Afturelding - 01.04.1953, Síða 2
AFTURELDING
hefur staðið máttvana fyrir hinum sömu þremur vanda-
málum á umliðnum öldum og er eins máttvana fyrir
þeim í dag.
I. í fyrsta lagi hefur syndin ekki breytzt. Reynt hefur
verið að taka upp nýtt nafn og setja nýtt merki á eitur-
flöskuna. Menn hafa reynt með ákveðnum kerfum að
hreinsa til í hina gamla, synduga eðli mannsins. En
syndin hefur ekki breytzt. Við höfum reynt að gefa
vanciamálum okkar í dag ný nöfn, til að friða samvizku
okkar. En syndin er alltaf hin sama. Maðurinn svndgar.
og afleiðing syndarinnar eru sjúkdómar, vonbrigði, ör-
vænting, vonleysi óg helvíti.
Biblían segir: „Allir hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð“. „Laun syndarinnar er dauði.“ — „Sú sál sem
syndgar, skal deyja.“
Að eðlinu til ert þú syndari, og þú framgengur í
synd. Þú munt aldrei öðlast frið í sálu þína, frið í sam-
vizkuna og frið í hugarfarið. fyrr en syndinni hefur ver-
ið útrýmt úr lífi þínu.
II. Ekki hefur sorgin heldur umbreytzt. Fyrir þús-
undum ára stóðu Adam og Eva og horfðu með sundur-
kriimdum hjörtum á látinn líkama Abels sona'r síns, eft-
ir að Kain hafði myrt hann. Þetta var hið raunverulega
upphaf að þeirri nístandi hryggð, sem fyllir manns-
hjörtun. Sorg er alheimsins mál í dag, og sérhver okk-
ar þekkir að einhverju leyti til sorgar og þjáningar. En
Biblían segir, að þegar ])ú hefur mætt Jesú, sem Frels-
ara þínum, getur þú varpað allri áhyggju uþp á hann.
Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og
þun"a eru hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld!“
III. Og dauðinn er hinn sami. Enda þótt við höfum leit-
azt við að umbrevta honum með því að fegra ýmislegt og
gefa því önnur nöfn, þá er dauðinn samt raunveruleiki, —
grimmur og hræðilegur. Hann hefur ekki uinbreytzt.
Þú verður að deyja. Erlu reiðubúinn að deyja? Hefur
þú búið þig undir að mæta Guði? — Þú hefur búið þig
undir allt nema dauðann. En Biblían segir. „Vertu við-
búinn að mæta Guði þínum.“ — Þessi þrjú vandamál
skapa sögu kynslóðanna. Mannkvnssagan byggist á
þessum bremur vandamálum: Fortíðin, full af synd. nú-
tíðin brungin af sorg, og frá framtíðinni starir dauðinn
á okkur. Frá sjónarmiði almennings lítur þetta út sem
vonlevsi, enda hafa þeir reynt að upphugsa hundruð af
heimspekikerfum og ótölulegum trúarbrögðum — en án
árangurs. Við eigum sálfræðinga og heimspekinga, en
þetta hefur ekki getað leyst vandamálin. —
En leyf mér að leiða regnboga vonarinnar inn í hjarta
þitt!
Kristur getur leyst öll þrjú höfuðvandamál lífs þíns.
Það geta þúsundir og aftur þúsundir manna borið vitni
um! I Biblíunni getur þú fundið þessi orð: „Jesús Krist-
ur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“
I gær — það er fortíðin — sá tími, sem hann gekk um
hér á jörðunni.
í dag — það er núið — yfirslandandi augnablik.
Um aldir — það er framtíðin — til þess dags, þegar
hann mun koma aftur til jarðarinnar, til að ríkja. —
í GÆR — þegar hann var hér á jörðinni — friðþægði
Hann fyrir synd þína, forlíð þína, þitt umliðna líf. Jesús
Kristur dó til þess að frelsa þig frá syndum þínum. Hann
dó líkamlega og andlega í þinn stað. Einmitt þess vegna
getur blóð Jesú Krists hreinsað þig af allri synd.
í DAG er Kristur í himninum, þar sem hann biður
fyrir sérhverjum, sem á Iiann trúir. Hann er einmitt nú
á þessu augnabliki reiðubúinn til að leysa öll þín vanda-
xnál, fjarlægja byrðar ]>ínar og þerra öll þín tár. Hann
þráir að gefa þér frið, gleði og ánægju í þeim mæli, sem
þú aldrei hefur fyrr þekkt. —
Á MORGUN hefur Hann lofað himnesku heimili öll-
um þeim, sem trúa á hann.
Hvað á ég að gera til þess að fá syndir mínar fyrir-
gefnar, byrðar mínar fjarlægðar og vandamálin leyst?
Hvað á ég að gera til þess að fjarlægja óttann við dauð-
ann úr hjarla mínu, og til að öðlast fulvissu um, að ég
komi til himinsins, þegar ég fer héðan?
Þú verður að snúa þér.
Þú verður að viðurkenna synd þína og snúa þér frá
henni. Endurfæðing þýðir í sannleika það, að snúa sér frá
syndihni. Þú getur ekki verið kristinn, nema þú af fúsum
og frjálsum vilja yfirgefir hina syndugu forlíð þína.
Þú verður að trúa á Jesúm Krist! Trú þýðir, að gefa
sig á vald, að leggja sig í varðveitandi hönd Guðs. Þú
verður að gefazt Kristi Jesú og leyfa honum að vera
Drottinn þinn og Meistari. Þú verður að fela honum
vegu þína, og allt þitt líf. — Hefur þú snúið þér?
Trúir þú á Jesúm Krist, sem Frelsara þinn? Þá segir
Heilög ritning, aS þú sért endurfœddur. Að vera endur-
fæddur þýðir, að Guð gerir þig þátttakandi í hinu guð-
dómlega lífi. Þú ert barn Guðs og ný sköpun. — Hið
gamla varð að engu, sjá allt er orðið nýtt! —
ABt þetta getur orðið raunveruleiki fyrir þig — f þínu
lífi nú á þessari stundu. Gef þig Kristi Jesú nú. Drag
það ekki. Gæt tímanna. Tíminn er liðinn svo langt, að
við lifum þegar á lánuðum tíma, og sá dagur er harla
nærri, sem náð Guðs tekur enda.
Þegar Pétur prédikaði á hvítasunnudaginn, sagði hann
það fyrir, að næsta skipti, sem Guð gripi inn, mundi það
verða með dómi. Ef þú sniðgengur hjálpræði hans, þýðir
það hið sama og að þú varpir því frá þér. Að draga það,
er hið sama og að vísa því frá sér. Trú þú á Jesúm Krist nú.