Kyndill - 01.03.1934, Síða 12
Kyndill
Ríkisauðvald
ríkisrekstur
í Danmörku t. d. óska jafnaðarmenn |>ess og berjast
fyrir því í samræmi við sína stefnu og hugsjón, að
Landmansbankinn sé raunverulegur ríkisbanki, pó að
þetta sé enginn socialismi undir núverandi skipulagi,
heldur ríkisrekstur eða rikisvald, en einka-auðvaldið
óskar hins gagnstæða, sem sé að ríkið selji hlutabréf
•bankans, svo hann verði einkabanki.
Frá sjónarmiði jafnaðarmanna er hin nýja skipun um
eftirlit og stjórn gjaldeyrisins í Danmörku mikilsvarð-
andi nýsköpun eða umbót, sem danska einka-auðvaldið
dæmir og hefir volduga baráttu gegn, þó að flokkar
peir, sem eru auðvaldsflokkar, gætu vel gengið með til
•að koma slíku á, af því aðstæðurnar kröfðust pess, pá
óska þeir að stofnun þessi sé upphafin eða a. m. k. gerð
þýðingarlaus. 1 samræmi við þetta sjáum við að fascist-
ar i Italíu geta vel gert ýmsar neyðarráðstafanir, t. d.
stutt og styrkt banka, sem standa nærri glötunarbarm-
inum, en þeir stofna hvorki né styrkja fleiri ríkisfyrir-
tæki en nauðsyn krefur.
Sá er mismunur fascista- og sovét-stjórnar, þó að
báðar vilji styrkja hið pólitíska ríkisvald til hins ýtrasta,
að hlutverk og fyrirætlan fascismans er einmitt að
vernda og viðhalda arðránsmöguleikum einka-auðvalds-
ins með kúgun verkalýðsins.
Okkur er því óhætt að slá því föstu, að ríkisrekstur,
stofnun rikisauðvalds, eða tilraunir í þá átt, eru ekki
gerðar samkvæmt óskum auðvaldsins eða yfirstéttar-
innar, heldur vegna ytri aðstæðna, knýjandi nauðsynjar
að halda atvinnulífi og verzlunj í gangi.
10