Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.01.1986, Page 5
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
5
Jóna Ósk Guðjónsdóttir,
fulltrúi, Öldutúni 6, er fædd
26. júlí 1948 á Skagaströnd,
en fulttist með foreldrum
sínum, Guðjóni Ingólfssyni
og Aðalheiði Frímannsdótt-
ur, til Hafnarfiarðar árið
1952.
Að loknu landsprófi frá
Flensborgarskóla og stú-
dentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1968 varð
fimm ára hlé á námi þar til
þráðurinn var tekinn upp að
nýju við háskólann í Lundi í
Svíþjóð haustið 1974 og lok-
ið þaðan fil.kand. -prófi árið
1979 með mannfræði sem
aðalgrein.
A námsárunum stundaði
Jóna Ósk margvísleg tilfall-
andi störf, s.s. fiskvinnu,
aðallega þó síldarsöltun,
garðyrkju og skrifstofu-
vinnu. Með námi erlendis og
í leyfum vann hún einnig
sem sjúkraliði.
A árunum eftir studentspróf
þar til haldið var til dvalar í
Svíþjóð var hins vegar unnið
sem bókari og fulltrúi á Skrif-
stofu ríkisspítalanna í rúm
fjögur ár. Eftir heimkomuna
frá Svíþjóð hefur Jóna Ósk
starfað á skrifstofu Þjóð-
minjasafns Islands, nú sem
fulltrúi.
Jóna Ósk hefur verið vara-
bæjarfulltrúi yfirstandandi
kjörtímabil og setið í fræðsl-
uráði og afinælisnefnd
vegna 75 ára afmælis Hafn-
arfjarðar.
Hún á auk þess sæti í
flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins og var kjörin formaður
Sambands Alþýðuflokks-
kvenna haustið 1985.
Þórunn Jóhannsdóttir, er
fædd 15. ágúst, 1927 á Eyrar-
bakka. Foreldrar hennar
voru Jónína Hannesdóttir og
Jóhann Loftsson, bóndi.
Hún stundaði nám við hér-
aðsskólann að Núpi í Dýra-
firði og lauk þaðan prófi
1946.
Á skólaárum vann Þórunn
við fiskvinnslu á Eyrarbakka
á sumrin, en að skólagöngu
lokinni starfaði hún hjá
Landssíma íslands, fyrst á
Selfossi, en síðan í Reykja-
vík. Þórunn fluttist til Hafnar-
fjarðar 1950 og hóf búskap
með manni sínum Jónasi
Hallgrímssyni húsgagna-
smið. Þau hjón eignuðust 4
börn og stundaði Þórunn
húsmóðurstörf, þar til börn-
in voru uppkomin. Á þessum
árum hóf hún þátttöku í ýms-
um félagsstörfum; hefur m.
a. setið í stjórnum Kvenfé-
lags Iðnaðarmanna í Hafnar-
firði, Kvenfélags Alþýðu-
flokks Hafnarfjarðar og var
formaður Bandalags Kvenna
í Hafnarfirði á árunum 1979
til 1981. Árið 1975 hóf Þór-
unn aftur störf utan heimilis,
fyrst á hjúkrunardeild Vífil-
staðaspítala, því næst hjá
Ríkisútgáfu Námsbóka, en
síðastliðin 8 ár hefur Þórunn
unnið ritarastörf hjá Sjúkra-
samlagi Hafnarfjarðar. Jón-
as, maður Þórunnar, lést
vorið 1984.
Ingvar Viktorsson kennari,
Kelduhvammi 4, er fæddur 9.
apríl 1942 að Vífilsstöðum,
sonur hjónanna Guðrúnar
Ingvarsdóttur og Viktors
Þorvaldssonar.
Ingvar lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1963 og fór þá í Háskóla
Islands, en hóf fljótlega
kennslu við Flensborgarskól-
ann og hefur nú kennt í 20 ár
og að auki í Víðistaðaskóla
hin síðari ár.
