Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1988, Blaðsíða 17

Æskan - 01.04.1988, Blaðsíða 17
Geislaplötur eða vínilplötur? Er viturlegra að kaupa geislaplötuspilara en vínilplötuspilara? Þessarar spurningar spyrja margir þessa dagana. Gallinn er bara sá að svarið við henni er hvorki einfalt já né nei. Þess í stað er ráðlegra að velta fyrir sér eftirfarandi atriðum: - Fyrir verð einnar geislaplötu fást tvær vínilplötur. - Mikill meirihluti allra platna á markaðnum fæst einungis í vínilforminu. - Það er langt í land með að geislaplötuformið nái undirtökum í íslenskri plötuútgáfu. Til þess er markaðurinn of lítill (fyrir síðustu jól seldust 18800 eint. af plötunni Dögun með Bubba. Þar af voru 2700 geislaplötur. Til enn frekari glöggvunar má geta þess að margar íslenskar plötur seljast einungis í 500-1000 eint. þannig að geislaútgáfa af þeim er dæmd til að mistakast) - Oft vantar með geislaplötunni hluta af þeim upplýsingum sem fylgja vínilp- lötum. s.s. prentaða söngtexta, þátttakendalista o.s.frv. - Núningur nálarinnar slítur vínilplötunni svo hratt að það heyrist munur á milli hverra 2ja-3ja spilana. Geislinn slítur geislaplötunni hins vegar ekki neitt. Reyndar er hægt að þvo vínilplötuna upp úr Last-vökva svo að hún slitni ekki. - Geisla- og vínilplatan eru álíka viðkvæmar fyrir rispum og óhreinindum (öfugt við það sem flestir halda). Aftur á móti verndar geislaplötuhulstrið plötuna betur en vínilplötuumslagið. - Tóninn er oftast hreinni og betri á geislaplötunni. í sumum tilfellum er munurinn afar mikill , sérstaklega þegar geislaplatan er merkt „Telarc Digit- al“ eða „DDD“. - Það er bara spilað af annarri hlið geislaplötunnar en á henni getur verið 70 mínútna löng dagskrá. Á hvorri hlið vínilplötunnar er sjaldan meira en 20 mínútna dagskrá. Ef á vínilplötum er lengri dagskrá kemur það niður á tóng- æðunum. Þess vegna skarta margar geislaplötur aukalögum sem komust ekki á vínilplötuna (geislaútgáfan af „Loftmynd“ Megasar hefur 5 lög umfram vínil- útgáfuna). Eins og af þessari upptalningu sést getur verið eins eðlilegt að spyrja: Hvort á fyrst að kaupa geislaspilara eða vínilspilara? í framhaldi af því má spyrja: Hvaða geislaspilara eða hvaða vínilspilara er heppilegast að kaupa? Poppþáttur Æskunnar kannar það í næstu blöðum. Inxs Hæ, hæ! Getið þið frætt mig um hljómsveú ina Inxs? Madonna Kæra Popphólf! Viltu birta fróðleiksmola um Ma- donnu og plakat af henni. Límmið- arnir voru æðislega góðir. Kristín Madonna er eitt best auglýsta fyr- trbceri poppmúsíkurinnar þennan áratuginn. Það sést best á því að hljómplötur hennar og kvikmyndir eru óburðugar en ímyndin er útfœrð mjög nákvœmlega. Þannig er Ma- donna t.a.m. látin bera glingur með sex arma gyðingastjömu til að fá hlýhug frá fjölmennum hópi banda- rtskra gyðinga. Einnig ber Ma- donna glingur með Jesús-krossinum til að fá hlýhug frá kristnu fólki. Sömuleiðis ber hún glingur með and-kjamorkumerkinu (friðar- tnerkinu svokallaða) til að fá hlýhug frá afvopnunarsinnum. Þannig mœtti áfram telja. Plötulisti Madonnu: »Madonna“ 1983 »The First Album“ 1985 (Evrópu-út- Sáfa af fyrstu plötunni sem var etnkum œtluð Ameríku-markaði. T.d. var umslagið endurhannað í samrœmi við muninn á amerískum °8 evrópskum markaðslögmálum.) »Like A Virgin“ 1985 »True Blue“ 1986 »Who’s That Girl?