Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 29
Kosningarnar í sumar
Kyndilt
dórsson, St. Th. J. o .fl.). En lökustu viðskiftamenn Is-
landsbanka nutu sérstakrar verndar hjá íhaldinu. Þjóð-
in vaknaði þá, þreytt orðin á því að fylgja þeim flolcki
að málum, sem seint og snemma varði svindlið og
óhæfu stjórnina á íslandsbanka. Þá flýðu kjósendurnir
á náðir Framsóknarflokksins, sem þá var minna blett-
aður en íhaldið vegna ungs aldurs, en ekki þess, að
hann hefði ekki upplag til að gera sitthvað misjafnt eins
og nú er kunnugt orðið. Á þeim tíma dubbaði Fram-
sóknarflokkurinn sig upp með allkröftugri gagnrýni á
hið spilta íhaldsstjórnarfar og loforðum um að öllu
skyldi kippltj í lag, sem miður færi, ef hann næði völd-
um. Og Framsóknarmenn náðu völdum. Loforð þeirra
blekktu kjósendurna.
Og hvernig fór? Rann upp nokkur gullöld í fjár-
mála- og viðskifta-lífi landsins? Nei, öðru nær. Svindl-
ið og óreiðan hélt áfram að þróast jafnt og þétt og
hefir jafnvel náð hámarki nú, bæði í 'bönkum og annars
staðar. Og hvernig, á í raun og veru að hugsa sér ann-
að en að heiðarleiki og ráðvendni í fjármálaviðskiftum
skipi óæðri bekk, þar sem sjálft Alþingi er notað af
trúnaðarmönnum þjóðarinnar til þess að afla sjálfuin
sér bita og beina.
Nú fyrir kosningarnasd í vor er því sérstök ástæða til
þess að afla sér glöggra skila á því, hvernig málum er
komið, hvernig stjórnarfarið er. Og það er því miður
óglæsilegt. Þjóðin hefir undanfarin ár verið að leita
að félagslegu réttlæti hjá tveim flokkum, Framsóknar-
flokknum og íhaldsflokknum. Báðir hafa svikið vonir
27