Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1896, Blaðsíða 42
—36—
Manitoba.
Manitoba-fylki var tekið inn í Canada-sam-
bandið 15. Júlí 1870.
Fylkinu er stjórnað af fylkisstjóra, sem settur
er af landshöfðimrja Can»da, ásamt ráði, er
saman stendur af 5 þingmönnum. í raun og veru
er það þetta ráð, sem hefur á hendi stjórn fylkis-
ins. Forseti ráðs kessa (prime minister) er kall-
aður til embœttis af fylkisstjóra, og er liann ætið
leiðtogi þess flokas, er fjölmennari er á þingi.
Hann útnefnir sína meðráðendur.
Þingið samanstendnr af 40 mönntim, sem allir
eru kosnir af alþýðu. F}dkisþingskosningar fara
fram á fjögra ára fresti. Laun þiugmanna eru
$000 á ári.
Hinn núverandi fylkisstjóri er Ilon. J. C.
Patterson. Fylkisstjóri er útuefndur til 5 ára.
Leiðtogi „liberal“ flokksins, sem nú er við
völdin, er Hon. Thomas Greenrvay. Ilann varð
fyrst þingmaður 1879; hefur hann gegnt þeim
starfa allt af siðan, og er hann hinn eini núverandi
þiugmaður, er sat á þingi 1879. „Liberal'1 fiokk-
urinn kom til valda 1888.
Þýðingarmestu mál, er uppi hafa verið á dae-
skrá fylkisins á síðari árum, eru járnbrautarmál
og skólamál þess.
I ráðaneyti fylkisins eru þessir rnenn nú:
Hon. Thomas Greenway (fyrsti ráðherra), for-
seti ráðsins og ráðherra akuryrkj .- og innttutn-
ingsmála;
Hon. D. H. McMillan, fylkis-fjehirðir;
Hon. Clifford Sifton, dómsmála ráðherra;
Hon.Robert Watson.ráðherra opinberra starfa;
Hon. J. D. Cameron, fylkisritari.
Allir ráðherrarnir hafa $".000 í árslaun nema
fyrsti ráðherranp; hann hefur $4,001 í laun.
Forseti þingsins er Hon. Finlay M. Young.