Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 26
Kyndill
Kosnlngarnar
fi snnsar
Síöasta sunnudag í júnímánuði í vor fara fram fyrstu
kosningar til Alþingis eftir nýju kosningalögunum, sem
samþykkt voru á síðasta þingi að afgreiddri hinni nýju
stjórnarskrá. Enginn vafi leikur á þvi, að næstu al-
|nngiskosningar eru að flestu leyti merkilegri en nokkr-
ar aðrar slíkar kosningar hafa verið. Ber margt tii
þess. Nú fá í fyrsta skifti ungir menn, sem orðnir eru
21 árs gamlir, að hafa veruleg áhrif á úrslit kosning-
anna og með því áhrif á stjórnarfar landsins í fram-
tíðinni. Svo er nú komið með stjórnarfarslegt ástand
islands, að marga óar við, ekki sízt ungu kynslöðina,
sem finnur jafnvel bak sitt bogna í byrjun lífsstarfs
síns af syndum feðranna. Hin helga stofnun þjóðarinn-
ar, Alþingi, sem fyrir skömniu hélt hátíðlegt 1000 ára
afmæli sitt, hefir verið svívirt af þeim, er útvaldir hafa
verið til þess að gæta sóma hennaT í hvívetna. Trúnað-
armennirnir hafa svikið oft og einatt skyldur sínar við
umbjóðanda sinn, þjóðina, lagt hagsmunamál hennar j
veð fyrir eigingirni sina og vegna sjálfselsku og lítil-
mensku aldrei leyst út veðið. Slík er saga Alþingis á
síðari árum. Hún er auðkennd af hrossakaupum og
24