Á skólaárunum stundaði
Ingvar sjómennsku á sumr-
um og einnig í mörg sumur
með kennslunni. Undanfarin
sumur hefur Ingvar gegnt
starfi forstöðumanns Vinnu-
skóla Hafnarfjarðar.
Ingvar hefur unnið mikið
að félagsmálum. Var formað-
ur FUJ í Hafnarfirði í nokkur
ár og varaformaður SUJ í
fjögur ár. Ingvar hefur í mörg
ár starfað fyrir FH og var t.d.
formaður handknattleiks-
deildar FH í tólf ár og einnig
verið formaður knattspymu-
deildar. Hann situr nú í
stjórn Handknattleikssam-
bands Islands.
Ingvar hefur setið í stjórn-
um kennarafélaga bæði í
Flensborg og Víðistaðaskóla
og í nefndum á vegum Al-
þýðuflokksins.
Eiginkona Ingvars er Bima
Blomsterberg og eiga þau tvo
syni, Bjama og Frey. Ingvar á
þrjú börn frá fyrra hjóna-
bandi, Pál, Viktor og Heið-
rúnu.
Tryggvi Harðarson, er fædd-
ur 30. júní 1954 á Akureyri.
Foreldrar hans eru þau Ást-
hildur Ólafsdóttir ritari og
Hörður Zóphaníasson skóla-
stjóri. Hann flutti til Hafnar-
fjarðar 7 ára með foreldrum
sínum.
Tryggvi tók landspróf frá
Flensborgarskóla vorið 1971
og varð stúdent frá sama
skóla fjórum árum síðar.
Að loknu stúdentsprófi hélt
Tryggvi til Kína og stundaði
kínverskunám og sagnfræði
við Háskóla Pekingborgar
árin 1975 — 1979. Síðar lauk
hann 35 einingum í sagn-
fræði við Hákskóla Islands.
Á æsku- og unglinsárum
stundaði Tryggvi alla al-
menna vinnu til sjávar og
sveita og eftir að námi lauk
annaðist Tryggvi stunda-
kennslu aðallega við Náms-
flokka Reykjavíkur. Þá haðfi
hann umsjón og annaðist
íslenskukennslu flóttam-
anna frá Víetnam sem komu
hingað á vegum Rauða
Kross íslands. Sumarið 1980
var Tryggvi flokksstjóri við
Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Tvö sumur vann Tryggvi
sem hvalverkamaður en fór
síðan að vinna við jámabind-
ingar, fyrst sem sumarvinnu,
en sem aðalvinnu tvö síðast-
liðin ár.
Tryggvi hefur tekið þátt í
ýmsum félagsstörfum. Tók
þátt í íþrótta- og skátastarfi,
var formaður Nemendafé-
lags Flensborgarskóla 1972-
1973, var meðal stofnenda
Starfsmannafélags Náms-
flokka Reykjavíkur 1984 og
fyrsti formaður þess. Gjald-
keri ÍBH var Tryggvi 1980-
1982.
Kona T ry ggva er Ásta Krist-
jánsdóttir og eiga þau einn
son, Hörð.
Hvernig eru atkvæði talin?
Hvenær er prófkjörið bindandi?
Atkvæði í prófkjörinu reiknast þannig að til 1. sætist teljast þau
atkvæði sem greidd eru frambjóðanda í það sæti, til 2. sætis
reiknast atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt, til 3. sætis atkvæði í 1.,
2. og 3. sæti o.s.frv.
Prófkjörið er bindandi um skipan sætis á framboðslista, ef fram-
bjóðandi hlýtur í viðkomandi sæti og sæti þar fyrir ofan 1/5 hluta
atkvæða Alþýðuflokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum.
í kosningunum 1982 hlaut Alþýðuflokkurinn 1336 atkvæði.
Frambjóðandi þarf því að fá a.m.k. 267 atkvæði í sæti til þess að
kosning sé bindandi í það sæti.