Afturelding - 01.01.1953, Page 16

Afturelding - 01.01.1953, Page 16
AFTURELDING Hin mikla sýn. Arið 1628, sunnudag næstan íyrir jól, sá séra Magnús Pétursson sýn þá, sem liann segir frá hér á eftir. Um kvöldið, fyrrnefndan sunnudag, var mikið regnveður. Mér varð þá gengið út úr bæ mínum, eftir að ég var nýkominn heim úr stuttri ferð, í ljósaskiptunum. Varð mér þá á i hastarlegri hræði, að formæla veðrinu, sem sannarlega hefur verið innblástur þess vonda, og get ég hvorki né vil fleira um það skrifa. Aví, J)ú banvœna vefirátta! Ó, minn, Guð, ég játa fyrir þér mína synd. Þú gjörþekkir vegu allra manna. Ó, þú hjartnanna og nýrnanna rannsakari, láttu mig finna náð hjá þér, og gakk ekki i dóm við mig. Líttu eigi á minn saurugleika, heldur á hreinsandi hlóð þins elskulega sonar Jesú Krists og gjör mig eiliflega sáluhólpinn. Þegar ég nú gekk vestur fyrir bæinn i áður nefndu þungu skapi, varð mér iitið upp á himinhvelfinguna til suðurs. Brá þá fyrir mig miklum Ijóma, og í þeirri hirtu sýndist mér stór skinandi maður eða mannsmynd vera, en þó miklu hjartari en sú mikla birta, er ég sá og var sem geislar stæðu af honum allt um kring. And- litsmynd hans var mikilfengleg á að líta, hár hans og skegg var Ijósgult eða rauðhvítt til að sjá, en þó með elliblæ, og sem það væri með nistum eða skinandi gimsteinum. Á höfði hans sýndist mér vera kóróna. Hann var skrýddur síðri skikkju. Hún líktist skrautlegum konungahúningi. Mér virtist hann sitja á stóli með fögrum yfirlit. Brugðið sverð var i hans hægri hendi, blátt, rautt og svart, en í hans vinstri hendi var spenntur bogi bleikur að lit. Ör, sem lá fyrir bogastrengnum, var rauð, en strengurinn gulur. Nakið barn sýndist mér í faðmi hans. Það var á knjánum með uppréttar og útbreiddar hendur. Barnið virtist mér yndislegt, þótt ég sæi óglöggt ásýnd þess, þvi það horfði frá mér. Það hafði sítt og fagurt hár, sem liðaðist í lokkum niður um hálsinn, en hrökk upp aftur að neðan. Barnið hélt annarri hendinni um örina, sem lá á hoganum, en annarri um sverðsoddinn, og sá ég glöggt að hlóð rann ofaneftir háðum handleggjum þess, eins og það hefði særzt hæði af sverðinu og örinni, sem sú dýrðlega mynd hafði i höndum sér. Þetta horfi ég á ekki lengri tíma en á meðan ég gat lesið „faðir vor.“ Svo hvarf þessi sýn mér skyndilega. Ekki hcyrði ég nein orð töluð, með mínum líkamlegu eyrum, en hvað sálunni sýndist, greini ég ei að þessu sinni. Ég get og varla frá því skýrt, eins og það var, en þó man ég hvernig það var prédikað fyrir mínum hugskotseyrum. Þessa, mér opinberuðu hluti bið ég Guð að hjálpa að mér aldrei úr minni líði .... Sýn þessi fékk mikið á prest. Næstu nótt dreymdi hann ákaf- Iega alvarlegan draum, sem var djúp útskýring á sjálfa sýnina. Draumurinn kemur i Annál næsta blaðs. AFTURELDING kemur út annan hvern mánuð — að undanteknum júlí og ágúst — og verður 84 síður á ári. Árg. kostar kr. 15,00 og greiðist 1. febr. Verð í Vesturheimi 2 doll. og á Norðurlöndum kr. 10,00 .1 lausa- sölu kr. 3,00 eint. Ritstjórar: Eríc Ericson og Ásm. Eiríksson. — Sími 6856. - Útg. Fíladelfía. - Ritstj. og afgr.: Hverfisg. 44. Rvík. SORQARPRENT - REYKJAVIK Innkomið í minningarsjóð til Afríkutrúboðs 1952. V. 20 kr., A.K. 20 kr., V. 40 kr., Fíladelfía Rvík 100 kr., S.V. 500 kr., V. 25 kr., U.E. 15 kr., frá ísafirði kr. 97,50, K. D. 100 kr., frá litlum dreng 100 kr., J. Ó. 40 kr., V. 40 kr., V. 10 kr., R.L. 30 kr., frá ísafirði 50 kr., Stykkis- hólmi 250 kr. (til Japans), Sunnudagaskólinn Rvík 228,- 64, J.E. 25 kr., R.L. 30 kr., Ó.Á. og fl. 100 kr., J.H. Eyj- um 20 kr., Ásm. 15 kr., G. Rj. Ilf. 50 kr., J. Hf. 20 kr., S. Hf. 10 kr., U. H. 25 kr., A. B. 10 kr„ M. H. 50 kr„ Á. G. 10 kr„ R. og A. 30 kr„ A. og Þ. 100 kr„ K. og G. 25 kr„ A. og R. 50 kr„ G. M. 25 kr„ J. 215 kr„ V. 25 kr. og 20 kr„ 2 minningarspjöld 50 kr„ Fíladelfía Rvík 50 kr„ frá Isafirði 10 kr. Við viljum vekja athygli fólks á þvi, að Fíladelfíu- söfnuðurinn í Reykjavík hefur ávallt fyrirliggjandi minn- ingarspjöld, er menn geta sent vinum og kunningjum sínum við dauðsföll aðítandenda og annarra, sem þeir á þenna hátt vilja minnast, andvirði slíkra minningar- gjafa gengur til trúboðs í Afríku, eða annara landa, ef menn óska þess. Þetta ættu menn að muna og styrkja þannig útbreiðslu Guðs ríkis bæði innanlands og er- Iendis. MVND AF KIBKJU TBtBOÐSSTÖÐVARINNAB í SWAZEI.AND, sem að nokkru lcyti licíur vcrið byggð fyrir peninga úr þessum Minningarsjóði. f brófi frú Gundu Sóllieim Liland sej?ir frá bless- uu f starfi Guðs á meðal fólksins þar. FlLADELFÍ A Reykjavík. Hverfisgötu 44. Reglubundnar samkomur eru haldnar þessa daga: Sunnudaga kl. 8,30. Sunnudagaskóli kl. 2. Fimmtudaga kl. 8,30. Biblíuleslrar alla Þriðjudaga kl. 8,30. Allir velkomnir! ____________________________________________ 16

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.