Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 48
Kyndill
fiófementafélag fafnaðarmanna,
Hverfisgötu 8—10, Reykjavik,
gefur út rit og bækur í þeim tilgangi aö
auka þekkingu á jafnaðarstefnunni og
starfsemi hennar og breiða út annan nyt-
saman fróðleik, er alþjóð má að haldi
koma, svo og fagrar bókmentir, útlendar
og innlendar.
Ársgjaldið er 10 krónur, og fá félagar fyr-
ir það alt, er félagið gefur út árlega.
Félagið hefir starfað í'þrjú ár og gefið út
þessar bækur:
Brotið land, eftir Maurice Hindus, lýsing á
bændalífinu í Rússlandi eftir byltinguna.
Jimmie Higgins, eftir Upton Sinclair, segir frá
því, er amerískur verkamaður vinnur
heimsstyrjöldina.
Æfintýrið um áætlunina miklu, eftir M. Ilin.
Þýðing eftir Vilm. Jónsson landlækni.
Heimsfræg bók.
Komi riki þitt, eftir L. Ragaz. Rök kristin-
dómsins fyrir jafnaðarstefnunni.
Frjálst verkafólk á íslandi eftir dr. Guðbr.
Jónsson. Lýsir íslenzkri stéttabaráttu fram
til siðabótar.
Almanak alþýðu, 1., 2. og 3. ár, með mörgum
fróðlegum ritgerðum, smásögum o. fl. til
gagns og skemtunar.
Nýir félagar fá almanökin í kaupbæti, en
hinar bækurnar fyrir hálfvirði.
Gerist félagar sem fyrst.
Gefið yður fram við stjórn félagsins eða
afgreiðslu Alþýðublaðsins, Reykjavík.