sínu.
Strúturinn.
Strútarnir eru stærstir allra
fugla, en ekki fleygir. Þeir eiga
lieiina í heitu löndunum, og
inest á grassléttum og við eyði-
merkur í Afríku og Asíu. Þeir
hafa langa og sterka fætur,
eru hálslangir, en höfuðið er
lítið. Bolurinn er svo stór, að
fullorðinn strútur er að þyngd
á við meðalmann. Fijótir eru
þeir á fæti, þegar hættu ber að,
og eru þrír metrar eða meira
milli sporanna, og enginn hest-
ur hefur við þeim á spretti.
Strútarnir sjá og heyra vel og
eru allt að þrír metrar á hæð
og 90 kg að þyngd. Egg strúts-
ins eru mjög stór. Eitt egg
vegur eins mikið og 20—24
liænuegg. Strúturinn hefur ver-
ið nefndur „liinn mikli hlaupa-
garpur eyðimarkanna".
$
Aldur jurta.
Eikin getur orðið 200 ára,
eðalgreni 300 ára, furan 400
ára, lævirkjatré 500 ára, lilyn-
ur 600 ára, fjallafura 1000 ára,
linditré 1000 ára, ahorn 500 ára,
askur 300 ára, elriviður 100 ára
og mammútatrén í Kaliforníu
3000 ára. Birkið og pílviðurinn
hætta báðir að vaxa um sex-
tugt.
Skozki rithöfundurinn Walter
Scott var fæddur árið 1771.
Hann sótti oftast söguefni til
liðinna alda. Lýsingar lians á
atliurðum þykja mjög snjallar
og lifandi. Sumar sögur hans
eru kunnar hér á landi, til
dæmis hin fræga unglingasaga
ívar lilújárn. Walter Scott and-
aðist árið 1832.
Hjátrú.
Margs konar lijátrú ríkir 1
Austurlöndum og koma hér
noltkur dæmi um það:
Ekki má maður matast við
horn á borði, þvi að þá giftist
hann aldrei. Ef manni verður
]>að á að brjóta gler eða spegil,
]>á boðar það óliöpp. Illur fyr-
irboði er það, ef svartur kött-
ur gengur fram hjá liúsi manns.
Enginn má gefa vini sínum
sápu, salt, edik, nálar, títu-
prjóna né vasaklút, ]>ví að það
verður til þess að slitnar upp
úr vináttunni. Ekki mega þrír
menn kveikja í vindlingi með
sömu eldspýtu, því að þá er sá
seinasti skammlífur. Það veld-
ur ógæfu, ef menn láta opin
skæri liggja á gólfi, eða sópa
gólfið eftir sólsetur. Þegar
maður sker hár sitt og neglur
18
Sögu** N asvedd.ins
I.
Fyrir mörgum öldum áttl
heima í Litlu-Asíu merkilegur
maður, er liét Nasreddin Kodja,
og var liann vitringur, skóla-
meistari og mesti æringi í senn.
Ekki ferðaðist Nasrcddin mikið
út fyrir þá liorg, sem hann bjó
i, en samt flugu sögurnar um
hann víða um lönd, og hér
munum við segja ykkur nokkr-
ar þeirra, og vonum, að þið haf-
ið skemmtun af. ,
*
Hvirfilbylur.
Einu sinni gekk Nasreddin
inn í annars manns garð og
sleit upp mikið af rófum, lét
þær i polta, sem hann hafði
með sér, og ætlaði síðan af stað
með þær. En i þvi kom cigandi
garðsins, þreif til hans og
spurði byrstur, livað hann væri
þar að gera.
„Ég fauk liingað inni i hvirf-
ilbyl,“ sagði Nasreddin.
„Svo! En hvar hefur ]>ú slit-
ið upp allar þessar rófur?"
sjiurði maðurinn.
„Þcgar ég kom niður, greip
ég í það, sem fyrir liendinni
varð,“ svaraði Nasrcddin, „en
bylurinn var svo sterkur, að
rófurnar fylgdu með, livar sem
ég greip niður.“
„Svo! En hver liefur þá látið
þær ofan í pokann?“ spurði
maðurinn.
„Já, það er nú einmitt það,
sem ég er að brjóta heilann
um,“ svaraði Nasreddin og virt-
ist mjög liugsandi.
verður að gæta þess, að ekkert
falli ú gólfið, því að ])á er guðs
reiði vís. Komi óvelkominn
gestur, á að sópa gólfið vand-
lega þegar hann er farinn og
strá salti á það.