Afturelding - 01.01.1953, Blaðsíða 11

Afturelding - 01.01.1953, Blaðsíða 11
AFTURELDING VantrúarmaSuri nn og Biblían. Eitt sinn var ég á ferð frá Dundee í Skotlandi til Lundúnaborgar. Ég ferðaðist með skipi. Þegar ég fyrsta kvöldið ætlaði ofan af þiljum niður í svefnklefa minn, þá sá ég úr stiganum inn í matsalinn, þar var hópur fólks samankominn. Mig langaði til að sjá og heyra livað þar var um að vera og fór því inn í matsalinn. Þar voru tveir menn í heitum samræðum um kristin- dóminn. Annar þeirra var kunnur guðsafneitari, um fer- tugt. Hinn var kominn að sjötugu og var trúmaður. Það var greinilegt að yngri maðurinn hafði betur í þessum umræðum, hann var málsnjall og notaði öll ráð til að gera lítið úr kristindóminum og þeim sem honum fylgja að málum. Margir virtust hafa gaman af þessum samræðum og ekki sízt því að gamli maðurinn fór hall- loka. Eg beið eftir tækifæri til að blanda mér inn í samtal- ið, en áður en það gæfist hætti gamli maðurinn umræð- unum, virtist öllum hann hafa beðið lægra hlut. Ég ávarpaði hann því og sagði: „Mér þótti leilt að þú skyld- ir ekki halda umræðunum áfram. “ — „Ég hafði ekkert meira að segja,“ sagði hann. — Guðleysinginn hafði upp þessi orð. Hann var sýnilega ánægður með sjálfan sig og hélt hann nú áfram að gera lítið úr trúnni. Hann varð ekki lítið undrandi er ég spurði hann unt þekkingu hans á Biblíunni. Hann var fljótur til svars og kvaðst hafa lesið hana fram og aftur mörgum sinnum. „Þessu trúi ég. Þér dæmið Biblíuna svo hart, vegna þess að þér þekkið hana svo vel“. „Já“, svaraði hann, „það er þannig. Ég mundi áreiðanlega ekki dæma hana, nema því aðeins að ég þekki innihald hennar.“ Ég tók veski mitt úr brjóstvasanum. I því voru 5 sterlingspund. Síðan tók ég armbandsúrið og lagði það ofan á seðilinn og mælti. „Ef þér getið lesið 10 vers úr Biblíunni utanbókar, þá liggur borgunin hér.“ Það var eins og nýr andi kæmi yfir hó])inn, er jrarna var og allir voru fullir eftirvæntingar. í stað þess að byrja að lesa, þá sagði hann í afsökunartón: „Það er orðið svo langt síðan ég hef lesið í Biblíunni, ég hef ekki gert það síðan ég fór til sjós, fyrir 15 árum síðan. Svo er minnið mitt ekki heldur upp á það bezta.“ Ég var ákveðinn og sagði að ef hann jrekkti Biblíuna, eins og hann hafði staðhæft, þá ætti hann að geta lesið örugglega 10 vers af þeim 31173 sem í Biblíunni eru. Hann afsakaði sig ennþá einu sinni með j)ví að svo langt væri síðan hann hafði lesið nokkuð í Biblíunni. Þeir, sem fylltu hópinn þarna í matsal skipsins, fóru nú að brosa að þessum fríhyggjumanni sem svo djarflega hafði mælt móti Biblíunni og hrósað sér af jrekkingu á hinni Helgu bók. Ég bað liann nú að lesa, þó að ekki væri nema sjö vers. Verðlaunin skyldi hann fá ef hann gæti það. Ilann gat það ekki heldur, þá bað ég hann að lesa fimm, síð- an þrjú. En allt kom fyrir ekki. Að síðustu gekk hann inn á að lesa eitt. En gerði það svo skakkt og ruglings- Iega að hörmung var að. Tók ég Biblíuna úr vasa mín- um og lét hann sjá hversu skakkt hann hefði farið með, Einnig gaf ég öðrum sem voru viðstaddir kost á að sjá mismuninn á orðunum, sem guðleysinginn hafði lesið. Til hinna viðstöddu mælti ég á }>essa leið: „Hér höf- um við dæmi af manni sem fyrirdæmir Ritninguna, gjörir gys að kristindóminum, sem segist þekkja alla Biblíuna, en getur þó ekki hindrunarlaust lesið utanbók- ar eill einasta vers, þó að honum sé boðin borgun fyr- ir.“ Ég fékk svo tækifæri áfram til vitnisburðar og end- aði síðan með bæn. Um það leyti er við náðum ákvörðunarstaðnum kom guðleysinginn og annar maður til mín í klefa minn. Voru þeir hugsi mjög og vildu koma'st á fastan grund- völl í eilífðarmálunum. Þeir þökkuðu mér innilega fyrir það sem ég hafði sagt og tóku jafnframt þá ákvörðun að hér eftir skyldi stefna þeirra verða önnur. Allir guðleysingjar og fríhyggjumenn hrósa sér af þekkingu á guðlegum málum og þá ekki sjaldan á Ritn- ingunni. Óhætt mun vera undir öllum kringumstæðum að bjóða borgun á sama hátt og ég gerði. Því jreir einu, er dæma Ritninguna, eru þeir sem alls ekkert }>ekkja hana. J.M.K. í Svenska Posten, lausl. þýtt. Einar J. Gíslason. 11

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.