Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 40
Kyndill
Prófessor Julius Tandler
lendingar hafa verið sjónarvottar að starfi jafnaðar-
manna í Wien til f>ess að slíkar kviksögur fái nokkurn
tíma varanlegt giídi. Sérstaklega mun þeim veitast
erfitt að sverta prófessor Tandler og allt hans staiíf,
enda þótt því sé nú lokið um stundarsakir meðan hann.
situr í .fangelsi.
Það, sem sérstaklega vakti athygli í starfi Tandlers,
var umhyggja hans fyrir verkamannabörnum. En á
þeim bitnaði neyðin mest og þeim varð að hjálpa. Þar
var því nauðsynlegt fyrir hina uppvaxandi kynslóð, að
þessi mál yrðu tekin skynsamlegum tökum, svo hún
yrði sterkari og hraustari en fyr. Prófessor Tandler
skrifar: „Þeim mun meiri umhyggju sem við höfum
fyrir æskunni, þeim mun minni verður hún á fullorðins-
árunum og þeim mun hraustari, duglegri verður hún í
baráttunni fyrir tilverunni. Það, sem við borgum fyrir
barnaheimilin, spörum við á fangelsunum. Fullkomin
barna- og unglinga-forsjá er hagkvæmasta aðferðin tii
þess að skapa heilbrigt og gott þjóðfélag. Þau útgjöld,
er til þess fara, fást vafalaust endurgreidd síðar og
verða þá heildinni til gagns. Þetta er aðalástæöan til
þess, að Wien leggur svo stóra áherzlu .á uppeldi barna
og unglinga."
Tandler endurbætti barnaleikvellina og lét byggja
marga nýja. Samtals eru nú 125 barnaleikvellir í Wien.
Áður fyrr voru barnaleikvellir eingöngu fyrir börn auð-
mannanna. Árið 1919 var þessu breytt þannig, að öll
börn höfðu jafnan aðgang til vallanna. Um, 13 000 börn
frá 3—6 ára hafa nú daglega not af leikvöllunum. Eitt
.38