Æskan - 01.11.1977, Page 47
Utsýni úr Sears-turninum er stórkostlegt og þaðan horfðu þeir Sveinn og Einar Már niður á aðra
skýjakljúfa. Þeir standa þarna á hæsta gólfi í helmi.
^anns í Sears-byggingunni og þar eru fimm stórir veitingasalir,
kaffjstofa sem tekur 1.500 manns í sæti og ótal þjónustufyrir-
taeki. Og eins og áður er á minnst þá eru rafmagns- og síma-
v'rar byggingarinnar samanlagt nógu langir til þess að ná
^r'nginn íkringum hnöttinn.
Allir sem til útlanda ferðast fara í verslanir. Það gerðu þeir
Lir|ar Már og Sveinn líka, þótt ekki væri um neina stórverslun
aö raeða. í hádegismatnum hittu þeir blaðakonu frá Chicago
^aily News og á eftir bauð hún þeim með sér í aðalstöðvar
L|aðsins. Þessi ágæta ameríska blaðakona var ættuð frá St.
L°uis, en var búin að starfa í nokkur ár við Daily News. Hún
sPurði Einar Má og Svein margra spurninga um Húsavík og
Norðfjörð, um fjölskyldur þeirra og m. a. hvað þeir hefðu fengið
a< hýjum fötum til ferðarinnar til Ameríku. Allt var gaman og
skemmtilegt og þetta var hin mesta ágætismanneskja, eða svo
fannst piltunum. Þetta var fyrsta blaðaviðtal sem þeir höfðu lent
1 Og ekki var blaðið af smærri gerðinni, því það kemur út í
8°0.000 eintökum. Blaðakonan hét Karen Cosner og hún lét
'iOsmyndarann, sem með henni var, taka mynd af þeim félögum
^sð skýjakljúfa Chicagoborgar í baksýn. Hún ætlaði að skrifa
fína grein um Ameríkuferð þeirra Einars og Sveins.
Skrifstofur og prentsmiöjur blaðanna Chicago Daily News og
^Un Times standa í hjarta Chicagoborgar, örstutt frá hótelinu
sem þeir gistu. Þeir gengu fyrst um prentsmiðjuna en síðan var
farið upp á ritstjórnarskrifstofurnar og þær skoðaðar. Karen
útskýrði fyrir þeim störf á fréttastofum blaðanna þar sem
blaðamennirnir skrifa og senda síðan handritin til fréttastjóra
og áfram í setningu og prentun og birtast í blaðinu sem fréttir
eða greinar. Þarna var skrifað á ritvélar upp á gamla móðinn. (
deildinni þar sem Karen vinnur var hins vegar búið að taka
nýtísku tækni í þjónustu blaðsins. ( stað þess að skrifa
greinarnar á ritvél var skrifað á tölvuborð og það sem skrifaö
var birtist á sjónvarpsskermi fyrir framan blaðamanninn. Þegar
blaðamaðurinn var búinn að leiðrétta, en það var auðvelt í
þessu tölvukerfi, og ganga frá greininni eins og hún átti að
vera, var greinin eða fréttin með einu handtaki sendi inn í
rafeindaheila sem síðan setti þetta upp á strimil og þá var
greinin tilbúin. Allt þetta útskýrði Karen og sýndi þeim Einari Má
og Sveini en fararstjórinn þýddi jafnóðum.
Síöan kvöddu þau Karen hina ágætu og héldu út í borgina.
Nú var ekki greitt aögöngu, því brýr, sem liggja yfir Chicagoána
höfðu lyfst vegna skipaumferðar. Það voru miklar hringingar
og rauð Ijós blikkuðu og það var mikil umferðartöf og þvarg í
miðborginni meðan skipin sigldu eftir ánni. Svo opnuðust
brýrnar aftur fyrir bílaumferð og hringingarnar hættu og í stað
rauðu Ijósanna blikkuðu græn Ijós til merkis um að nú mætti
umferð hefjast að nýju. Þeir Sveinn og Einar Már höfðu aldrei
séð brýr opnast og lokast og þaðan af síður séð skip sigla inn í
miðja borg eins og þarna gerðist. Þetta skeði hvorki á Húsavík