Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 28
Kyndill
Kosningarnar í sumar
fyrir fé bankans falskar ávísanir í greiðaskyni við eitt
stærsta okurfyrirtækið í Reykjavík. Á sama tíma eða
nokkru fyr í vetur komst það upp um starfsmann í
útibúi Otvegsbankans í Vestmannaeyjum, að hann hafi
i mörg undanfarin ár dregið sér af fé bankans svo
stórkostiega, að tugum jmsunda nemur. Fleira mætti
telja þessu skylt, sem gerst hefir innan bankaveggjanna.
Og þetta hefir viðgengist óáreitt þrátt fyrir þótt búið
sé að greiða úr ríkissjóði um J60 þúsund krónur til
æftiriits með fjárstofnunum landsins. Og við hverju er
að búast með bankaeftirlitið, þegar þess er gætt, að
eftirlitið var falið Jakob MöIIer að undangengnum
hrossakaupum milli Framsóknar- og íhalds-manna. Allir
vita, að Jakob var óhæfur í starfið og embættið stofn-
að sem bitlingur fyrir hann. Enda hefir Jakob sjálfur
ekki einu sinni reynt að hafa eftirlit með bönkunum, en
látið sér vel líka að taka laun fyrir ekkert starf.
Tvö eru þau tímabil auðkend af fjársvindli og emb-
ættisvanrækslum, sem jafnan munu minnisstæð. Fyrra
tímabilinu lauk 1927, þegar íhaldsflokkurinn hröklaðist
frá völdum. Þá komust upp mörg og stór fjárdráttar-
mál og vanræksla og svik hjá ýmsum embættismönnum
(Einar M. Jónasson). Pá komst upp um sjóðþurðir í
opinberum stofnunum (Brunabótafélagið). Og þá kom
líka fram skýrt og greinilega óhæfileg meðferð á spari-
fé landsmanna í Islandsbanka, er Iauk með því, að
bankinn varð að loka. Hafði hann þá tapað svo stór-
kostlega á hinum og öðruin viðskiftamönnum sínum,
sem margir voru prettvísir og sviksamir (Sæm. Hall-
26