Kyndill - 01.03.1934, Page 39
Prófessor Julius Tandler
Kyndiii
Prófessor Tandler er einn Jjeirra, sem metst verk
iagði! i að byggja Wien upp úr rústunum eftir stríðið.
Nafn hans mun í minnum haft með borgarstjóranum
Seitz, fjármálaráðherranum Hugo Breitner, skólaráðs-
manninum Otto Glockel, byggingarfulltrúanum Anton
Weber o. fl.
Fyrir nokkrum árum var nafn prófessors Tandlers
frægt i blöðum, er hann keypti nokkur/grqmm af ra-
dium handa krabbameinsspítalanum í Wien. Barátta
Tandlers gegn krabbameini var að eins einn liður í bar-
áttu hans gegn sjúkdómum yfirleitt. Öll fátækramál í
Wien voru endurskipulögð þannig, að þau urðu til
mikillar aðstoðar við að bæta alment heilsufar.
Gamla Wien var þekkt fyrir sinn mikla barnadauðai
og berkladauða í hlutfalli við aðrar stórborgir. Á
stríðsárunum versnaði ástandið mikið, meðal annars
jókst barnadauði um helming. Frammi fyrir þessu stóð
Tandler árið 1919 sem yfirmaður fátækramálanna. En
hann var starfinu vaxinn. Á fáum árum byggði hann
upp og endurskipulagði fátækramálin þannig, að það
verk er nú heimsfrægt. Árið 1928 komu .ekki færri en
32 000 útlendingar til að sjá hið nýja kerfi hans í fá-
tækramálum.
Ihalds- og fascista-blöð munu vafalaust reyna að
túlka verk jafnaðarmanna í Wien á versta veg og telja
að starf þeirra þar eigi að verða öðrum til viðvörun-
ar. Fascistar telja meðal annars að verkamannabústað-
irnir, sem jafnaðarmenn vöröust lengst i, hafi fyrst ogi
fremst verið byggðir sem vigi. En allt of margir ut-
3T