“ 1987 »You Can Dance“ 1987 Evrópa Kæra Popphólf! Getið þið útvegað mér heimilisfang aðdáendaklúbbs Evrópu? Kær kveðja, Ragnhildur Ólafsdóttir, Esjubraut 19, Akranesi. Europe Fan Club P.O. Box 22036 S-10422 Stockholm, Sverige Hæ, Popphólf! Ef maður gengur í aðdáendaklúbb Evrópu svara tónlistarmennirnir þá bréfunum sjálfir? Getið þið birt vegg- mynd af þeim? Hvað er Æskan búin að gefa út marga límmiða? Fylgja þeir blaðinu reglulega? Fá bara áskrifendur verðlaun fyrir lausnir á getraunum og þrautum? Hvað lestu úr skriftinni? Bæ, bæ, Múmía Það er afar óliklegt að Evrópu- piltamir svari sjálfir bréfum frá að- dáendum. Æskan hefur gefið út 12 límmiða með helstu íþrótta- og poppstjömum síðustu ára. Límmið- amir fylgja Æskunni eftir ástœðum hverju sinni. Allir lesendur Æsk- unnar eiga sömu möguleika á verð- launum fyrir réttar lausnir á þraut- um, áháð því hvort þeir em áskrif■ endur eða kaupa blaðið í lausasölu■ Hins vegar fá áskrifendur visst f°r' skot því blaðið berst fyrr til þeirru og minni líkur eru á að áskrifendur missi af blöðum. Úr skrift þinni ma ráða að þú sért svolítið feimin en vildir gjaman vera framhleypnurt en þú ert. Þú ert listrœn og hefur skipulagshcefileika en skortir örlitlu þolinmœði. Megas, Sykurmolar, Bubbi og Sogblettir Hæ, kæra Popphólf! Mér finnst vanta fleiri viðtöl og veggmyndir af íslenskum músíkönt- um eins og Megasi, Sykurmolum, Sogblettum o.fl. Megas er einn af bestu músíköntum landsins. Ég vona að Æskan láti Megas, Bubba og Kristján Arason vera í þættinum „Aðdáendum svarað“. EK-MJ-2 Við þökkum bendinguna en vilj- um jafnframt benda á að ekkert ís- lenskt tímarit hefur fylgst eins vel með þróun mála hjá Sykurmolunum og Æskan. En við skulum athuga þetta með viðtölin, veggmyndimar og þáttinn „Aðdáendum svarað". Grafík Kæra Popphólf! Þið þyrftuð að hafa veggmynd af Grafík. E.G. Whitney Houston Kæra Popphólf! Hver er póstáritun aðdáenda- klúbbs Whitneyjar Houston? Hvern- ig kemst maður í klúbbinn? Hvað kostar það? Er hægt að borga með ís- lenskum peningum? Auður Whitney Houston Press Office 3 Cavendish Square London Wl, England Ætli eðlilegasta leiðin til að kom- ast í aðdáendaklúbb sé ekki sú að skrifa bréf og spyrja um félagsgjald, skyldur klúbbfélaga og þjónustu klúbbsins. Félagsgjaldið verður áreiðanlega að greiðast með gjald- miðli heimalands klúbbsins eða í Bandaríkjadölum. Þorbjörg Bjömsdóttir, Baldursbrekku 12, Húsavík. Inxs-sextettinn er stundum rtefr^ ur „Hinir áströlsku Duran Duran > líklega vegna vinsœlda heima fy,rir' A.m.k. erþað hvorki útlitið né mus íkin því að Inxs eru töluvert sl hœrðari en DD og að auki ómála^ í andliti og músíkin er bœði »S°n aðri“ og rokkaðri. Inxs var stofnuð 1977 en he reyndar The Farris Brothers fyrS,a árið. Söngvarinn, Mikkjáll tíutc, hence, þykir minna nokkuð Mikka Jagger. Hann er menntað,lf leikari og hefur farið með hlutvefk' kvikmyndinni „Geimhundar"■ Ok ur grunar að eftir Inxs liggi 8 P^ot ur. Póstáritun Inxs er: Inxs Fan Club 75 Rockefeller Plaza New York - NY 10019 - U.S.A■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.