Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 27
Kosningarnar í sumar
Kyndill
fjárgræðgi og bitlingasýki þingmannanna, sem í niörg-
um tilfellum hefir leitt til pretta í fjármála- og við-
skiftalífinu yfirleitt. Fjárplógsmenn hafa leikið lausum
hala og notið alveg sérstakrar verndar hjá meirihluta
þeirra, er skipað hafa trúnaðarsætin á alþingi. Með
viðbjóði eru þessi atriði úr seinni ára sögu þjóðþingsins
lesin af þeirri kynslóð, sem nú er að þróast á íslandi.
Sú kynslóð liefir frá því hún fyrst vissi um tilvist sína
í landinu horft upp á það, að nokkrir svindlarar, sem
einskis hafa svifist til þess að koma ár sinni fyrir borð
á kostnað iðjufólksins í landinu, hafa notið sérstakrar
verndar hjá trúnaðarmönnum þjóðarinnar. Alþingis-
mennirnir margir hafa gert Alþingi að eins konar-
skjóli fyrir misyndisfólk og gert prettvíst arðrán stór-
burgeisa að áhættulausri iðju. Arðræningjum, sem ekki
hafa einu sinni fylgt venjulegum reglum auðvaldsvel-
sæmis í viðskiftum, hefir verið hjálpað og fjárbænum
þeirra sífelt fullnægt á sama tíma og bóndanum í sveit-
inni og verkamanninum á eyrinni hefir verið synjait
um frumstæðustu möguleika til þess að geta lifað. Og
afleiðingin af þessu stjórnarfari og hátterni æðstu
mannanna hefir svo auðvitað orðið sú m. a., að srnærri
spámennirnir hafa leikið eftir, því að „hvað höfðingj-
arnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það“. Og þannig
hefir spilt, rotið og ranglátt stjórnarfar sýkt alt þjóð-
lífið. Nú alveg nýlega hefir komist upp um stórkost-
legan fjárdrátt og starfssvik af hendi nokkurra banka-
manna. Aðalgjaldkeri þjóðbankans sjálfs verður fyrir
tilviljun, að því er virðist, uppvís að því að hafa keypt
25